Morgunblaðið - 20.12.2018, Síða 79
MENNING 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
Suspiria frá árinu 1977 erfyrir löngu orðin klassík íkvikmyndasögunni. Mynd-in tilheyrir stefnu sem köll-
uð hefur verið gula bíóið (ít. giallo
all’italiana), hugtak sem er notað
um ítalska spennutrylla og hryll-
ingsmyndir, og hún er þekktasta
mynd ítalska hryllingsmyndaleik-
stjórans Dario Argento. Hryll-
ingmyndaaðdáendur þekkja líklega
margar af hans frábæru myndum
eins og Profondo Rosso (1975), Te-
nebre (1982) og Phenomena (1985).
Suspiria er hins vegar mynd sem af-
ar þekkt fyrir utan költ-kreðsuna
og er jafnvel talin vera listabíó eins
og það gerist best.
Suspira fjallaði um ballerínuna
Suzy sem kemur til Þýskalands til
að fara í balletskóla. Frá upphafi er
ljóst að það er eitthvað bogið við
skólann og Suzy fer að gruna að
stjórnendur hans séu nornir. Su-
spiria er mynd sem skarar framúr
hvað varðar andrúmsloft og áferð.
Sviðsmyndin er mjög stílíseruð og
mikið notað af sterkum litum eins
og rauðum, bláum og grænum. Tón-
listin í myndinni, sem samin er af
hljómsveitinni Goblin sem vann oft
með Argento, er afar einkennandi
og er klassík út af fyrir sig.
Þegar það fréttist að endurgera
ætti myndina höfðu menn skiptar
skoðanir á því, eins og oft þegar
kvikmyndaperlur eru annars vegar.
Þegar hún var frumsýnd voru við-
tökur sömuleiðis afar mismunandi. Í
þessari nýju mynd er kosið, sem er
líklega fyrir bestu, að gera mynd
sem er afar ólík upprunaverkinu.
Myndin byggist vissulega á sögunni
í upprunaverkinu og hér er einnig
lögð ríkuleg áhersla á að skapa
magnað andrúmsloft með mynd- og
hljóðrænum aðferðum. En nýja
myndin er allt öðruvísi en sú fyrri
og nærtækara að tala um að hún sé
innblásin af fyrri myndinni, frekar
en að hún sé beinlínis endurgerð.
Aðalpersónan heitir eftir sem áð-
ur Susie (stafsett öðruvísi að vísu),
hún gengur til liðs við dansflokk í
Þýskalandi og starfmenn skólans
vaða í allskonar kukli. Hér er þó
kafað dýpra í söguna, baksaga Susie
og annarra fær t.d. meira vægi.
Nýjar persónur bætast við, örk
aldraðs sálfræðings að nafni Josef
Klemperer fær mikið pláss en hann
hyggst að uppræta mykraverkin
sem eiga sér stað í dansflokknum.
Þá verður Þýskaland einnig að hlið-
arumfjöllunarefni og áfallasaga
þjóðarinnar er áberandi í bak-
grunni.
Stjörnuteymi
Í Suspiria er valinn maður í hverju
horni. Stórleikkonan Tilda Swinton
á stjörnuleik í hlutverki danskenn-
arans Madame Blanc. Hún leikur
líka fleiri hlutverk, Tilda túlkar
einnig hina ógeðfelldu Helenu Mar-
kos sem er leiðtogi flokksins og
sömuleiðis leikur hún sálfræðinginn
Josef Klemperer. Þetta vissi ég
ekki fyrr en eftir á og það var væg-
ast sagt rosaleg uppgötvun, þar sem
hún er fullkomnlega óþekkjanleg í
gervi gamla mannsins. Áður en
myndin var frumsýnd fóru sögu-
sagnir á kreik um að Swinton léki í
raun Klemperer, en ekki huldumað-
urinn Lutz Ebersdorf sem var
skráður fyrir hlutverkinu. Aðstand-
endur reyndu lengi að bægja þess-
um kenningum frá en á endanum
kom hið sanna í ljós. Hér opinberast
í það minnsta enn á ný að Tilda
Swinton er ein besta leikkona í
heiminum. Hinir leikararnir eru líka
mjög góðir, þótt margir séu ekki
endilega þekkt nöfn. Áhorfendur
geta reyndar skemmt sér við að
koma auga á Jessicu Harper, sem
birtist í litlu kameó-hlutverki.
Leikstjóri myndarinnar er Luca
Guadagnino, sem leikstýrði einni
bestu mynd síðasta árs Call Me by
Your Name. Þessar tvær myndir
gætu vart verið ólíkari og ljóst að
Guadagnino er „alt muligt-maður“
sem getur gert hinum ýmsu kvik-
myndagreinum góð skil. Sem fyrr
er hann með tökumanninn stórkost-
lega Sayombhu Mukdeeprom sér
við hlið. Kvikmyndatakan í mynd-
inni er algjörlega frábær líkt og við
var að búast frá listamanni eins og
Mukdeeprom. Dans er að sjálfsögðu
miðlægur í sögunni og það endur-
speglast í myndavélahreyfingunum
sem flæða líkt og dansari, stundum
mjúklega og stundum harkalega.
Tónlistina semur Thom Yorke,
forsprakki sveitarinnar Radiohead.
Tónlistin er reglulega fín og hentar
myndinni vel þótt það sé auðvitað
erfitt að feta í fótspor Goblin sem
gerði svo íkoníska tónlist fyrir upp-
runamyndina. Í fyrri myndinni var
mikið unnið sem hvísl og raddir í
hljóðmyndinni og það er tekið jafn-
vel enn lengra hér, enda vísar titill-
inn í latneska orðið „suspiro“ sem
merkir andvarp eða útöndun. End-
urtekið magnast andvörp dansar-
anna og nornanna upp í másandi og
blásandi takt, sem er bæði áhrifa-
mikill og hrollvekjandi.
