Fréttablaðið - 21.03.2019, Blaðsíða 2
Við lítum svo á að
þessi verkfalls-
boðun taki ekkert síður til
þeirra.
Viðar Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri Eflingar
Veður
Suðvestan 10-18 m/s, en 15-23 NV-
til á landinu og 20-25 þar í kvöld og
fram eftir nóttu. Þurrt og yfirleitt
bjart veður A-lands, annars él.
SJÁ SÍÐU 30
Fékk forsmekkinn að framtíðarstarfinu
Grímar Gauti Ólafsson sagði frá því í Fréttablaðinu nýverið að hann langaði að verða „löggubílalagari“ þegar hann yrði stór. Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu tók hann á orðinu og bauð honum í heimsókn á verkstæði lögreglunnar við Skógarhlíð þar sem Árni Friðleifsson varðstjóri færði hann í
sanninn um lögreglubíla. Grímar Gauti var í skýjunum með heimsóknina og lagði kannski grunninn að framtíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
HEFUR ÞÚ PRÓFAÐ
HOLTA KJÚKLINGANUGGETS?
K JARAMÁL Næsta lota verkfalla
Eflingar og VR hefst á miðnætti að
óbreyttu. Félögin munu þó eiga
fund með Samtökum atvinnu
lífsins (SA) hjá ríkissáttasemjara í
dag þar sem það mun ráðast hvort
sólarhringsverkfall muni hefjast á
miðnætti.
„Við mætum alltaf tilbúin til að
hlusta. Þótt við séum í verkfalls
aðgerðum komum við af fullri
alvöru á slíka fundi. Mér finnst
mjög mikilvægt að undirstrika það
að verkfallsaðgerðir eru til þess að
þrýsta á um að viðræður hefjist en
ekki til að skemma fyrir þeim,“ segir
Viðar Þorsteinsson, framkvæmda
stjóri Eflingar.
Efling og SA hafa ólíka skoðun á
því til hvaða starfsmanna boðaðar
aðgerðir myndu nákvæmlega ná til.
SA leggur áherslu á að verkfall hjá
hópbifreiðafyrirtækjum nái aðeins
til félagsmanna þess félags sem
boðar verkfallið. Þannig geti starfs
menn í öðrum stéttarfélögum sinnt
sínum störfum.
Ef ling telur hins vegar að verk
fallsboðunin nái yfir alla hópbif
reiðarstjóra á félagssvæði sínu þar
sem félagið sé það eina sem hafi
gildan kjarasamning fyrir þessa
starfsstétt á því svæði.
„Það getur vel verið að það sé fólk
að vinna í þessum störfum sem er
ranglega skráð í önnur félög. Við
lítum svo á að þessi verkfallsboðun
taki ekkert síður til þeirra. Þú ert
ekki undanþeginn bara af því að
þú ert rútubílstjóri sem er ranglega
skráður í iðnaðarmannafélag til
dæmis,“ segir Viðar.
Í tilkynningu frá SA er bent á að
rísi ágreiningur um framkvæmd
verkfalla heyri það undir félags
dóm. Viðar segir viðbúið að aðilar
muni láta reyna á þessa túlkun. „Við
höfum okkar túlkun og munum
vinna samkvæmt henni og beinum
tilmælum til fólks eftir því.“
Björn Ragnarsson, forstjóri
Reykjavík Excursions, segir að komi
til verkfalls bílstjóra muni það hafa
töluverð áhrif á þjónustu fyrirtæk
isins. „Við gerum ráð fyrir að þetta
muni hafa töluverð áhrif á okkar
dagsferðir og vorum búin að loka
fyrir hluta af okkar dagsferðum. Það
munu verða einhverjar raskanir og
við náum ekki að sinna allri okkar
þjónustu,“ segir Björn enn fremur.
Hann segir að áhersla verði lögð á
akstur til og frá Keflavíkurflugvelli.
„Það er ekkert mikið meira en það
sem við náum að sinna.“
Af um 200 bílstjórum fyrirtækis
ins eru um 30 sem eru í öðrum stétt
arfélögum en VR eða Eflingu. Björn
segir stjórnendur fyrirtækisins
túlka þetta með sama hætti og SA,
að þessir 30 séu ekki á leið í verkfall.
