Fréttablaðið - 18.03.2019, Side 41
BÆKURNAR ERU
VISSULEGA
FORMÚLUKENNDAR EN
MARSONS MÁ EIGA ÞAÐ AÐ
HÚN KANN UPPSKRIFTINA
OG ÞAÐ ER BARA NÁKVÆM-
LEGA EKKI NEITT AÐ
GÓÐUM FORMÚLUREYFARA
ÞEGAR ÖLLUM HELSTU
HRÁEFNUM ER BLANDAÐ
SAMAN Í RÉTTUM HLUT-
FÖLLUM.
BÆKUR
Blóðhefnd
Höfundur: Angela Marsons
Þýðandi: Ingunn Snædal
Útgefandi: Drápa
Blaðsíður: 384
Breski rithöfundurinn Angela Marsons er af kastamikil í meira
lagi en reyfarar hennar um
rannsóknarlögreglukonuna
Kim Stone eru orðnir níu á
aðeins fjórum árum.
Fy rst a bók in, Þög u lt
óp, kom út 2015 og sló það
hressilega í gegn að Kim
hefur verið jafn frek til fjörs-
ins og raun ber vitni. Þótt
Marsons spili nú ekki alveg
í meistaradeild krimma-
höfunda eru þessar miklu
vinsældir hennar og Kim
hið besta mál vegna þess
að þrátt fyrir ýmsar brota-
lamir er engu logið um að
þessar bækur eru alvarlega
ávanabindandi.
Blóðhefnd er áttunda
bókin í f lokknum en sú
fimmta sem kemur út á íslensku og
sjálfsagt taka miklu fleiri en undir-
ritaður henni Kim fagnandi. Ekki
skyggir heldur á gleðina að þessi
bók er sú öf lugasta og skemmti-
legasta hingað til.
Bækurnar eru vissulega formúlu-
kenndar en Marsons má eiga það
að hún kann uppskriftina og það
er bara nákvæmlega ekki neitt að
góðum formúlureyfara þegar öllum
helstu hráefnum er blandað saman í
réttum hlutföllum.
Marsons er einkar lagið að spinna
áhugaverðar sögur utan um morð,
siðblindu, ofbeldi og aðra óáran sem
þrífst í skuggahliðum mannlífsins.
Samkvæmt nánast ófrávíkjanlegri
reglu glæpasögunnar tekur hún
síðan á ýmsum samfélagsmeinum
í leiðinni og á oftar en ekki heil-
mikið erindi.
Helsti ljóðurinn á ráði höfundar-
ins er hversu ódýrar lausnir hennar
eru stundum á annars fínum flækj-
um. Stundum er eins og Kim fái bara
vitrun og bæng! Gátan leyst.
Marsons skapar hins vegar áhuga-
verðar persónur og tekst að vekja
áhuga og samúð lesandans með öllu
rannsóknarlöggugenginu sem Kim
stjórnar. Fyrst og fremst snýst þetta
þó allt um hörkutólið Kim Stone,
sem svo sannarlega stendur undir
eftirnafni.
Bækurnar sækja fyrst og fremst
kraftinn og aðdráttaraf lið í Kim
sem er ekki síst heillandi vegna
þess hversu áreynslulaust hún
yfirtekur öll helstu karakterein-
kenni og klisjur karlmannanna
sem hafa verið í brennidepli
glæpasagna í gegnum áratugina.
Kim er sannkallaður „gender
bender“, eins og það heitir í
fræðunum í útlandinu. Hún er
krumpuð á sálinni, kaldlyndur
einfari sem leggur sig fram um að
fela að undir klakabrynjunni slær
hjarta úr gulli.
Hún storkar örlögunum á lífs-
hættulegum hraða á mótorhjólinu
sínu, slæst eins og vargur, rífur
stólpa kjaft og er auðvitað mar-
tröð yfirboðara sinna, enda lífsins
ómögulegt að fara eftir fyrirmælum.
