Morgunblaðið - 20.12.2018, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 20.12.2018, Qupperneq 61
MINNINGAR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018 ✝ Grettir Pálssonfæddist á Ísafirði 6. ágúst 1935. Hann lést á lungnadeild Landspítalans 11. desember 2018. Foreldrar hans voru Halldóra Dani- valsdóttir frá Litla- Vatnsskarði, Húna- vatnssýslu, f. 10. ágúst 1909, d. 7. mars 1999, og Páll Einars- son frá Borgarholti í Stokkseyr- arhreppi, Árnessýslu, f. 27. ágúst 1904, d. 1. janúar 1958. Þau skildu. Alsystir er Hall- gerður Pálsdóttir, f. 10. febrúar 1943, d. 28. nóvember 1993. Sammæðra systkin eru Auður og Erna Guðmundsdætur, sem nú eru látnar. Samfeðra systk- ini eru Guðríður, Ruth, Guð- björg og Guðrún Pálsdætur. Grettir trúlofaðist Þóru Eyja- lín Gísladóttur, f. 24. júlí 1937, d. 7. maí 2007, og saman eign- uðust þau Gísla Grettisson, f. 9. Grettisdóttur, f. 7. mars 1961. Barnsfaðir Kristján Bragason, f. 19. janúar 1962, d. 21. maí 2008, eignuðust þau Sigrúnu Ýr Kristjánsdóttur, f. 29. ágúst 1979, fyrrverandi maki Timothy Bronson, f. 10. september 1981. Saman eiga þau Alexander Ant- hony Bronson, f. 3. desember 2005. Núverandi maki Everage Richardson, f. 23. desember 1985, saman eiga þau Halldóru Zoé Richardson, f. 27. janúar 2017. Þórdís giftist Heimi Jóns- syni, þau skildu, saman eign- uðust þau tvö börn 1) Gretti Heimisson, maki Sólveig Ása B. Tryggvadóttir, f. 10. september 1984. Eiga þau Tryggva Grett- isson, f. 16. júní 2017. 2) Oddný Heimisdóttir, f. 23. júlí 1987, maki Daníel Trausti Róberts- son, f. 7. janúar 1989. Á hún tvö börn úr fyrra sambandi með Markúsi Má Efraím Sigurðs- syni, f. 12. janúar 1982, 1) Úlfur Kalman Markússon, f. 24. októ- ber 2011. 2) Baltasar Bragi Markússon, f. 15. júlí 2014. Útför Grettis fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 20. des- ember 2018, klukkan 15. apríl 1955, maki Esther Eygló Ingibergsdóttir, f. 16. febrúar 1960. Saman eiga þau þrjú börn. 1) Þóra Eyjalín Gísla- dóttir, f. 1. októ- ber 1976, d. 6. febrúar 2012, barnsfaðir Björn Bjarnason, f. 9. maí 1971, eiga þau soninn Gísla Björnsson, f. 26. júlí 1993. 2) Ingibergur Gíslason, f. 15. febr- úar 1982. Maki Guðrún Hrönn Logadóttir, f. 4. mars 1986. Saman eiga þau tvö börn, Júlíu Klöru Ingibergsdóttur, f. 3. júní 2007, og Ágúst Jökul Ingibergs- son, f. 30. júlí 2009. 3) Gunn- laugur Stefán Gíslason, f. 30. maí 1989. Grettir kvæntist Oddnýju Jakobsdóttur úr Þingeyjarsýslu þann 7. apríl 1963. Saman eiga þau dótturina Þórdísi Körlu Elsku pabbi, eins mikið og ég sakna þín þá varstu svo tilbúinn og sáttur við að fara. Við áttum svo innilegt og gott samtal þar sem við töluðum mjög opið um hvað væri framundan, þar á meðal í sambandi við mömmu sem þú hafði mestar áhyggjur af. Við tókum ákvörðun sem við vorum bæði fullsátt með. Elsku pabbi, við höfum farið í gegnum mörg tímabil í blíðu og stríðu. En það sem stendur upp úr þessu öllu er að þú varst kletturinn í mínu lífi. Eftir að þú fékkst rétta meðhöndlun á þínum sjúkdómi fyrir 40 árum þá urðu mikil kaflaskil í okkar lífi, ég þá 16 ára og þú áttaðir þig á að það þurfti að aga þessa stelpu sem hafði fengið að stjórna sér. Ég var sko ekki alltaf sátt en mikið er ég þakk- lát í dag eftir að ég varð móðir og rausnarlegri afa hefði ég ekki getað hugsað mér. Þú kenndir mér og upplýstir börnin mín hvernig á að lifa. Og það hefur skilað sér til barna minna og svo sannarlega hefur ræst úr þeim og þú átt stóran þátt í því. Eitt stendur