Morgunblaðið - 20.12.2018, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
RíkisstjórnÍtalíu sam-þykkti í gær
að hætta við ýmis
áform sín í fjár-
lögum næsta árs og að ekki yrði
bætt við skuldir landsins á árinu
2019. Þetta var niðurstaðan af
samningaviðræðum ítölsku rík-
isstjórnarinnar við fram-
kvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, sem hafði áður hafnað
fyrirhuguðum fjárlögum Ítalíu,
á þeim grunni að þau brytu gegn
markmiðum sambandsins um
skuldasöfnun. Á móti samþykkti
framkvæmdastjórnin að hún
myndi vera sveigjanlegri þegar
reikna þyrfti út fjárlögin upp á
nýtt í ljósi „óvenjulegra að-
stæðna“.
Samkomulag Evrópusam-
bandsins og Ítalíu, sem var í
sumum fjölmiðlum lýst sem
„vopnahléi“ mótaðist ekki síst af
þeirri staðreynd, að mótmæli
„gulu vestanna“ í Frakklandi
hafa nú þegar rekið stjórnvöld
þar í landi til þess að lofa nýjum
ríkisútgjöldum á næsta ári og
munu þau útgjöld brjóta gegn
sömu viðmiðum og Ítalir höfðu
verið hankaðir á.
Sú ásökun að ekki væri sama
Jón og séra Jón innan Evrópu-
sambandsins hafði því nokkurn
hljómgrunn, þegar Ítalir bentu á
að Evrópusambandið hefði ekki
sett sig í neinar stellingar til
þess að refsa öðru
af tveimur forystu-
ríkjum sínum fyrir
sömu brot og
ítalska ríkisstjórnin
hafði fengið bágt fyrir. Það hent-
ar því framkvæmdastjórninni
ágætlega að geta samið við Ítali
um „sveigjanleika“ við óvenju-
legar aðstæður, en sú afstaða
mun eflaust vera gagnleg til að
afsaka frönsku framúrkeyrsl-
una.
Hitt kann að hafa rekið Ítali
að samningaborðinu, að skuldir
ítalska ríkissjóðsins eru nú þeg-
ar heilmiklar og hefði vart verið
á bætandi ef upphafleg áform
fyrir næsta ár hefðu staðist.
Þannig eru skuldir Ítalíu nú þeg-
ar um 131% af vergri landsfram-
leiðslu, en viðmið ESB segja að
skuldir eigi ekki að vera hærri
en 60% af landsframleiðslunni.
En getur „vopnahléið“ haldið?
Ríkisstjórn Ítalíu var kjörin á
grunni megnrar óánægju
ítalskra kjósenda með gömlu
„valdaflokkana“, og þó að flokk-
arnir að baki henni hafi komið úr
ólíkum áttum hafa þeir átt nokk-
urn samhljóm í að vilja spyrna á
móti yfirvaldi Evrópusambands-
ins. Það verður því fróðlegt að
sjá, hvernig ríkisstjórnin mun
haga seglum á komandi mánuð-
um, nú þegar fyrsta alvöru
„rimman“ við sambandið er að
baki.
Ítalir gefa eftir
gagnvart ESB}„Vopnahlé“ um fjárlögin
Donald TrumpBandaríkja-
forseti fyrirskipaði
varnarmálaráðu-
neytinu á þriðju-
dag að stofna nýja
deild sem mun hafa yfirstjórn
yfir öllum hugsanlegum að-
gerðum bandarísks herafla í
geimnum. Mun þessari nýju
herstjórnardeild vera ætlað að
þróa þær aðferðir og tækni
sem Bandaríkjaher mun þurfa
til þess að verjast ógnum utan
lofthjúps jarðar.
Trump lagði til í júní að
stofnuð yrði sérstök grein
Bandaríkjahers fyrir geiminn,
sem stæði þá jafnfætis landher,
flota og flugher landsins. Slíkar
hugmyndir hafa þó ekki komist
af teikniborðinu þar sem
Bandaríkjaþing hefur verið ef-
ins um þær.
