Morgunblaðið - 20.12.2018, Qupperneq 62
62 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
NOKIAN stígvélabúðin | Mjóddinni | Reykjavík I Sími 527 1519 | Nokian Stígvélabúðin
Opið virka daga kl. 10.00-18.00
Loðfóðraður skófatnaður
fyrir veturinn
Jú, jólaundirbúningurinn er í fullum gangi, ég er að fara að sjóðarauðkál á eftir,“ segir Sesselja Jóna Ólafsdóttir aðspurð en hún á50 ára afmæli í dag. En fyrst ber að fagna afmælisdeginum. „Ég
verð í faðmi fjölskyldunnar með manninum mínum og tveimur yngri
dætrunum. Sú elsta býr í Grundarfirði svo það er smá spotti þaðan.“
Maður Jónu er Hermann Einarsson, húsvörður hjá Sláturfélagi Suð-
urlands á Hvolsvelli, og börnin hennar eru Elísabet Kristín, 26 ára, Lilja
Ósk, 16 ára, og Kamilla Ýr, 9 ára. Barnabarn Jónu er Kjartan
Alexander 4 ára.
Jóna er Stokkseyringur og kom aftur heim árið 2010, en hún flutti
þaðan 16 ára. „Ég er búin að eiga heima víða, ætli ég hafi ekki flutt 25
sinnum eða eitthvað álíka. Ég held ég nenni ekki að flytja oftar en mað-
ur veit aldrei.“ Á Stokkseyri býr líka fjölskyldan hennar, foreldrar og
systkini, fyrir utan einn bróður sem býr í Reykjavík.
Jóna hefur verið að stunda ýmis námskeið hjá VIRK, eins og tölvu-
námskeið, núvitundarnámskeið og önnur sjálfshjálparnámskeið og er
að leita sér að vinnu. Áhugamál hennar eru hestar, en hún á níu hesta,
prjónaskapur og útivist.
„Ég er aðallega að prjóna lopapeysur á mig og mína. Mér finnst gam-
an að fara í ferðalög á hestbaki og er í góðum kjarnahópi sem fer í
nokkurra daga ferðir upp á fjöll, allt upp í þrjár vikur. Næsta sumar er-
um við að hugsa um að fara upp með Rangárvöllum.“
Strútsstígur Jóna stödd við steinbogann á Syðri-Ófæru.
Komin heim á
æskuslóðirnar
Jóna Ólafsdóttir er fimmtug í dag
S
tefán Snær Konráðsson
fæddist í Keflavík 20.12.
1958 en ólst upp á nokkr-
um stöðum á landsbyggð-
inni þar sem foreldrar
hans voru kennarar, lengst af, frá níu
ára aldri, við Digranesveginn í Kópa-
vogi og gekk þá í Kópavogsskóla.
Hann fór síðan í Víghólaskóla, lauk
stúdentsprófi frá MK og útskrifaðist
frá Íþróttakennaraskólanum á Laug-
arvatni 1982.
Stefán kenndi við Grunnskólann í
Ólafsvík, MK og við grunnskólana í
Kópavogi 1982-86. Hann lauk BA-
prófi í íþróttastjórnunarfræði frá
Íþróttaháskólanum í Osló 1988.
Aðalstarfsvettvangur Stefáns hef-
ur verið í Laugardalnum í Reykjavík.
Hann starfaði í 18 ár hjá Íþrótta- og
ólympíusambandi Íslands, lengst af
framkvæmdastjóri, en þó með
tveggja ára hléi þegar hann var fram-
kvæmdastjóri KSÍ. Hann hefur verið
framkvæmdastjóri Getspár/
Getrauna frá 2007.
Stefán hefur verið mjög virkur í fé-
lagsstarfi tengdu íþróttum. „Frá því
á unglingsárunum hef ég sinnt
ábyrgðarstörfum fyrir íþróttahreyf-
inguna og hef unnið í ótal nefndum og
vinnuhópum er lúta að íþróttum. Þar
má nefna knattspyrnudeild Stjörn-
unnar, borðtennisdeild Stjörnunnar,
nefndir á vegum Evrópusambands
ólympíunefnda og vinnuhóp um Af-
rekssjóð ÍSÍ. Nú er ég formaður
íþróttanefndar ríkisins og sit í stjórn
Stefán Snær Konráðsson framkvæmdastjóri – 60 ára
Fjölskyldan Stefán og Valgerður með börnum, tegndabörnum og barnabörnum í Cape Town í Suður-Afríku.
Í íþróttum og Lottóinu
Golfkempur Fjórmenningaklíkan í Golfklúbbi íþróttaforystumanna, þeir
Lárus Blöndal, afmælisbarnið, Ellert B. Schram og Örn Andrésson.
Vaglar í
Skagafirði
Ísafold Kolka
Gísladóttir
fæddist 13.
mars 2018 kl.
00.58 á Sjúkra-
húsinu á
Akureyri. Hún
vó 3.444 g og
var 51 cm löng.
Foreldrar henn-
ar eru Gísli
Björn Gíslason
og María
Hjaltadóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is