Fréttablaðið - 21.03.2019, Blaðsíða 51

Fréttablaðið - 21.03.2019, Blaðsíða 51
BÆKUR Þrír dagar og eitt líf Höfundur: Pierre Lemaitre Þýðandi: Friðrik Rafnsson Útgefandi: JPV Fjöldi síðna: 263 Franski rithöfundur-inn Pierre Lemaitre er meðal þekktustu núlifanda glæpa- sagnahöfunda heims og er marg- verðlaunaður. Fjórar bækur hans hafa komið út á íslensku: Irene, Alex, Camille og sú nýjasta er Þrír dagar og eitt líf. Söguþráðurinn er nokkuð slá- andi. Árið 1999 þegar Antoine Courtin er tólf ára verður hann sex ára dreng að bana í heimabæ þeirra og felur líkið. Mörgum árum síðar snýr Antoine aftur á æskuslóðir og þarf enn á ný að takast á við hina skelfilegu atburði úr fortíðinni. Óhætt er að segja að Lemaitre ögri lesandanum í nokkuð óvenju- legri glæpasögu. Eina stundina hefur lesandinn andúð á Antoine vegna glæps hans og aðra stund- ina getur hann ekki annað en haft samúð með dreng sem þjáist vegna gjörða sinna. Höfundi tekst einkar vel að lýsa örvæntingu og ótta barns sem er stöðugt að ímynda sér hvað eigi eftir að gerast. Þessar lýsingar á hugarástandi drengs eru afar sterkar og sláandi. Höfundi tekst mjög vel að draga upp eftirminnilegar myndir af aukapersónum og má þar sem dæmi nefna lýsingu á fimmtán ára stúlku í hjólastól, sem er svo þveng- mjó og limagrönn, að „það var erfitt að ímynda sér annað en að einn daginn myndi vindurinn feykja henni burtu“. Það er afar margt sem er vel gert í þessari bók, þar er til dæmis gríðar- lega vel útfærður kafli sem gerist í jólamessu þar sem prestur fer með fagnaðarerindið um leið. Lesandinn sér kirkjugesti ljóslifandi fyrir sér meðan alls kyns hugsanir þjóta um höfuð hins unga Antoine þar hann situr á kirkjubekknum. Í seinni hlutanum, sem gerist árið 2011 og árið 2015, fer sagan í nokk- uð óvænta átt og Antoine stendur frammi fyrir tveimur kostum. Val hans kemur nokkuð á óvart. Sú klemma sem hann lendir í og leiðin sem hann kýs að fara er dálítið eins og frá öðrum og eldri tíma. Það er ekki laust við að sú hugsun hvarfli að lesandanum að þarna sé höf- undur jafnvel að vinka til 19. aldar rithöfunda sem settu aðalpersónur sínar gjarnan í þá aðstöðu að vera þvingaðar til að ganga ákveðna leið sem þeim var þvert um geð. Í st utt u m ef t ir mála v ík u r Lemaitre góðu að hópi rithöf- unda sem hann segir alveg örugg- lega hafa haft áhrif á verkið, þar á meðal er 19. aldar rithöfundurinn Nathaniel Hawthorne. Hann nefnir einnig Georges Simenon, en margt í andblæ verksins minnir einmitt á hann. Jean-Paul Sartre fær einn- ig kveðju og er það vel við hæfi því saga Lemaitre er sannarlega með til- vistarlegu ívafi. Það er ekki á hverjum degi sem glæpasögur vekja lesendur til umhugsunar, en það gerist hér. Kolbrún Bergþórsdóttir NIÐURSTAÐA: Sérlega góð og minnis- stæð glæpasaga, heimspekileg og vits- munaleg, frá höfundi sem sannarlega kann að hreyfa við lesendum. Glæpur drengs Hópurinn Svikaskáld býður upp á opið ljóðakvöld á Kaffislipp í Hótel Marina við Mýrarveg í Reykjavík í kvöld klukkan 20. Tilefnið er alþjóðlegur dagur