Fréttablaðið - 18.03.2019, Page 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
FÖSTUD. TIL M
ÁNUD.
LÝKUR Í DAG
H
EL
G
A
R
S
P
R
EN
G
JA
Í
H
Ö
LL
IN
N
I
FRIDAY
Tungusófi. Tunga
getur verið beggja
vegna. Ljósgrátt áklæði.
Stærð: 236 × 175 × 88 cm
123.494 kr. 189.990 kr.
AFSLÁTTUR
35%
Hnakkapúði seldur sér.
PARKER
La-z-boy hægindastóll. Dökkbrúnt
leður. Stærð: 84 x 95 x 103 cm.
95.994 kr. 159.900 kr.
AFSLÁTTUR
40%
NEW WILSON
Vinsælir, einstaklega
vel hannaðir
og endingargóðir
stólar.
Ólitaður
askur.
11.694 kr. 17.990 kr.
AFSLÁTTUR
35%
www.husgagnahollin.is
V
E F
V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN
Br e s k i r a ð d á e n d u r Ófærðar 2 önduðu létt-ar á laugardagskvöld þegar BBC4 sýndi tvo síðustu þættina í einum rykk. Sigríður Péturs-
dóttir býr í London þar sem hún
hefur fundið fyrir miklum áhuga á
þáttunum og Íslandi. „Ég hef fengið
alls konar skemmtileg viðbrögð,“
segir Sigríður í samtali við Frétta-
blaðið.
„Einna skemmtilegast fannst mér
þegar ég var í Kenwood House um
daginn að mynda stórt og fallegt
magnólíutré. Þar voru tvær dömur
í sömu erindagjörðum og eftir að
við vorum búnar að tala aðeins
um hvað þetta væri fallegt, sagði ég
þeim að ég fengi ekki nóg af þessum
trjám á vorin því á Íslandi væru
engin slík.“
Þegar konurnar áttuðu sig á því
að Sigríður væri íslensk barst talið
snarlega að „Trapped“ eins og þætt-
irnir heita á ensku. „Þær spurðu um
myrkrið og veðrið og hvenær best
væri að ferðast til Íslands,“ segir Sig-
ríður. „Ég sagði þeim frá miðnætur-
sólinni, þegar sólin sigldi á hafflet-
inum og færi svo upp aftur. Þeim
fannst það hrikalega spennandi, að
það væri bjart allan sólarhringinn.“
Í ljósi þessarar nýfengnu vitn-
eskju sögðust konurnar tvær endi-
lega vilja að þriðja sería Ófærðar
gerist að sumarlagi. „Svo Bretar
myndu fá að kynnast þeirri hlið á
Íslandi líka. Ég þekki helling af fólki
sem fór til Íslands vegna þáttanna
og líka vegna Game of Thrones.“
Andri og Hendrika heilla
Fyrsta Ófærðarserían féll vel í
kramið þegar hún var sýnd í Bret-
landi 2016 og þá var það ekki síst
Ólafur Darri Ólafsson í hlutverki
bangsalegu löggunnar Andra sem
heillaði og festi sér fjölda aðdáenda
sem hafa fylgst spenntir með þess-
um nýjustu hremmingum hans.
„Þegar fyrri serían var í gangi
voru stelpurnar sem voru með
mér í dansi alveg að tapa
sér yfir Darra. Hann
varð að miklu kyn-
tákni hérna og ég
spældi þær ógur-
lega með því að
seg ja þeim að
hann vær i vel
giftur og pabbi
í ofanálag. Þær
bara neituðu að
trúa því.