svo upp úr, þeg- ar þú fórst í meðferð til Banda- ríkjanna þá skrifaðir þú mér bréf og ég sagði við mömmu: hann pabbi á aldrei eftir að drekka aftur. Ég var svo sann- færð. Þú varst, þrátt fyrir þinn sjúkdóm, alltaf heiðarlegur og þess vegna oft dæmdur. Heið- arlegri manni hef ég ekki kynnst. Stundum var það mjög óþægilegt, að mér fannst. Þegar upp er staðið var það alltaf best. Ég hitti sambýlismann minn, Pétur Run, fyrir níu árum og þú varst svo sannfærður um að betri mann gæti ég ekki fengið, þrátt fyrir hans sjúkdóm og föllin þá stóðstu alltaf með okk- ur. Þótt það hafi gengið mikið á þegar ég var lítil þá fékk ég svo mikla ást frá þér og mömmu og ömmum mínum. Það er ég endalaust þakklát fyrir. Ein minning úr æsku sem er mér mjög kær er þegar þú stóðst upp og fórst með þennan texta með mikilli tilfinningu: Það var eitt kvöld að mér heyrðist hálfvegis barið, ég hlustaði um stund og tók af kertinu skarið, ég kallaði fram, og kvöldgolan veitti mér svarið: Hér kvaddi Lífið sér dyra, og nú er það farið. (Jón Helgason) Þú varst alltaf með svo sterka nærveru og okkur mömmu finnst þú enn vera hér hjá okkur og gefa okkur styrk. Við elskum þig. Þín elskandi dóttir Þórdís. Afi fluttist með fjölskyldunni frá Ísafirði til Hafnarfjarðar þegar hann var um þriggja ára, en húsið þeirra brann til kaldra kola eftir að afi hafði leyft dúkkunum á heimilinu að reykja eldspýtur. Afi var með eindæm- um fallegt barn og keyrðu syst- ur hans stoltar um með hann í barnavagninum og leyfðu ein- ungis útvöldum að fá að kíkja í vagninn. Afi nýtti sér einnig glæsileika systra sinna en hann var smástrákur þegar hann fór af stað með bisness þar sem hann seldi myndir af systrum sínum til hermannanna og græddi þó nokkurn pening. Eft- ir grunnskóla fór afi til Svíþjóð- ar að læra rafvirkjun líkt og faðir hans gerði. Þegar heim var komið fór hann í Mennta- skólann á Laugarvatni og var í djasshljómsveit þar sem hann spilaði á saxófón. Hann var eitt- hvað farinn að sulla með vín á þessum tíma og gerði garðinn frægan með ýmsum uppátækj- um sem varð til þess að hann var oft vistaður í bæli, síðar nefnt Grettisbæli í höfuð á sjálf- um afa, Gretti Pálssyni, og fest- ist það nafn í mörg ár á eftir. Eftir tvö ár í ML flutti afi til Reykjavíkur þar sem hann klár- aði stúdentinn í Menntaskólan- um í Reykjavík, og útskrifaðist þaðan árið 1958. Á þessum ár- um spilaði afi í meistaraflokki í körfubolta með ýmsum félögum, m.a. KR og þótti hann efnileg- ur. Eftir MR lá leiðinn í lækn- isfræði við Háskóla Íslands og eftir tvö ár fór afi í lögræði en á lokaári í lögfræði veiktist hann illa af sínum sjúkdómi og flosn- aði upp úr námi. Næstu árin einkenndust af mikilli neyslu og varð afi edrú árið 1977 þegar hann fór í meðferð á Freeport í New York. Afi tók edrúmennskuna með trompi og tók þátt í að stofna SÁÁ og hefur bjargað mörgum mannslífum í gegnum þau sam- tök. Afi byggði upp prógramm- ið á Staðarfelli ásamt ömmu og töluðu þau um þann tíma sem einn besta tíma ævinnar. Eftir Staðarfell fór afi að vinna sem dagskrárstjóri á Vogi og setti meðal annars upp víkingapró- grammið þar. Afi hætti að vinna 67 ára gamall, en eins og hann sagði sjálfur þá hefði hann örugglega aldrei hætt ef hann hefði ekki verið orðinn svona slæmur í fótunum. Afi var einfaldlega besti afi í heimi og þegar við vorum lítil fannst okkur hann og amma vera merkilegasta fólk í heimi og skildum við barnabörnin hreinlega ekki af hverju hann var ekki forseti Íslands. Bestu minningarnar eigum við með afa og ömmu og voru þau hið fullkomna yin og yang. Amma alltaf svo ljúf og góð og dugleg að gefa gjafir á meðan afi var meira blátt áfram, óhræddur að koma hreint fram við alla og bestur í að gefa góð ráð. Það var alltaf best að kúra hjá afa hvort sem það var í Teigaselinu þar sem afi var að hlusta á útvarpið eða einhvers staðar úti á landi í pikknikk, en afi var alltaf tilbúinn með teppi í skottinu fyrir slíkt. Þá var spjallað við afa um allt milli himins og jarðar, afi vissi nefnilega allt. