Morgunblaðið - 20.12.2018, Page 50
50 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
Í J Ó L A P A K K A N N
Stjórnvöld og fag-
aðilar innan mennta-
og velferðarþjónustu
hafa síðustu misseri
lagt ríkari áherslu á
að bregðast fljótt við
þegar börn og ung-
lingar sýna fyrstu
merki um náms-, til-
finninga- eða geð-
heilsuvanda. Starfs-
hópur í
Hafnarfjarðarbæ hefur síðustu tvö
árin unnið að því að þróa verklag
til að veita slíka þjónustu í tæka
tíð. Í framhaldi af þeirri vinnu var
verkefnið BRÚIN – barn – ráðgjöf
– úrræði, sett af stað. Helsta
markmið Brúarinnar er að auka
lífsgæði leik- og grunnskólabarna í
Hafnarfirði með snemmtækri
þjónustu. Þegar vandi barns fer að
gera vart við sig er fyrst í stað oft
hægt að nýta einföld úrræði í nær-
samfélagi barnsins, innan skólans,
félags-, skólaþjónustu eða innan
heilsugæslunnar. Þannig er reynt,
með náinni samvinnu ólíkra fagsv-
iða innan og utan sveitarfélagsins,
að koma í veg fyrir að börn og
unglingar þrói með sér fjölþættan
vanda.
Með Brúnni er áhersla lögð á
aukna þverfaglega þjónustu sem
fer fram í gegnum lausnateymi
leik- og grunnskólanna. Í lausna-
teymum sitja fagaðilar á vegum
skólans, ásamt ráðgjöfum frá fjöl-
skylduþjónustu, sálfræðingum og/
eða sérkennslufull-
trúa frá fræðslu- og
frístundaþjónustu.
Hlutverk lausna-
teyma er að kort-
leggja stöðu barns og
leita sameiginlegra
lausna, barni og fjöl-
skyldu þess til stuðn-
ings. Í lausnateymi er
nám, hegðun, þroski
og/eða líðan barns
rædd með samþykki
foreldra. Viðunandi
úrræði innan og utan
skólans eru virkjuð til að bregðast
snemma við erfiðleikum eða að-
stæðum barns. Unnið er eftir
þessari nálgun fyrst í stað í sjö
leikskólum og þremur grunn-
skólum Hafnarfjarðar. Skólarnir
taka þátt í þróun þessa nýja
vinnulags sem síðar verður inn-
leitt í alla leik- og grunnskóla
bæjarins. Þrír ráðgjafar hafa ver-
ið ráðnir til að tryggja verklaginu
og samstarfinu brautargengi.
Ekki er um tímabundið verkefni
að ræða heldur breytt verklag í
þjónustu við börn og fjölskyldur
hjá Hafnarfjarðarbæ.
Verklag Brúarinnar rímar vel
við áhersluþætti heilsueflandi
samfélags Hafnarfjarðar og ann-
arra samstarfsverkefna milli ríkis
og sveitarfélagsins. Hafnarfjarð-
arbær og Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu þróar um þessar mund-
ir vinnulag þar sem bregðast á
fyrr við aðstæðum barna og ung-
linga með áhættuhegðun. Einnig
eru samráðsteymi starfandi með
fagfólki Hafnarfjarðarbæjar,
heilsugæslustöðva og BUGL með
því markmiði að stytta boðleiðir
og þjónustu fyrir börn með
náms-, hegðunar- eða tilfinninga-
vanda. Hafnarfjarðabær vinnur
einnig að því að gera bæinn að
barnvænu sveitarfélagi í sam-
vinnu við UNICEF á Íslandi og
umboðsmanni barna. Einnig er
öflugt samstarf milli foreldra-
félaga, foreldraráða og fagfólks
bæjarins sem starfar í þágu barna
og ungmenna.
Brúin er nýsköpunar- og þróun-
arverkefni með skilgreindum
mælanlegum markmiðum. Vonir
standa til að aukin þverfagleg
nálgun í þjónustu við börn og
unglinga í Hafnarfirði og íhlutun
á fyrri stigum dragi úr þörf fyrir
aðkomu barnaverndar. Einnig að
kröfur um ítarlegar greiningar
minnki og færri börn í Hafnarfirði
þrói með sér fjölþættan vanda.
