Morgunblaðið - 20.12.2018, Qupperneq 47
47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
Kampakátir Það fór vel á með þeim vinunum og fyrrum hljómsveitarmeðlimum Sykurmolanna, Braga Ólafssyni og Einari
Erni Benediktssyni, þegar þeir hittust í gleðinni sem haldin var í gærkvöldi í tilefni af því að Smekkleysa flutti í nýtt húsnæði.
Hari
Tekjur sveitarfélagana af fasteigna-
sköttum hafa aukist gífurlega á undan-
förnum árum. Nú er svo komið að aldr-
ei í sögunni hafa sveitarfélögin á
Íslandi haft jafnmiklar tekjur á hvern
íbúa af þessum skattstofni. Að meðal-
tali greiðir hver Íslendingur 70% meira
í fasteignaskatt á árinu 2018 en hann
gerði fyrir tuttugu árum. Fasteigna-
skattarnir eru ekki aðeins háir í sögu-
legu samhengi, heldur eru þeir einnig
mun hærri en í þeim löndum sem við
berum okkur oftast saman við. Fast-
eignaeigendur greiða þessi árin um
1,5% af vergri landsframleiðslu í fast-
eignaskatta, en það er næstum því tvö-
falt hærra hlutfall en meðaltalið í hin-
um ríkjum Norðurlandanna.
Flest sveitarfélög
með hámarksálagningu
Samkvæmt lögum er hámarks-
álagning fasteignaskatts á atvinnu-
húsnæði 1,65% af fasteignamati. Lang-
flest sveitarfélögin nýta sér þetta
hámark, en eins og staðan er núna er vegin meðalskattprósenta fast-
eignaskatts einungis 0,02% frá mögulegri hámarksálagningu. Hún
hefur farið hækkandi á síðustu árum þar sem fleiri sveitarfélög hafa
fært skattprósentuna upp í leyfilegt hámark.
Reykjavík sker sig úr
Þó að flest sveitarfélög nýti sér lagaheimildina til hins ýtrasta,
sker Reykjavíkurborg sig úr, þar sem rúmlega helmingur af heild-
arverðmæti atvinnuhúsnæðis á landinu er í höfuðborginni. Reykja-
vík leggur eins háa fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði og lög leyfa.
Því rennur meirihluti þeirra skatta sem innheimtir eru á landinu í
formi fasteignaskatts til borgarsjóðs Reykjavíkur.
Áhrif á leiguverð atvinnuhúsnæðis
Hin gífurlega hækkun fasteignaskatta undanfarin ár, samhliða
mikilli hækkun fasteignamats, hefur þegar haft veruleg áhrif á
leiguverð atvinnuhúsnæðis til hækkunar. Fasteignaskattarnir hafa
mjög íþyngjandi áhrif á rekstur fasteignafélaganna og hafa þar með
leitt af sér verulega hækkun á leiguverði atvinnuhúsnæðis. Áhrif
þessa eru augljóslega mest í Reykjavík, þar sem stærstur hluti at-
vinnuhúsnæðisins í landinu er.
Hin aðkallandi spurning er því þessi: Vilja borgaryfirvöld stuðla
að bættu rekstrarumhverfi fyrirtækjanna í borginni, með myndar-
legri lækkun fasteignaskatta? Ef þau með athöfnum sínum svara
spurningunni neitandi, eru borgaryfirvöld að senda þau skilaboð að
fyrirtæki skuli frekar hasla sér völl utan höfuðborgarinnar, eigi þau
kost á slíku.
Eftir Andrés Magnússon
» Að meðaltali
greiðir hver
Íslendingur 70%
meira í fast-
eignaskatt á
árinu 2018 en
hann gerði fyrir
tuttugu árum.
Andrés Magnússon
Höfundur er framkvæmdastjóri SVÞ.