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og börnin mín. Betri afa er ekki hægt að hugsa sér. Ég elska þig og mun aldrei gleyma þér. Þín, Oddný. Grettir Pálsson, vinur minn og samstarfsmaður til margra ára, er látinn saddur lífdaganna 83 ára að aldri. Daginn áður hitti ég hann og þá var hann ekki bugaðri en svo að hann hló og við gerðum að gamni okkar. Hann horfðist í augu við dauð- ann vel vakandi og skýr og sagði mér að nóg væri komið að sinni. Ég óskaði honum til ham- ingju með 40 árin sem ég var búinn að ná og sagði honum að hann hefði átt mestan þátt í að svo fór. Við féllumst í faðma eins og hægt var og sögðum hvor öðrum hversu vænt okkur þætti um hvor annan. Grettir var einn af frum- kvöðlum SÁÁ og oft fremstur meðal jafningja á árunum 1977- 1997. Hann átti þátt í að koma meðferðinni á endurhæfingar- heimilinu að Sogni af stað 1978 með öðrum. Hann sá um og stjórnaði meðferðardagskránni sem miðaði að varanlegu bind- indi fyrir sjúklinganna í Reykja- dal frá janúar 1979 til júní sama ár. Hann mótaði meðferðina á Silungapolli sem dagskrárstjóri þar fram í nóvember 1980. Þá fór hann vestur í Dali og kom meðferðinni á Staðarfelli af stað í nóvember 1980. 1985 tók hann við dagskrárstjórnun á Sjúkra- húsinu Vogi og var það til starfsloka. Þegar ég hugsa til hans og eftirlifandi konu hans, Oddnýjar Jakobsdóttur, hvarflar hugurinn til áranna á Staðarfelli 1980- 1985. Ég sé í huga mér unga at- hafnamanninn Gretti Pálsson sem fór til Löngueyju í New York og náði í meðferðardag- skrá sem hann flutti til Stað- arfells og lét þýða hana orð fyr- ir orð. Kom meðferðinni að stað nær einn með konu sinni. Hann tók á móti mér og fjölskyldu minni þegar ég kom þangað að sinna störfum mínum fjórðu hverja viku. Hann var aldrei kyrr, fullur áhuga, lífsglaður, orkumikill og maður tókst allur á loft. Þar áttum við oft bestu stundirnar okkar saman ég og Hildur kona mín með þeim hjónum og þá var unnið og skapað langt fram á nótt. Hann hélt leiftrandi erindi fyrir sjúk- linga og starfsfólk og hreif alla með sér. Þegar ég hef dvalið við þess- ar minninga um stund hvarflar hugurinn enn aftar og ég sé í huga mér stórhuga mann fullan af eldmóði sem gerði áfengis- og vímuefnaráðgjöf fyrstur SÁÁ- manna að ævistarfi sínu. Ég minnist fyrstu kynna okkar þegar ég var sjúklingur hans á Sogni og hversu nærgætinn hann var við mig og góður þeg- ar ég laut lægst og átti erfiðast á ævi minni. Slíku gleymir mað- ur aldrei og þarna varð til var- anleg djúp vinátta og gagn- kvæm virðing. Ég sé þau hjónin á heimilinu sínu á Skólavörðu- stígnum þar sem við Hildur komum oft og leituðum uppörv- unar og stuðnings á fyrstu ár- unum okkar á batagöngunni. Hugsun okkar og samúð er hjá Oddnýju, börnum hans og barnabörnum en í hug okkar hjónanna lifir kær minning um góðan dreng Þórarinn Tyrfingsson, fyrrverandi formaður og yfirlæknir SÁÁ. Grettir Pálsson ✝ Páll Kristjáns-son fæddist á Siglufirði 12. des- ember 1937. Hann lést á heimili sínu 