Aukin þjónusta við leik- og
grunnskólabörn í Hafnarfirði
Eftir Huldu Björk
Finnsdóttur » BRÚIN – barn –
ráðgjöf – úrræði.
Aukin samvinna fag-
aðila í nærumhverfi
barna í Hafnarfirði með
náms-, hegðunar- eða
tilfinningavanda.
Hulda Björk Finnsdóttir
Höfundur er félagsráðgjafi og verk-
efnastjóri (MPM) Brúarinnar, Fjöl-
skylduþjónustu Hafnarfjarðar.
hulda@hafnarfjordur.is
Við ætlum að ná
Heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna
til að auka lýðheilsu
og sjálfbærni í land-
inu. Heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna
um sjálfbæra þróun
voru samþykkt af öll-
um aðildarríkjum
Sameinuðu þjóðanna
árið 2015 og gilda til
ársins 2030. IOGT á Íslandi segir að
ein auðveldasta leiðin til að flýta
fyrir að við náum Heimsmarkmið-
inum sé einföld og kosti afskaplega
lítið. Framkvæmdin er eftirfarandi:
þeir sem ekki eru byrjaðir í neyslu
vímuefna, þar með talið áfengi,
draga það að byrja. Þeir sem eru
byrjaðir neyslu, draga úr henni. Til
þess að þetta gangi betur þarf sam-
félagið að vernda þá sem ekki eru
byrjaðir í neyslu, börn, ungmenni og
fullorðna. Samfélagið verður að við-
urkenna að það sé sjálfsagður val-
kostur einstaklinga að nota ekki
vímuefni. Samfélagið verður að
tryggja að þessi hópur sé laus við
þrýsting til að byrja. Áfengisiðn-
aðurinn beitir gríðarlegum þrýstingi
á samfélagið og einstaklinga að
byrja neyslu sem fyrst og neyta sem
mest. Meðvitað eða ómeðvitað taka
allt of margir aðrir þátt í þessum
þrýstingi, einstaklingar, fyrirtæki
og stofnanir. Samfélagið verður að
leggja þeim lið sem vilja minnka
neyslu sína eða hætta. Við verðum
að draga úr þeirri mýtu að allir
verði að nota vímuefni. Það er ekki
rétt staðhæfing að vímuefni verði að
vera hluti af íþróttaleikjum eða að
það þurfi vímuefni til
að skemmta sér eða að
það verði að nota vímu-
efni til að hlusta tónlist
og svo framvegis. Sam-
félagið verður að láta af
þessum þrýstingi og
viðurkenna að það ætla
sér ekki allir að nota
vímuefni. Þeir sem ætla
að draga úr neyslu eða
hætta verða að finna
stuðning okkar og með-
ferðaraðilar verða að fá
fjármagn til að tryggja þeim þjón-
ustu sem þurfa aðstoð. Áfengisiðn-
aðurinn og þeir sem vilja auka
neyslu á vímuefnum hafa aðeins eitt
að markmiði, það er að auka sinn
eigin hagnað. Það er tímabært að
við eflum samfélag okkar gegn þeim
gríðarlega þrýstingi sem iðnaðurinn
beitir okkur og komum í veg fyrir að
hann njóti þeirra forréttinda sem
hann hefur í dag. Til að við náum
sem fyrst Heimsmarkmiðunum
skulum við sameinast um að hindra
áfengisiðnaðinn í að auka aðgengi að
áfenginu, koma í veg fyrir að mark-
aðssetning áfengis verði leyfð og
hætta að þrýsta á neyslu.
Samfélagið í forgang
Eftir Aðalstein
Gunnarsson
Aðalsteinn Gunnarsson
» Þeir sem ekki eru
byrjaðir í neyslu
vímuefna, þar með talið
áfengi, draga það að
byrja. Þeir sem eru
byrjaðir neyslu, draga
úr henni.
Höfundur er framkvæmdastjóri
IOGT á Íslandi.