Danshöfundurinn Damien Jalet
er höfundur dansanna í myndinni.
Ólíkt fyrri myndinni, sem innihélt
ekki mikinn dans, er dansinn mjög
miðlægur og dansatriðin eru hreint
út frábær. Í einu atriði er einn
dansari sem dansar sjálfa sig til
dauða á hryllilegan hátt. Um miðja
mynd flytur dansflokkurinn dans-
verk og atriðið er svo svakalegt að
gæsahúðin svoleiðis rennur upp og
niður kroppinn. Ótrúlegt sjónarspil!
Dásamlegur djöfulgangur
Suspiria er uppfull af táknum. Í
nokkrum myrkum og heillandi mar-
traðasenum birast t.a.m. ógrynni
tákna. Vísanir í galdra og djöfla-
dýrkun eru áberandi, tákn eins og
fimmstirni og geitur. Kvenleg tákn
eru líka alltumlykjandi, enda mynd-
in mjög kvenmiðuð og nánast allar
persónur kvenkyns. Kvikmynda-
fræðingurinn Carol Clover sagði
eftirminnilega að „Þegar Satan birt-
ist í hryllingsmyndum eru kynfæri
kvenna aldrei langt undan“ og það
er svo sannarlega brugðið á leik
með þá hefð hér.
Það er ekki þar með sagt að þessi
tákn séu endilega auðlesin og sjálf-
sagt myndi það krefjast fleiri áhorfa
að rýna í þetta allt saman. Suspiria
er mynd sem skilur mann eftir með
nokkur spurningamerki í fartesk-
inu, það er ekki hlaupið að því að
botna í öllu sem gerist í henni og
þetta á vísast eftir að fara í taug-
arnar á sumum áhorfendum. Það
breytir því ekki að Suspira er
kynngimögnuð kvikmyndaupplifun
sem enginn ætti að missa af að sjá á
stóra tjaldinu.
Dans og djöfulgangur
Suspiria Kynngimögnuð kvikmyndaupplifun sem enginn ætti að missa af að sjá á stóra tjaldinu, að mati rýnis.
Bíó Paradís
Suspiria bbbbm
Leikstjóri: Luca Guadagnino. Handrit:
David Kajganich. Kvikmyndataka: Sa-
yombhu Mukdeeprom. Klipping: Walter
Fasano. Aðalhlutverk: Dakota Johnson,
Tilda Swinton, Tilda Swinton, Tilda
Swinton, Mia Goth, Angela Winkler. 152
mín. Bandaríkin, 2018.
BRYNJA
HJÁLMSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Gagnrýnandi klassískrar tónlistar
hjá hinum útbreidda og virta banda-
ríska fjölmiðli National Public Radio
velur plötur tveggja íslenskra lista-
manna á lista sinn yfir tíu bestu
klassísku plöturnar á árinu. Um er
að ræða flutning Víkings Heiðars
Ólafssonar á verkum eftir Johann
Sebastian Bach og plötuna Aequa
með flutningi International Contem-
porary Ensemble á tónverkum eftir
Önnu Þorvaldsdóttur.
Gagnrýnandinn Tom Huizenga
segir afar erfitt að skera klassísku
útgáfu ársins niður í aðeins tíu plöt-
ur. Hann útskýrir valið og segist
meðal annars velja eftirlætis tónlist-
armenn sína, og nefnir hann þar
Víking Heiðar sérstaklega.
Huizenga er ekki spar á lofið um
tónverk Önnu á Aequa. Einkenni
frábærs tónskálds, skrifar hann, sé
einkennandi hljómur. Og tónlist
Önnu þekkist samstundis, þótt að-
eins hljómi nokkrar nótur. Í verk-
unum sé hún undir áhrifum af nátt-
úrunni, þar á meðal fegurð Íslands,
þótt hún segist ekki endurspegla
náttúruna í tónlistinni. Þess í stað
leggi hún áherslu á þætti eins og
hlutföll og flæði. Engu að síður,
skrifar hann, geri sjónrænt eðli
verkanna og litadýrðin í þeim það að
verkum að þau gætu hæglega hljóm-
að í heimildamynd frá National
Geographic um Ísland. Eftir að hafa
lýst verkum á plötunni segir Hui-
zenga að hér sannist enn og aftur að
verk Önnu séu meðal þeirra athygl-
isverðustu í dag.
Í umfjöllun um Bach-plötu Vík-
ings Heiðars kemur fram að Hui-
zenga hreifst af plötu hans með
verkum Philis Glass. Hér takist Vík-
ingur síðan á við Bach, það tónskáld
sem hann hafi í hvað mestum met-
um. „Afrakstur þeirrar aðdáunar
birtist í hlýjum og gagnsæjum flutn-
ingi sem er persónulegur, ljóðrænn
og nákvæmur.“ Eftir að hafa lýst
einkennandi tökum Víkings á ólíkum
verkum skrifar rýnirinn að hann hafi
verið „kallaður „Glenn Gould Ís-
lands“ en það er í raun ekki sann-
gjarnt. Því hér birtist íhugull píanó-
leikari sem er algjörlega sjálfstæður
listamaður, og flytur verk meistara
síns með stórkostlegum hætti.“
Leikur Víkings og
tónverk Önnu valin
Anna
Þorvaldsdóttir
Víkingur Heiðar
Ólafsson
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Wave stólar
Fáanlegir í mörgum litum
Verð: 12.900 kr.
ICQC 2018-20