13. desember 2018. Foreldrar hans voru Kristján Ing- ólfur Sigtryggsson, f. 27. október 1906, d. 11. janúar 1982, og Aðalbjörg Páls- dóttir, f. 2. júní 1905, d. 15. ágúst 1979. Systkini Páls eru Steindór Hreinn, f. 26. des. 1928, d. 9. júní 1995, Páll, f. 15. mars 1931, d. 15. maí 1938, Sigtryggur, f. 12. mars 1933, og Ingibjörg Halldóra, f. 29. júní 1946. Unnusta Páls er Marianne Johannsson, f. 21. september 1951. Börn hennar eru Gunn- hildur M. Björgvinsdóttir, f. 28. apríl 1973, og Jóhann Björg- vinsson, f. 22. apríl 1977. Páll kvæntist 22. apríl 1962 Halldóru Guðrúnu Björns- dóttur, f. 16. júlí 1942, d. 21. ágúst 2006. Foreldar hennar voru Björn Júlíus Grímsson, f. 15. júní 1917, d. 21. júní 1968, og Soffía S. Björnsdóttir, f. 13. maí 1921, d. 29. mars 2007. Rakel Ýr, f. 16. janúar 1987, sambýlismaður Magnús Bene- diktsson, sonur þeirra er Balt- asar Breki. 3) Sigurlaug S., f. 17. janúar 1966, d. 4. júlí 2010, var gift Guðna Þór Þorvalds- syni, börn þeirra eru a) Páll, f. 21. júní 1985, sambýliskona Má- bil Þöll Guðnadóttir, dóttir þeirra er Amilía Birta og b) Sigurhildur, f. 28. nóvember 1997. 4) Anna Lilja, f. 29. júlí 1971, sambýlismaður Bjarki Jónsson, börn þeirra eru a) Anna Líney, f. 23. janúar 1992, sambýlismaður Kristófer Finns- son, b) Andri Kristján, f. 27. maí 1993, kvæntur Bergrósu Gígju Þorsteinsdóttur, c) Aron Snær, f. 20. febrúar 1997, d) Hildur f. 1. nóvember 2001, og e) Sara Lind, f. 18. janúar 2005. Páll ólst upp á Siglufirði og bjó þar lengi framan af eða þangað til fjölskyldan flutti á Tunguheiði í Kópavogi ári 1978. Hann stundaði sjó- mennsku nánast allt sinn líf, lengst af á sínum eigin bátum en hann var einnig farsæll skip- stjóri á stærri bátum. Frá árinu 1991 gerði hann út bátinn Dúan 6868 frá Reykjavíkurhöfn og var virkur þátttakandi í félags- starfi Smábátafélags Reykja- víkur og sat í stjórn félagsins um árabil. Páll verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 20. desember 2018, og hefst at- höfnin klukkan 13. Börn Halldóru og Páls eru: 1) Aðalbjörg, f. 7. janúar 1961, gift Steindóri Jóni Pét- urssyni, börn þeirra eru: a) Hall- dóra María, f. 17. ágúst 1978, sonur hennar er Ívan Dagur, b) Pétur Ágúst, f. 23. októ- ber 1982, kvæntur Úlfhildi Ævarsdóttur, börn þeirra eru Alís Ylfa og Stígur Ágúst, og c) Anna Lilja, f. 29. janúar 1993, sambýlismaður Freysteinn Smári Borgþórsson. 2) Björn, f. 17. desember 1961, kvæntur Berglindi Lúðvíks- dóttur börn þeirra eru: a) Lúð- vík Aron, f. 2. september 1979, sambýliskona Lis Ruth Klöru- dóttir, börn þeirra eru Karen Lind og Aron Logi, b) Halldóra Guðrún, f. 7. mars 1983, sam- býlismaður Agnar Guðmunds- son, synir þeirra eru Haukur Ingi, Andri Þór, Davíð Freyr og Björn Ísak, c) Sigríður Sæunn, f. 9. júlí 1984, sambýlismaður Jóhann Björgvinsson, börn þeirra eru Óðinn Þór, Viktoría Björt og Sebastían Máni, d) Elsku afi minn. Ég sakna þín svo sárt og allt er svo tómt nú þegar þú ert farinn. Ég kveð þig með tárin í augunum en ekki síður með hjartað fullt af þakk- læti. Þú varst einstakur á allan hátt og með hjarta úr hreinu gulli. Allir sem voru svo heppnir að fá að kynnast þér elskuðu þig og dáðu frá fyrstu mínútu. Við áttum svo margar góðar stundir og fórum saman í fjöldann allan af frábærum ferðalögum, hvort sem það voru heimsóknir á Siglufjörð á árum áður, útilegur eða ferðir í sólina á Tenerife, Kanarí og Flórída. Þú varst mikil fjölskyldumað- ur og alltaf óendalega stoltur af stóra hópnum þínum enda vissir þú fátt