Fasteignaskattar
í hæstu hæðum
Það var vel til fundið hjá bar-
áttumönnum gegn loftslagsógn-
inni að velja kolaborgina Katowice
sem fundarstað fyrir COP24 sem
er skammstöfun fyrir 24. ráð-
stefnu aðila að loftslagssamningi
Sameinuðu þjóðanna (Conference
of the Parties ...) sem samþykktur
var í Río de Janeiro 1992. Fyrsti
ársfundurinn (COP1) var haldinn í
Berlín 1995 þar sem stefna var
tekin á Kyoto-samkomulagið sem
lagður var grunnur að á COP3 í
japönsku borginni Kyoto. Með því náðist áfangi
í loftslagsbaráttunni sem lýkur árið 2020 en þá
tekur við samkomulagið kennt við París. Jarð-
efnaeldsneyti, kol og olía, er megindriffjöður
loftslagsbreytinganna og kolaborgin Katowice
er táknræn fyrir þá ógn sem af þeim stafar.
Einróma samþykkt 195 ríkja um síðustu helgi á
niðurstöðu ráðstefnunnar í Katowice er von-
arneisti í þeim krappa dansi sem framundan er
og telja verður stærstu sameiginlegu áskorun
mannkyns hingað til. Með henni eru jafnframt
send kröftug skilaboð til þeirra mörgu sem
hingað til hafa lokað augunum fyrir því aug-
ljósa, með Trump forseta USA í fararbroddi.
Viðmið og áfangar innan seilingar
Parísarsamkomulagið frá 2015 var ákall sem
nú hefur fengið ákveðið innihald sem beinist að
hverju ríki og Sameinuðu þjóðunum sem vökt-
unaraðila. Á tveggja ára fresti frá og með 2020
skulu stjórnvöld í hverju landi tilgreina ráðstaf-
anir sem þau muni grípa til svo dregið verði úr
losun gróðurhúsalofts með örugglega mælan-
legum aðferðum. Á fimm ára
fresti frá og með árinu 2023 verð-
ur skorið úr um hvert stefni í
heildarlosun á jörðinni og jafn-
framt um frammistöðu einstakra
ríkja samkvæmt markmiði sem
þau sjálf hafa sett sér. Frá og með
2025 eiga iðnríkin, og eftir atvik-
um þróunarríki, að endurmeta
fjárhagsaðstoð sína til að draga úr
hættu af loftslagsbreytingum og
til að þróa nýja orkugjafa. Aðeins
þau ríki sem leggja sitt af mörkum
til að draga úr losun fá leyfi til að
stunda alþjóðaviðskipti með CO2-
kvóta. Margir spyrja sig hvernig tryggja eigi að
ríki fylgi settum reglum. Svarið frá Katowice
vísar á óbeint aðhald sem felist í fordæmingu
þeirra sem svíkjast undan merkjum auk þess
sem þau útiloka sig frá viðskiptum með losunar-
kvóta.
Falleinkunn ríkjandi efnahagskerfis
Skilaboðin frá París og Katowice snúa beint
að núverandi efnahagskerfi heimsins, þar sem
róttækar breytingar verða að koma til eigi ár-
angur að nást. Óbeint er hér verið að skora á
hólm kapítalisma frjálshyggjunnar sem magnað
hefur upp losun gróðurhúsalofts með ósjálfbær-
um efnahagsvexti, sólund auðlinda og tilfærslu
fjármagns á æ færri hendur. Það þarf ekki mik-
ið hugmyndaflug til að skynja að neyslukapp-
hlaupið gæti verið að renna sitt skeið og án
slíkra vatnaskila er afar ólíklegt að Parísar-
markmiðin náist. Forsenda þess að það takist er
að hægja svo um muni á hraðfara eyðingu nátt-
úruauðlinda og sjá til þess að vistvænn vöxtur
taki við. Viðfangsefnið er þeim mun snúnara en
ella vegna fyrirsjáanlega gífurlegrar fjölgunar
mannkyns eða um allt að 3,5 milljarða fram til
næstu aldamóta og lausnirnar þurfa af þeim
sökum að vera róttækari en ella. Vistfræðileg
sýn þarf með einum eða öðrum hætti að taka við
af hefðbundnum mælikvörðum kauphallanna
sem leggja fjárhagslegt mat á fyrirtæki og vaxt-
arhorfur. Eigi þetta að gerast með lýðræðis-
legum stuðningi fjöldans en ekki með einhliða
boðvaldi að ofan með vísan til neyðar þarf að
taka félagslega hlið með í reikninginn og þá með
jöfnuð að leiðarljósi. Það sýndu m.a. ótvírætt
nýleg átök í Frakklandi þar sem almennar verð-
hækkanir yfirvalda á orku með vísan til um-
hverfisbóta leiddu til fjöldamótmæla og voru
dregnar til baka.
