Morgunblaðið - 20.12.2018, Síða 56

Morgunblaðið - 20.12.2018, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018 RAYMOND WEIL söluaðilar: Reykjavík: GÞ - skartgripir & úr, Bankastræti 12, s: 551-4007 Meba, Kringlunni, s: 553-1199 Meba, Smáralind, s: 555-7711 Kópavogur: Klukkan, Hamraborg 10, s: 554 4320 Hafnarfjörður: Úr & Gull, Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar, s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður, Hafnargötu 49, s: 421-5757 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður, Glerártorgi, s: 462-2509 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður, Austurvegi 11, s: 482-1433 Í Trúnó, nýrri þáttaröð Símans, fáum við að kynnast nýrri hlið á þjóðþekktum tónlistar- mönnum, en Raggi Bjarna er einn fjögurra tónlistarmanna sem sýna á sér nýja hlið og aðr- ir viðmælendur eru Gunnar Þórðarson, Högni Egilsson og Mugison. Hugmynd og handrit að þáttunum á Anna Hildur Hildibrandsdóttir og verða þættirnir aðgengilegir í Sjónvarpi Sím- ans Premium þann 21. desember. „Ég sé hana, og bara, hvort ég hætti að spila eða beið í hálftíma eftir pásu. En ég labbaði til hennar og sagði bara við hana: Heyrðu elskan, ég ætla bara að giftast þér,“ segir Raggi í nýrri þáttaröð þegar hann lýsir því hvernig og hve- nær hann hitti Helle Birthe Bjarnason. Ástina í lífi sínu. Raggi, Helle og Margret Seema Takyar, leikstjóri og tökumaður þáttanna kíktu í síð- degisþátt K100. Margrét Seema var sem fluga á vegg hjá þeim hjónum um tíma og segir hún þau yndisleg bæði tvö og því ekkert mál að vera svona mikið í kringum þau hjónin. Heldur þvert á móti, það hafi verið bæði gaman og áhugavert að fá að fara inn á heimili þeirra hjóna til að skyggnast á bakvið tjöldin og fá sögurnar beint í æð. Eftir að hafa kynnst þeim báðum nokkuð náið þá telur hún Helle ekkert síður eiga þátt í velgengni Ragga. Þau séu samheldin hjón og ást þeirra nær vel í gegn í þættinum. hulda@k100.is Raggi Bjarna og Helle á Trúnó Í Trúnó, nýrri þáttaröð Símans, fáum við að kynnast nýrri hlið á þjóðþekktum tónlistarmönnum, en Raggi Bjarna er einn fjögurra tónlistarmanna sem sýna á sér nýja hlið. Raggi, Helle eiginkona hans og Margret Seema Takyar, leikstjóri og tökumaður þátt- anna kíktu í síðdegisþátt K100. K100/Hulda Bjarnadóttir Sögustund Margrét Seema Takyar leikstjóri, hér fyrir miðju, hafði unun af því að vera í kring- um þau heiðurshjón við tökur þáttanna, enda segir hún þau full af ástríðu og væntumþykju. Samheldin hjón Raggi Bjarna og Helle eru hér saman í hljóðveri K100 að segja frá þátt- töku sinni í Trúnó þáttunum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.