Sá varhugur er einkum
sprottinn af tvennum rótum,
annars vegar að kostnaðurinn
við slíkan herafla gæti orðið
mikill, auk þess sem einhverjir
þingmenn hafa eflaust í huga
hagsmuni flughersins, en hann
hefur fengið að sjá um þennan
þátt landvarna Bandaríkjanna
til þessa.
Þá hefur einnig verið
ríkjandi skoðun að geimurinn
eigi að vera sem mest undan-
skilinn hernaðar-
brölti og stórvelda-
pólitík. Kínverjar
hafa þegar gagn-
rýnt ákvörðun
Trumps og sagt að
forðast þurfi að „vígvæða“
geiminn, þar sem hann eigi ein-
ungis að vera nýttur í frið-
sömum tilgangi.
Staðreyndin er þó sú að allir
nútímavæddir herir reiða sig á
gervihnetti í miklum mæli og
vitað er að helstu keppinautar
Bandaríkjamanna á alþjóða-
vettvangi, Rússar og Kínverj-
ar, hafa þróað með sér sérstaka
gervihnetti sem hafa það eina
hlutverk að granda öðrum
gervihnöttum, ef kemur til
átaka. Passa þeir illa við yfir-
lýsingar Kínverja um friðsama
nýtingu geimsins.
Vitanlega er nokkur munur á
því að þróa slíka „and-gervi-
hnetti“ og hinu að standa að
stórfelldri hernaðaruppbygg-
ingu í geimnum. En það er ekki
þar með sagt að það geti ekki
verið hyggilegt að huga betur
að því hvernig eigi að verjast
vá úr þeirri áttinni. Stóra
spurningin er þá kannski frem-
ur hvernig slíkt yrði gert, án
þess að hrundið verði af stað
vígbúnaðarkapphlaupi í geimn-
um.
Trump stofnar nýja
herstjórn fyrir geim-
inn}
Óhjákvæmilegt kapphlaup?
Á
ður en Alþingi fór í frí yfir jól og
áramót voru smádeilur um afdrif
samgönguáætlunar. Stjórnar-
meirihlutinn vildi drífa sam-
gönguáætlun í gegn sem hefði svo
sem alveg getað gengið eftir þar sem búið var
að fara yfir málið með mörgum umsagnarað-
ilum og kíkja í flest horn. Í vikunni áður en það
átti að klára að afgreiða málið gerir stjórnar-
meirihlutinn grundvallarbreytingu á for-
sendum áætlunarinnar. Þá er tilkynnt að sam-
gönguáætlun verði uppfærð á næsta ári og
breytingarnar verði fjármagnaðar með veg-
gjöldum á öllum leiðum út af höfuðborgarsvæð-
inu og á nokkrum öðrum stöðum til viðbótar.
„Það er nánast undantekningarlaust sem þessi
leið hefur verið rædd við menn og hvort þeir
gætu hugsað sér að flýta framkvæmdum með
því að fara þessa leið,“ sagði Jón Gunnarsson á Alþingi
þegar áætlanir meirihlutans um samgönguáætlun voru
ræddar. Það er að hluta til rétt, smáútúrsnúningur í þess-
um orðum eins og pólitíkusum er einum lagið. Þeir gestir
sem komu fyrir nefndina voru almennt ekki á móti því að
flýta einstaka framkvæmdum með veggjöldum, þá var oft
minnst á Hvalfjarðargöngin sem vel heppnað dæmi og
Vaðlaheiðargöng sem dæmi sem gengi líklega ekki upp.