skemmtilegra en að fá alla til þín í veislu upp á Tungu- heiði. Þú varst duglegur að fylgjast með okkur öllum, bæði í leik og starfi, og íþróttaiðkanir langafabarnanna voru þér einnig hugleiknar. Þegar ég hélt upp á fertugs- afmælið mitt í sumar áttum við yndislegt samtal sem mér þykir svo vænt um. Eitt af því sem við töluðum um var sú skemmtilega staðreynd að þegar ég fæddist varst þú einmitt fertugur og því nákvæmlega helmingi eldri en ég á þessum tímamótum. Minningarnar eru óteljandi sem ég mun geyma í hjarta mínu um alla ævi. Þær fá mig til að brosa, hlæja og fylla mig þakklæti fyrir þann ómetanlega tíma sem við áttum saman og fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og kennt mér. Þú verður alltaf mín helsta fyrirmynd. Ég veit að amma Dóra og Lauga frænka hafa heldur betur tekið vel á móti þér og þú kyssir þær og knúsar frá mér. Hittumst á ný þegar minn tími kemur. Guð geymi þig, elsku afi minn. Við elskum þig. Þín Halldóra María og Ívan Dagur. Páll Kristjánsson ✝ Birgir Alfreðs-son fæddist á Framnesvegi í Reykjavík 30. nóv- ember 1934. Hann lést á Dvalarheim- ilinu Dalbraut 9. desember 2018. Birgir var elstur þriggja barna þeirra Alfreðs Ant- onsen bakara og Jónínu Guðrúnu Jónsdóttur húsfreyju. Systkini Birgis voru Hafdís Al- freðsdóttir, f. 12. maí 1947, d. 13. september 1990. Erla Alfreðs- dóttir, f. 15. maí 1949. Maki Erlu er Ásgeir Þorvaldsson og eiga þau þrjú börn. Birgir kvæntist Aðalheiði Halldórs- dóttur árið 1958 og eignuðust þau Ingi- björgu Jónu 19. des- ember 1957. Þau skildu. Ingibjörg á einn son, Sverri Halldór Valgeirsson, f. 1985. Útför Birgis fer fram frá Ás- kirkju í dag, 20. desember 2018, klukkan 13. Þá hefur Biddi frændi kvatt okkur eftir erfiða baráttu við krabbamein. Við munum auðvit- að eftir Bidda frá því vorum smá- krakkar og vorum við strákarnir varla fermdir þegar við byrjuðum að fylgja með í vinnuna og hand- langa. Hann var þolinmóður kennari og fengum við fljótlega að grípa í pensil og prófa okkur áfram. Svo kom að því að ákveða hvort þetta ætti að vera meira en bara helgarvinna. Samninga- fundurinn var minnisstæður því þá spurði Biddi hvað Unglinga- vinnan væri að borga. Svarið var 147 kr. á tímann. „Við dobblum það“ var svarið og samningar í höfn. Það endaði með því að báðir unnum við nánast öll unglingsár- in með honum að mála. Þorri þó öllu lengur, tók hjá honum sveins- prófið og starfar enn við málun. Biddi sagði skemmtilegar sög- ur, aðallega af sjálfum sér. Og af nógu var að taka. Gamlar og góð- ar sögur frá því hann var ungur maður og svo ferskar sögur beint frá ferðunum til Asíu. Annað þótti okkur skemmtilegt við As- íuferðirnar var að Biddi kom allt- af hlaðinn af gjöfum, raftækjum og græjum heim úr þessum ferð- um. Kjólar og dúkkur handa litlu systur og svo sérstaklega fín VHS-tæki og fyrsti bílageislaspil- arinn í Kópavoginum kom á frá- bærum tíma nokkrum vikum fyr- ir bílprófið hjá Þorra beint frá Singapúr. Auðveldlega frændi ársins það árið.Græjurnar voru klárlega sameiginlegt áhugamál okkar allra. Biddi hringdi oft og bað okkur að tengja eitthvað nýtt sem hann var að kaupa eða hjálpa honum að stilla inn sjónvarps- stöðvar eða með fjarstýringar. Svo oft að nágrannar hans fréttu af okkur og voru byrjaðir að hringja líka í okkur og spyrja hvað kostaði að setja upp sjón- vörp. Biddi var kær okkur öllum og verður hans saknað. Hvíl í friði, frændi. Þorvaldur, Hákon og Berglind. Birgir Alfreðsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.