En það var ekki bara
Darri sem átti hug fólks
og ég man eftir eldri dömu
sem sagði að hana langaði helst að
ættleiða Hinriku,“ segir Sigríður
um lögreglustjórann sem Ilmur
Kristjánsdóttir leikur. „Hún þyrfti
á góðu faðmlagi að halda. Hér voru
líka gerðar könnur með myndum af
þeim og ég held þær hafi bara selst
vel.“
Lög og regla
Þá, eins og nú, byrjaði fólk umsvifa-
laust að ræða um Ófærð þegar það
áttaði sig á þjóðerni Sigríðar. „Um
leið og maður sagðist vera Íslend-
ingur, eða einhver vissi að maður
væri það, byrjaði fólk að tala um
„Trapped“ og byrjaði stundum inni
í miðjum söguþræði svo ég náði
stundum ekki fyrst um hvað þau
voru að tala.“
Og vitaskuld, eins og á Íslandi,
var veðrið helsta umræðuefnið. „Þá
vildu flestir tala um veðrið og hvort
það væri virkilega svona á Íslandi.
Þá sagði ég þeim að ég væri sjálf að
norðan, frá litlum stað svipuðum
Siglufirði, og mataði þau á sögum
af því þegar við komumst ekki í
skólann vegna ófærðar og þurftum
að elda á prímusum því það var
rafmagnslaust. Þetta var mjög vin-
sælt.“
Ófærðarþættirnir hafa einnig
vakið forvitni og spurningar um
lögregluna á Íslandi. „Margir vildu
vita hvort lögreglan væri virkilega
svona vinaleg auk þess sem
hún hefur verið spurð
nokkuð út í hið sér-
kennilega orð „lög-
reglan“. Hvað það
þýði eiginlega?
„Og þá útskýri
ég það og þá er
s pu r t hver n ig
l ö g r e g l u r n a r
okkar geti haldið
uppi lögum og reglu
þótt þær séu ekki einu
sinni með byssur.“ Þetta
sætir furðu en þykir að vonum
ósköp krúttlegt. Svo mjög reyndar
að „þegar maður reynir að leiðrétta
og segja að á Íslandi sé víst spilling
og alls ekki allt fullkomið þá vilja
sumir ekki einu sinni heyra það“.
Eftirspurn meiri en framboð
„Á milli þáttaraða hef ég svo ekki
tölu á öllum þeim sem spurðu mig
hvenær næsta þáttaröð kæmi og
hvort það væri ekki til meira efni
frá Íslandi. Ég er sannfærð um að
við gætum dælt þáttum í þá ef
meiri fjármunir væru lagðir í gerð
sjónvarpsefnis en margir urðu mjög
þakklátir þegar ég sagði þeim frá
öðru íslensku efni sem hægt væri
að nálgast.“
Sigríður er annáluð bíókona og
stjórnaði meðal annars á sínum
tíma kvikmyndaþáttunum Kviku
á Rás 1. Hún hefur búið í London
í nokkur ár og hefur að sjálfsögðu
verið með hugann við kvikmyndir.
„Ég hef verið að skrifa. Búin að
ljúka við eitt kvikmyndahandrit
en kalla mig ekki handritshöfund
fyrr en þegar eða ef það verður að
mynd,“ segir Ófærðarsendiherra
Íslands í London sem missti af tvö-
földum lokaþættinum á laugar-
daginn og þarf að forðast forvitna
Breta þangað til úr því verður bætt.
thorarinn@frettabladid.is
Bretar furða sig á
byssuleysinu í Ófærð
BBC4 sýndi lokaþátt Ófærðar um helgina. Sigríður Pétursdóttir
býr í London. Hefur mátt hafa sig alla við að svara forvitnum
Bretum um hjúskaparstöðu Ólafs Darra, myrkrið og byssuleysið.
Sigríður Pétursdóttir kvikmyndakona hitti tvær enskar konur á förnum vegi í London og eftir stutt spjall um Ófærð
lögðu konurnar tvær fram skýlausa kröfu um að þriðja sería þáttanna gerist að sumri til. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 8 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
8
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
3
-6
6
3
C
2
2
9
3
-6
5
0
0
2
2
9
3
-6
3
C
4
2
2
9
3
-6
2
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K