Morgunblaðið - 20.12.2018, Side 42

Morgunblaðið - 20.12.2018, Side 42
42 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018 Sinn er siður í landi hverju og það á ekki síst við um jólahaldið í þeim löndum heims þar sem haldið er upp á fæðingu Jesú Krists. Nú þeg- ar aðeins fjórir dagar eru til jóla er undirbúningur hátíðarinnar víða í fullum gangi, eins og sjá má á þess- um myndum sem ljósmyndarar fréttastofunnar AFP hafa tekið síð- ustu daga. Þar má meðal annars sjá þýskar konur svara bréfum barna sem sendu jólasveininum óskalista sína, enska kórdrengi æfa jólalög og ítalskan kökugerðarmeistara færa páfa jólaköku. Í nyrsta héraði Kína eru menn í óðaönn að undir- búa annars konar hátíð, að búa til dreka og fleiri forynjur úr snjó. Undirbúningur jólanna tekur á sig ýmsar myndir AFPSnjódreki Kínverjar búa til dreka úr snjó og ís til að undirbúa snjóhátíð í borginni Mohe í nyrsta héraði Kína. Kæri jóli Konur í þýsku pósthúsi, klæddar sem aðstoð- armenn jólasveinsins, svara bréfum til hans frá börnum. Jólalykt Frans páfi lyktar af panettone, ítalskri köku eða brauði sem köku- gerðarmeistari færði honum í Páfagarði í gær í tilefni af jólunum. Heims um ból, helg eru jól Kórdrengir syngja á æf- ingu fyrir jólamessur í Pálskirkjunni í Lundúnum. Jólasýning í Moskvu Listamenn á jólatorgi í grennd við Kreml.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.