Morgunblaðið - 20.12.2018, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
SVIÐSLJÓS
Guðrún Vala Elísdóttir
vala@simenntun.is
Í lok október sl. var lífsstíls- og
gjafavöruverslunin FOK opnuð í
húsnæði nýja hótelsins á Borgar-
braut 59 í Borgarnesi, B59. Eig-
endur eru hjónin María Júlía Jóns-
dóttir og Jónas Björgvin Ólafsson.
María Júlía, sem er kölluð Júlía, er
hársnyrtimeistari að mennt og rak
eigin hársnyrtistofu hér í 10 ár en
lagði skærin á hilluna fyrir rúmum
tveimur árum.
Jónas er menntaður matreiðslu-
maður, hefur rekið eigin veisluþjón-
ustu, starfað sem yfirmatreiðslu-
maður á Heilsustofnun í Hvera-
gerði, og unnið m.a. á Á næstu
grösum, Hótel Borg og Hótel Sögu,
svo eitthvað sé nefnt. Hann starfar
nú sem kokkur á sjó. Þau eru bæði
Borgfirðingar, búa í Borgarnesi
ásamt sex börnum sínum sem eru á
aldrinum 3-17 ára.
„Hugmyndin að FOKI er búin að
vera að gerjast hjá okkur í nokkur
ár,“ segir Jónas, „en það hefur ver-
ið draumur Júlíu að opna verslun
með fallegri gjafa- og hönnunar-
vöru.“ Hótelið er að þeirra sögn
staðsett á besta stað, í hjarta
bæjarins, en þau voru búin að skoða
ýmsar aðrar staðsetningar áður.
,,Þegar við komum inn í þetta hús-
næði þá uppfyllti það allar okkar
kröfur, enda vel hannað, fallegt og
bjart rými.“
Nafnið vísar í veðrið
Nafnið FOK er nokkuð sérstakt
en hvernig kom það til?
„Í ferlinu vorum við að vinna með
nokkur nöfn og var mjög erfitt að
velja nafn á verslunina sem næði til
Íslendinga sem og erlendra ferða-
manna. Nafnið þurfti að uppfylla
ansi margar kröfur svo sem að vera
helst eins atkvæðis, vísa til svæð-
isins, auðvelt að muna, vera fallegt
á prenti og svo þurfti lénið að vera
laust. Eftir miklar vangaveltur þá
kom Birta, dóttir okkar, með hug-
myndina að þessu nafni sem vissu-
lega vísar í veðrið, okkur fannst það
virka og að það myndi vekja umtal
sérstaklega í ljósi þess að það er
auðvelt er að snúa út úr því,“ segir
Júlía, brosandi.
Í versluninni er boðið upp á mikið
af íslenskri hönnun, meðal annars
frá Ihanna Home, Sveinbjörgu,
HekluÍslandi, Hlín Reykdal, Tuli-
pop, My letra, Spa of Iceland og
fleiri. Eins fást þar fallegar gjafa-
og lífsstílsvörur eins og Rosendahl,
Norman Copenhagen, Kahler, Kaj
Boysen, Muurla, Meraki og margt
fleira. „Við erum einnig með fjöl-
breyttan og vandaðan fatnað fyrir
dömur og herra, auk trefla, leður-
hanska, binda, belta og sokka svo
eitthvað sé nefnt,“ segir Júlía og
bætir við að fatnaðurinn sé mjög
vinsæll.
FOKI hefur verið tekið mjög vel,
bæði af heimamönnum, öðrum og
einnig ferðamönnum. „Okkur þykir
ákaflega vænt um hversu vel okkur
er tekið og gaman að finna þann
meðbyr sem við fáum. Það er auð-
vitað lítil reynsla komin á þetta hjá
okkur enda stutt síðan við opn-
uðum, en Íslendingar eru okkar
helstu viðskiptavinir enn sem komið
er og erum við að fá til okkar fólk
alls staðar að af landinu. Einnig
fáum við svolítið af erlendum ferða-
mönnum og gerum við ráð fyrir að
það aukist með vorinu.“
Sælkeramatvörur í þróun
Eins og komið hefur fram er Jón-
as menntaður matreiðslumaður og
hefur mikinn áhuga á matargerð og
matarþróun. Hann langar að fara út
í þróun á vörum sem þau ætla að
selja í FOKI og mun verða þeirra
sérstaða.
„Við ákváðum að láta slag standa
og prófa að selja sælkeramatvöru
núna fyrir jólin og byrjuðum hinn
14. desember og fengum frábærar
viðtökur. Þetta er prufukeyrsla hjá
okkur á árstíðabundinni vöru, en
við stefnum að því með vorinu að
vera búin að þróa hugmyndina bet-
ur, fara þá í meiri framleiðslu og
jafnvel á öðrum markaði en hér í
Borgarnesi.“
Júlía stendur að mestu vaktina í
búðinni, með aðstoð Jónasar.
„Við erum með aðstoð sem kemur
og leysir af og hjálpar nokkra tíma í
viku. Eins fáum við góða aðstoð frá
fjölskyldu og vinum sem eru dug-
legir að létta undir með það sem til
fellur hverju sinni.“
Það er þó ekki bara afgreiðsla
heldur þarf að sinna markaðsmálum
og hafa þau nýtt undanfarnar vikur
til að kynna FOK og auglýsa.
„Við höfum gert það að mestu
leyti í gegnum samfélagsmiðla eins
og Instagram og Facebook, það eru
leiðir sem virka vel og ná til fjöl-
breytts hóps. Nú í desember höfum
við verið með jóladagatal á hverjum
degi þar sem að við veitum afslátt
af valinni vöru, því hefur verið vel
tekið. Við stefnum svo á meiri
markaðsherferð eftir jól og erum
við með heimasíðu í vinnslu,
www.fok.is en þar mun fólk geta
verslað við okkur af netinu. Núna
tökum við niður pantanir í gegnum
Facebook.“
Þau hjón segja framtíðina bjarta
og spennandi, margar hugmyndir í
vinnslu sem vonandi verða að veru-
leika með vorinu. „Við hlökkum til
að sjá ykkur í FOKI,“ segir Júlía að
endingu.
Hönnunarverslun vísar til veðurs
Hjón í Borgarnesi opnuðu nýverið lífsstíls- og gjafavöruverslunina FOK Hugmyndin hafði verið
að þróast í nokkur ár Dóttir þeirra lagði til nafnið á versluninni Ætla að þróa sælkeramatvöru
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Hjón Jónas Björgvin Ólafsson og María Júlía Jónsdóttir hafa opnað hönnunarverslunina FOK í Borgarnesi. Hönnun Fjölmargar hönnunarvörur eru í boði hjá FOKI.
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
FYRIR BÍLINN
FJARLÆGIR
BLETTI Á ÁKLÆÐI OG TEPPUM
MYNDAR
VÖRN FYRIR BLETTUM OG RAKA
GEFUR
YFIRBORÐINU FALLEGT ÚTLIT
KLÆÐA
URRHREINSIR
FYRIR BÍLA INNRÉTTINGAR