Ætli Ef ling sér að sinna verkfalls
vörslu miðað við sína túlkun þýði
það auðvitað að starfsemin stöðvist
en með því gæti Efling orðið skaða
bótaskyld gagnvart farþegum sem
misstu af f lugi.
Reykjavíkurborg hefur sent
erindi til undanþágunefndar vegna
aksturs skólabíla sem myndi að
óbreyttu stöðvast á morgun. Niður
staða málsins lá ekki fyrir í gær.
sighvatur@frettabladid.is
Túlka verkfallsboðun
ekki með sama hætti
Efling og SA túlka með mismunandi hætti til hvaða starfsmanna boðuð
verkföll, sem hefjast eiga á miðnætti, nái til. Verkfallið myndi ná til um 2.600
félagsmanna Eflingar og VR á hótelum og hjá hópbifreiðafyrirtækjum.
Það gæti stefnt í átök um túlkun á verkfallsboðun. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FJARSKIPTI Gömul GPStæki gætu
hætt að virka sem skyldi eftir 6.
apríl næstkomandi ef kerfi þeirra
hefur ekki verið uppfært nýlega.
Vandamálinu sem tækin standa
frammi fyrir svipar mjög til hins
svokallaða „Y2Kvandamáls“ sem
herjaði á tölvukerfi heimsins um
síðustu þúsaldamót.
Tækin styðjast við 10 bita
tvenndarkerfi (e. binary) til að telja
vikurnar en slíkt kerfi nær aðeins
að telja upp í 1.024 sem þýðir að á
1.024 vikna, eða tæpra 20 ára, fresti
endurræsist tímatal tækjanna. Síð
ast endurræstist tímatalið í ágúst
1999.
Boð gervihnatta til GPStækja
innihalda ákveðinn dagsetningar
kóða sem þarf til að reikna út stað
setningarhnit. Því getur mögulega
komið fram ruglingur í útreikningi
hnita eftir 6. apríl. Heimavarnarráð
Bandaríkjanna sendi frá sér yfir
lýsingu þar sem varað er við þessu.
Ríkarður Sigmundsson, starfs
maður Garminbúðarinnar sem sér
um sölu GPStækja, segist muna
vel eftir málinu þegar það kom upp
árið 1999. „Ég held að það sé nú bara
verið að gera of mikið úr þessu núna
eins og þá,“ segir Ríkarður, aðeins
örfá mál hafi komið upp þar sem
GPStækin virkuðu ekki rétt. „En
það er gott að fólk viti af þessu og
uppfæri tækin, þá á þetta ekki að
vera neitt vandamál.“ Einfalt er
að uppfæra GPStæki á borð við
göngu og bílatæki heima fyrir en
hægt er að leita til Garminbúðar
innar með
f lóknari
tæki.
– ókp
GPS-tæki
geta leitt til
vandræða
REYK JAVÍK Borgarráðsfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins og áheyrnar
fulltrúar Miðf lokksins og Flokks
fólksins leggja til á fundi borgarráðs
í dag að „stjórnarandstöðuf lokk
arnir“ fái seturétt fyrir aðstoðar
mann sinn á fundum ráðsins.
Samk væmt tillögunni hefði
aðstoðarmaður ekki málfrelsi né
tillögurétt á fundum borgarráðs
en væri til aðstoðar f lokkunum
þremur. „Slíkt fyrirkomulag myndi
tryggja jafnræði milli f lokkanna
þar sem aðstoðarmaður borgar
stjóra situr fundi borgarráðs,
meirihlutanum og borgarstjóra til
aðstoðar,“ segir í tillögunni. – gar
Aðstoðarmenn
inn í borgarráð
Eyþór Arnalds,
oddviti Sjálf-
stæðismanna í
borgarstjórn.
2 1 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
1
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
C
-E
D
5
C
2
2
9
C
-E
C
2
0
2
2
9
C
-E
A
E
4
2
2
9
C
-E
9
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K