ljóðsins sem Bókmennta- borgir UNESCO fagna um víða veröld. Byrjað verður með stuttum lestri úr ljóðum þekktra skálda frá öllum heimshornum og allt andans fólk á staðnum er hvatt til að stela, spegla og svara þeim lestri á næstu 10 mínútum. Hringiðan verður end- urtekin eins oft og nauðsynlegt er. Kvöldið er óður til trausts, svika og innblásturs sem ljóðskáld og annað skapandi fólk fær hvert frá öðru. „Við Svikaskáldin höfum unnið ljóðabækurnar okkar tvær á þenn- an hátt,“ segir Fríða Ísberg, ein úr hópnum. „Við opnum fyrir skálda- æðarnar með ljóðum eftir okkur eða aðra og notum þau sem stökk- palla fyrir framhaldið. Þetta verður svipað. Það verður skapað rými til að upptendrast og skapa í framhaldi af upplestri og allir geta tekið þátt. Það er mjög skemmtilegt. Svipað og fólk gerir þegar það botnar vísu- fyrriparta frá öðrum.“ – gun Ort, lesið, speglað, rænt og ruplað á degi ljóðsins Svikaskáldin: aftari röð: Ragnheiður Harpa Leifs- dóttir, Sunna Dís Másdótt- ir, Melkorka Ólafsdóttir og Þórdís Helgadóttir. Fremri röð: Þóra Hjör- leifsdóttir og Fríða Ísberg. PS4 VR GLERAUGU Með VR Worlds leik og VR myndavél 39.990 1TB PS4 SLIM Sony PS4 með 2.stk stýripinnum 49.990 TRUST LEIKJASETT Leikjalyklaborð, mús og heyrnartól 14.990 GJAFABRÉF Gefðu gjafabréf, það klikkar aldrei:) SNILLD! 1TB FLAKKARI Fisléttur Armor A75 USB 3.0 flakkari 7.990 VERÐ ÁÐ UR 9.990 FRÁBÆR T TILBOÐ 25.990 49.990 49.990APPLE AIRPODSÞessi einu sönnu frá Apple með hleðslu hylki 43” 4K SJÓNVARP Fullkomið í fermingar- herbergið með Netflix :) NINTENDO SWITCH Frábær leikjatölva með rauðum og bláum joycon 99.99099.99059.990 6T 6+128GBOnePlus loks fáanlegur á Íslandi með áður óséðan hraða, viðbrögð og ein- stakar tækninýjungar ACER SWIFT 1 Nýja lúxus línan með enn öflugri 4 kjarna örgjörva, ofurnett, fislétt og örþunn úr gegnheilu áli ACER SWIFT 1 Glæsileg ný kynslóð Ultrathin lúxus fartölva með baklýstu lyklaborði og 17 tíma rafhlöðu Aflæstu hraðanum! Ný kynslóð farsíma Öflug lúxus lína sem kemur í 5 glitur litum Fartölva úr fisléttu áli með ótrúlegar nýjungar 14” FHD IPS Ultra-Narrow skjárammi Intel N5000 2.7GHz Pentium Quad Core 8GB minni DDR4 2400MHz 256GB SSD M.2 diskur 14” FHD IPS Ultra-Narrow skjárammi Intel N4000 2.6GHz Burst Dual Core 4GB minni DDR4 2400MHz 64GB SSD eMMC diskur 17tímar 5 LITIR VERÐ ÁÐ UR 119.990 FRÁBÆR T TILBOÐ Komið og skoðið flaggskip ið frá OnePlus FERMING AR SÍMINN Í ÁR! 6T 8+256GB OnePlus 6T Midnight Black 114.990 6T 8+128GB OnePlus 6T Thunder Purple 109.990 Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 SENDUM FRÍTT Um land allt allar vörur allt að 10 kg. NÝR SPENNANDI FERMINGARBÆKLINGUR FERMINGAR 21.03.2019 • B irt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl NÝ R BÆ KL IN GU R KO MI NN ÚT M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 35F I M M T U D A G U R 2 1 . M A R S 2 0 1 9 2 1 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 9 C -F C 2 C 2 2 9 C -F A F 0 2 2 9 C -F 9 B 4 2 2 9 C -F 8 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.