Aðalatriðið var að þær forsendur sem stjórnarmeiri-
hlutinn var að leggja til voru miklu meiri en einstakar
veggjaldaframkvæmdir. Gjaldtaka í kringum allt höfuð-
borgarsvæðið og í flestum göngum landsins. Meiri háttar
breytingar á fjármögnun samgöngukerfisins, án þess að
gefa hagsmunaaðilum, borgurum landsins,
tækifæri til þess að gera athugasemd við mál-
ið. Það tókst hins vegar að fresta afgreiðslu
samgönguáætlunar þangað til í lok janúar. Það
þýðir að þú hefur nú tækifæri til þess að láta
skoðun þína í ljós í þessu máli. Það er mjög ein-
falt að gera. Þú sendir tölvupóst á nefndar-
svid@althingi.is með fyrirsögninni: „Umsögn
um Samgönguáætlun, mál 172 og 173“, nafn-
inu þínu og athugasemd sem getur þá verið
annaðhvort „Ég andmæli áformum um álagn-
ingu veggjalda eins og þær koma fram í for-
sendum meiri hluta umhverfis- og samgöngu-
nefndar“ eða „Ég styð áform um álagningu
veggjalda eins og þær koma fram í forsendum
meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar“.
Einnig getur þú farið á vefsíðuna https://
sites.google.com/view/veggjold og smellt á
annan hvorn takkann sem þar er að finna til þess að auð-
velda þér umsögnina.
Við skuldum ansi mikið í uppbyggingu samgöngu-
kerfisins eftir hrunið. Vissulega getum við fjármagnað það
með veggjöldum en það eru margar aðrar leiðir til þess
líka. Sem dæmi þá kosta þær framkvæmdir sem stjórnar-
meirihlutinn býst við að fara í um 5 milljarða á ári. Á sama
tíma lækkar stjórnin skatta um tæpa 12 milljarða. Það
væri auðvelt að lækka skatta aðeins minna og fjármagna
samgönguskuldina. Hvað finnst þér?
Björn Leví
Gunnarsson
Pistill
Viltu veggjöld?
Höfundur er þingmaður Pírata.
bjornlevi@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Verónika Steinunn Magnúsd.
veronika@mbl.is
Vinnueftirlitið hefur undan-farna daga bannað vinnu áþremur stöðum og lagtdagsektir á eitt fyrirtæki
vegna slæms aðbúnaðar starfsmanna.
Er um að ræða Húsfélag alþýðu, Síld
og fisk ehf., Fylki ehf. og Hamrafell
ehf., en ákvarðanir Vinnueftirlitsins
eru birtar á heimasíðu stofnunar-
innar.
Við eftirlitsheimsókn Vinnueftir-
litsins í Vesturbergi 195 í Reykjavík
hinn 13. desember síðastliðinn, þar
sem fyrirtækið Fylkir ehf. er með
framkvæmd, kom í ljós að veigamikil
atriði varðandi aðbúnað starfsmanna
og öryggisatriði voru í ólagi. Var öll
vinna á vinnusvæðinu í kjölfarið bönn-
uð þar sem „lífi og heilbrigði starfs-
manna var hætta búin,“ að því er seg-
ir í eftirlitsskýrslu Vinnueftirlitsins.
Þá voru einnig merki um að starfs-
menn sofi og hafist við á umræddum
verkstað.
„Fallvarnir á verkpalla við húsið
eru ófullnægjandi. Handrið og fall-
varnir á verkpalla vantar á öllum stöð-
um. Slíkt skapar slysahættu fyrir
starfsmenn,“ segir einnig í skýrslu
Vinnueftirlitsins, en fyrirtækið Fylkir
ehf. hafði heldur ekki gert skriflega
áætlun um öryggi og heilbrigði sem
meðal annars á að fela í sér sérstakt
áhættumat með tillit til öryggis og
heilsu starfsmanna.
Hættuleg hnífaslípivél
Við eftirlitsheimsókn Vinnueftir-
litsins í fyrirtækið Síld og fisk ehf. í
kjölfarið á slysi sem átti sér stað hinn
12. desember sl. kom í ljós að aðbún-
aður, hollustuhættir og öryggi starfs-
manna var ekki í samræmi við lög og
reglur. Enginn neyðarstöðvunarbún-
aður var á hnífaslípivél og því var
vinna við vélina bönnuð þar til við-
eigandi úrbætur hafa verið fram-
kvæmdar.
„Ekki er til staðar ásættanleg
vinnuaðstaða við
DICK-hnífaslípunarvél til að undir-
búa slípun á hnífum, heldur fram-
kvæma starfsmenn þá vinnu á gólfinu.
