Fréttablaðið - 21.03.2019, Blaðsíða 11
Evrópusambandið sektaði banda-
ríska tölvurisann Google um 1.490
milljónir evra, eða tæplega 200
milljarða króna, fyrir að hafa mis-
notað markaðsráðandi stöðu sína.
Margaret Vestager, yfirmaður sam-
keppnisdeildar ESB, greindi frá
þessu í Brussel í gær.
Brot Google áttu sér stað á tíu
ára tímabili, frá árinu 2006 til
2016. Brotin felast í því að hindra
að keppinautarnir selji auglýsingar
á netinu með því að nota markaðs-
ráðandi stöðu sína. Eftir að málið
komst upp breytti Google auglýs-
ingasamningum sínum við þriðja
aðila til að veita þeim meira svig-
rúm til að birta auglýsingar í sam-
keppni við Google.
„Google er búið að festa sig í sessi
sem risinn á markaðnum með aug-
lýsingar á netinu og hefur náð að
skýla sér fyrir samkeppni með því
að setja samkeppnishamlandi skil-
mála í samningum við þriðja aðila,“
sagði Vestager. „Þetta er bannað
samk væmt samkeppnislögum
ESB.“
Kent Walker, yfirmaður alþjóða-
ESB sektar Google um 200 milljarða
Margrethe Vestager, yfirmaður samkeppnisdeildar ESB, á blaðamannafundinum í Brussel í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Google fékk í gær þriðju
sektina frá ESB á jafn-
mörgum árum fyrir að
hafa misnotað markaðs-
ráðandi stöðu sína
þegar kemur að aug-
lýsingum á netinu.
deildar Google, lofar bót og betrun.
„Við höfum nú þegar gert marg-
víslegar breytingar til að koma til
móts við samkeppnisdeildina. Við
munum gera frekari breytingar
á næstunni til að auka sýnileika
keppinauta okkar í Evrópu.“
Walker kynnti einnig í gær breyt-
ingar á Android-stýrikerfinu fyrir
síma. Í fyrra fékk fyrirtækið sekt frá
ESB fyrir að neyða framleiðendur
síma sem nota Android til að láta
vafra, leitarvél og smáforritaverslun
Google fylgja með. Fyrirtækið sagði
að það væri nú þegar búið að breyta
skilmálum sínum, sem heimila
símaframleiðendum að láta smá-
forrit frá öðrum framleiðendum
fylgja með.
Sektin í gær er sú þriðja á innan
við þremur árum sem ESB leggur á
Google fyrir brot á samkeppnislög-
um. Alls er búið að sekta fyrirtækið
um 8,9 milljarða evra, eða sem
nemur 1.200 milljörðum króna.
Google er markaðsráðandi þegar
kemur að leitarvélum, mest í Evr-
ópu þar sem markaðshlutdeildin
er 90 prósent. Alphabet, móður-
félag Google, þénar umtalsverðar
fjárhæðir í gegnum auglýsingasölu.
Hagnaðurinn í fyrra nam 30,7 millj-
örðum dollara, eða tæplega 3.600
milljörðum króna.
Auglýsingatekjur Google koma
helst inn í gegnum AdSense, forrit
sem birtir leitarniðurstöður frá
aðilum sem hafa greitt fyrir það
samhliða hefðbundnum leitar-
niðurstöðum. Einnig birtir forritið
auglýsingar sem eru sérsniðnar að
notandanum, er til dæmis tekið
mið af staðsetningu og hvernig vef
notandinn er að skoða. Einnig er
tekið mið af fyrri leitum notandans.
Til að fá hagnað í gegnum aug-
lýsingar hafi vefsíðueigendur þurft
að gangast við því að gefa Google
öll verðmætustu auglýsingaplássin
ásamt því að þurfa að fá leyfi frá
Google til að birta auglýsingar í
gegnum Yahoo! eða Microsoft. Á
blaðamannafundi í gær lýsti Vesta-
ger Google sem millilið fyrir aug-
lýsingar sem hefði komið sér upp
vítahring.
„Keppinautar Google gátu ekki
stækkað, sem leiddi til þess að eig-
endur vefsíðna þurftu að reiða sig
eingöngu á Google,“ sagði Vestager
í gær. „Það var engin ástæða fyrir
Google að leggja á þessar kvaðir
aðrar en til að hindra samkeppni.“
arib@frettabladid.is
TÆKNI
Við munum gera
frekari breytingar á
næstunni til að auka sýni-
leika keppinauta
okkar.
Kent Walker, yfir-
maður alþjóða-
deildar Google
F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11F I M M T U D A G U R 2 1 . M A R S 2 0 1 9
2
1
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
D
-1
4
D
C
2
2
9
D
-1
3
A
0
2
2
9
D
-1
2
6
4
2
2
9
D
-1
1
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K