Vakning meðal æskufólks vekur vonir
Vísbendingar eru um að meðal ungs fólks fari
skilningur vaxandi á þeim manngerðu að-
stæðum sem nú ógna framtíð lífs á jörðinni. Um
þetta bera vott fjöldasamtök ungmenna sem
létu til sín heyra í aðdraganda ráðstefnunnar í
Katowice. Rödd sænsku stúlkunnar Greta
Thunberg hefur borist víða, þar sem hún sagði
að breyta yrði leikreglunum strax ef unnt ætti
að reynast að bjarga heiminum frá tortímingu.
Umhverfissinnar væru ekki að grátbiðja ráða-
menn um breytingar, heldur tilkynna þeim um
breytta tíma, keisarinn væri klæðlaus. Af öðr-
um en þó skyldum toga er frumkvæði barnafjöl-
skyldunnar á Djúpavogi sem hóf að hreinsa til á
heimilinu nú fyrir jólin og fargaði að sögn yfir
2.000 óþarfahlutum. Boðskapurinn er sláandi en
augljós. Almenningur í samfélagi sem okkar sit-
ur uppi með ókjör glingurs, m.a. fyrir börn, sem
markaðssamfélagið fær fólk til að kaupa með
prangi og auglýsingum. Eigi breytt sjónarmið
að ná fótfestu á skömmum tíma þarf samfélagið
að leggjast á eitt, foreldrar í samvinnu við skóla-
kerfið og sjálft æskufólkið á ýmsum stigum.
Hér er vistfræðileg upplýsing og tengsl við
náttúruna lykilatriði en jafnframt breyttar leik-
reglur á vinnumarkaði og í viðskiptalífinu. Hóf-
stilling á hátíðum og í afmælum barna ætti að
taka við af sólund og ofhlæði, að ekki sé talað
um flugeldafár áramótanna hérlendis.
Minna og jafnara eru lausnarorðin
Mannkynið stendur á merkilegum tímamót-
um. Tækniþróun í krafti hugvits er að skila eld-
flaugum til annarra reikistjarna, en sjálft situr
það eftir í ráðleysi og rugli á eigin plánetu.
Frumstæðar hvatir tengdar eigingirni ráða víða
för og leikreglum. Órar um annað líf eftir dauð-
ann og spámenn aftan úr öldum skipta þjóðum
og álfum í fylkingar. Bardagafýsn og tortryggni
réttlæta vopnakapphlaup nú sem aldrei fyrr.
Samhliða Parísarsamkomulagi sem vekur vonir
um að afstýra megi syndaflóði er þörf á endur-
skoðun á stefnum og ríkjandi gildum. Þar þarf
hófstilling og náungakærleikur að eiga athvarf
og óskir um minna og jafnara þegar kemur að
efnislegum gæðum.
Eftir Hjörleif Guttormsson » Skilaboðin frá París og
Katowice snúa beint að
núverandi efnahagskerfi
heimsins, þar sem róttækar
breytingar verða að koma til
eigi árangur að nást.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Eftir Katowice: Loftslagsógnin af mannavöldum
breytir öllum viðmiðunum