Hafa ber í huga að verið er að vinna
með flugbeitta hnífa og mikilvægt er
að aðstaða til að vinna með sé þá góð
og örugg,“ segir í skýrslu Vinnueftir-
litsins, en vél sem þessi skal einnig
hafa minnst einn neyðarstöðvunar-
búnað til að unnt sé að afstýra
ríkjandi eða yfirvofandi hættuástandi.
Við eftirlitsheimsókn Vinnueftir-
litsins í kjallarabyggingu Húsfélags
alþýðu, sem hýsir aflagða olíukatla og
miðlunartanka undir húsum nr. 18 og
20 við Hofsvallagötu, kom í ljós að
búnaðurinn er klæddur með ein-
angrun sem inniheldur asbest. Öll
vinna í kjallarabyggingunni var því
bönnuð þar sem um asbestvinnustað
er að ræða
„Öll vinna við að fjarlægja slíkt
asbest er mjög hættuleg,“ segir í
skoðunarskýrslu Vinnueftirlitsins.
Fyrirtækjum þessum er gefinn
kostur á því að framkvæma úrbætur
og þá metur Vinnueftirlitið hvort fyrr-
greindum bönnum skuli aflétt.
Fóru ekki eftir tilmælum
Hinn 13. desember 2018 ákvað
Vinnueftirlitið að leggja dagsektir á
fiskvinnsluna Hamrafell ehf. vegna
vanrækslu við að fara eftir fyrir-
mælum stofnunarinnar um úrbætur á
aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi
starfsmanna. Dagsektirnar námu
90.000 krónum á dag.
Mál þetta hófst með reglubund-
inni skoðun eftirlitsmanns Vinnueft-
irlitsins í fiskvinnslu Hamrafells ehf. á
Hvaleyrarbraut 31 í Hafnarfirði 29.
nóvember 2017. Voru í kjölfarið veitt
fyrirmæli þess efnis að læsingarbún-
aður skyldi vera þannig útbúinn að
hægt væri að opna kæli- og frystiklefa
innan frá og að setja skyldi nema fyrir
ammoníak í frysti/kæliklefa eftir fyr-
irmælum frá framleiðanda. Ekki var
farið eftir þessum tilmælum og voru
því lagðar dagsektir á fyrirtækið.
Slysum fjölgað undanfarin ár
Guðmundur Kjerúlf, aðstoðar-
deildarstjóri hjá Vinnueftirlitinu, seg-
ir vinnuslysum hafa fjölgað en þau séu
einkum algeng í fiskvinnslufyrir-
tækjum og öðrum iðnfyrirtækjum.
„Þessum slysum hefur verið að fjölga
síðustu ár, því miður,“ segir Guð-
mundur. Hann segir slysin of algeng í
iðnfyrirtækjum, þar sé öryggisbún-
aður oft ekki til staðar og að dæmi séu
um að hlífar á vélunum séu fjar-
lægðar.
„Menn fjarlægja öryggishlífar á
vélunum því þeir telja sig geta grætt
einhvern hraða við það. Svo eru til
dæmi þess að starfsmaður sjái eitt-
hvað, til dæmis fast kjötstykki í vél-
inni eða eitthvað því um líkt, og fari
með hönd að vélinni til að fjarlægja
það. Þá verða oft mjög alvarleg slys,“
segir Guðmundur.
Hann segir einnig algengt að
gamlar vélar uppfylli ekki öryggis-
kröfur og þær nýju séu líklegri til að
uppfylla þær. „Það þarf að uppfæra
þær miðað við öryggiskröfur sem
settar eru í dag.“
Vinnueftirlitið vinnur nú að út-
gáfu nýs bæklings sem vekja á athygli
á öryggisbúnaði vinnuvéla.
Vinnubann og sektir
vegna trassaskapar
Morgunblaðið/Eggert
Framkvæmdir Vinnueftirlitið sér um úttektir á vinnustöðum og bregst
við fari fyrirtæki ekki eftir settum tilmælum. Mynd tengist efni óbeint.