Morgunblaðið - 20.12.2018, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
RAYMOND WEIL söluaðilar:
Reykjavík: GÞ - skartgripir & úr, Bankastræti 12, s: 551-4007
Meba, Kringlunni, s: 553-1199 Meba, Smáralind, s: 555-7711
Kópavogur: Klukkan, Hamraborg 10, s: 554 4320
Hafnarfjörður: Úr & Gull, Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar, s: 565-4666
Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður, Hafnargötu 49, s: 421-5757
Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður, Glerártorgi, s: 462-2509
Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður, Austurvegi 11, s: 482-1433
Í Trúnó, nýrri þáttaröð Símans, fáum við að
kynnast nýrri hlið á þjóðþekktum tónlistar-
mönnum, en Raggi Bjarna er einn fjögurra
tónlistarmanna sem sýna á sér nýja hlið og aðr-
ir viðmælendur eru Gunnar Þórðarson, Högni
Egilsson og Mugison. Hugmynd og handrit að
þáttunum á Anna Hildur Hildibrandsdóttir og
verða þættirnir aðgengilegir í Sjónvarpi Sím-
ans Premium þann 21. desember.
„Ég sé hana, og bara, hvort ég hætti að spila
eða beið í hálftíma eftir pásu. En ég labbaði til
hennar og sagði bara við hana: Heyrðu elskan,
ég ætla bara að giftast þér,“ segir Raggi í nýrri
þáttaröð þegar hann lýsir því hvernig og hve-
nær hann hitti Helle Birthe Bjarnason. Ástina í
lífi sínu.
Raggi, Helle og Margret Seema Takyar,
leikstjóri og tökumaður þáttanna kíktu í síð-
degisþátt K100. Margrét Seema var sem fluga
á vegg hjá þeim hjónum um tíma og segir hún
þau yndisleg bæði tvö og því ekkert mál að
vera svona mikið í kringum þau hjónin. Heldur
þvert á móti, það hafi verið bæði gaman og
áhugavert að fá að fara inn á heimili þeirra
hjóna til að skyggnast á bakvið tjöldin og fá
sögurnar beint í æð. Eftir að hafa kynnst þeim
báðum nokkuð náið þá telur hún Helle ekkert
síður eiga þátt í velgengni Ragga. Þau séu
samheldin hjón og ást þeirra nær vel í gegn í
þættinum. hulda@k100.is
Raggi Bjarna og
Helle á Trúnó
Í Trúnó, nýrri þáttaröð Símans, fáum við að kynnast nýrri hlið á
þjóðþekktum tónlistarmönnum, en Raggi Bjarna er einn fjögurra
tónlistarmanna sem sýna á sér nýja hlið. Raggi, Helle eiginkona
hans og Margret Seema Takyar, leikstjóri og tökumaður þátt-
anna kíktu í síðdegisþátt K100.
K100/Hulda Bjarnadóttir
Sögustund Margrét Seema Takyar leikstjóri, hér fyrir miðju, hafði unun af því að vera í kring-
um þau heiðurshjón við tökur þáttanna, enda segir hún þau full af ástríðu og væntumþykju.
Samheldin hjón Raggi Bjarna og Helle eru
hér saman í hljóðveri K100 að segja frá þátt-
töku sinni í Trúnó þáttunum.