Kim er sko kona að mínu skapi og
Angela Marsons hefur skrifað utan
um hana áhugaverðan og spenn-
andi heim þannig að maður er bara
orðinn „húkkt“ og getur ekki beðið
eftir næstu bók. Þórarinn Þórarinsson
NIÐURSTAÐA: Besta bókin hingað til
í sallafínni krimmaseríu sem er ekki
síst ávanabindandi vegna þess hversu
aðalpersónan Kim Stone er ómótstæði-
legur löggutöffari. Komi hún fagnandi.
Sem oftast.
Töffarinn Kim Stone í banastuði
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Mánudagur
hvar@frettabladid.is
18. MARS 2019
Hvað? #metoo og stjórnmálin
Hvenær? 8.30- 10.00.
Hvar? Grand Hótel Reykjavík
Þátttaka á fundinum er öllum
opin og án endurgjalds, boðið
verður upp á léttan morgunverð.
Streymt verður beint frá fund-
inum. Opnunarávarp: Katrín
Jakobsdóttir, forsætisráðherra
og formaður Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs Martin
Chungong, framkvæmdastjóri
Alþjóðaþingmannasambandsins,
kynnir niðurstöður rannsóknar á
kynferðisof beldi og áreiti innan
þjóðþinga Evrópu. Pallborð og
umræður. Ragna Árnadóttir,
aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar,
mun stýra pallborðsumræðum
með fulltrúum allra flokka í kjöl-
far erindanna.
Þátttakendur í pallborði: Una
Hildardóttir, fyrir hönd Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
Lilja D. Alfreðsdóttir, fyrir hönd
Framsóknarflokksins, Áslaug
Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrir hönd
Sjálfstæðisflokksins, Þorsteinn
Víglundsson, fyrir hönd Við-
reisnar, Heiða Björg Hilmisdóttir,
fyrir hönd Samfylkingarinnar,
Þorsteinn Sæmundsson, fyrir
hönd Miðflokks, Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir, fyrir hönd Pírata, og
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrir
hönd Flokks fólksins.
Katrín Jakobsdóttir flytur ávarp á Grand Hóteli. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Birds of Passage (eng sub) .......... 17:30
Capernaum (ice sub) ......................... 17:30
Shoplifters//Búðarþjófar (eng sub) 17:40
Taka 5 // Take 5 (eng sub) ........... 20:00
Brakland (danish w/eng sub) ....... 20:00
Birds of Passage (ice sub) ........... 20:00
Capernaum (eng sub) ...................... 22:00
Arctic (ice sub)....................................... 22:00
Free Solo (english - no sub) ..........22:30
HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
FJÖLHÆFASTA FJÖLSKYLDA LANDSINS?
Glæsilegur og vel útbúinn pallbíll með
3.0 lítra, 258 hestafla, V6 dísilvél,
580 Nm togi, sjálfvirkum vélarhitara,
bakkmyndavél, fjarlægðarskynjara að
framan og aftan, regn- og birtuskynjara,
Xenon/led aðalljósum og 18” álfelgum.
Volkswagen Amarok
verð frá 8.290.000 kr.
Hannaður með þarfir iðnaðar-
manna að leiðarljósi og með
átta þrepa sjálfskiptingu fyrir
allar útgáfur. Fjöldi útfærslna
á hleðslurými, farþegarými og
aðstoðarkerfi.
Volkswagen Crafter
verð frá 6.220.000 kr.
Einn vinsælasti atvinnubíll
á Íslandi undanfarin ár.
Áreiðanlegur, öruggur og
fæst í tveimur lengdum,
fjórhjóladrifinn og í fjölda
útfærslna.
Volkswagen Caddy
verð frá 2.870.000 kr.
Transporter hefur fylgt
kynslóðum af fólki sem hefur
þurft á traustum og áreiðan-
legum vinnuþjarki. Fullkomin
stöðugleikastýring, spólvörn
og sjö þrepa sjálfskipting.
Volkswagen Transporter
verð frá 4.590.000 kr.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21M Á N U D A G U R 1 8 . M A R S 2 0 1 9
1
8
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
3
-7
9
F
C
2
2
9
3
-7
8
C
0
2
2
9
3
-7
7
8
4
2
2
9
3
-7
6
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K