Fréttablaðið - 21.03.2019, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 21.03.2019, Blaðsíða 42
Nýjast Valur - Keflavík 80-68 Valur: Heather Butler 24, Helena Sverris- dóttir 20/11 fráköst, Dagbjört Samúels- dóttir 14, Hallveig Jónsdóttir 9, Simona Podesvova 6, Bergþóra Holton Tómasdóttir 3, Ásta Júlía Grímsdóttir 2, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 2. Keflavík: Brittanny Dinkins 25/11 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 23/10 fráköst, Sal- björg Ragna Sævarsdóttir 6, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 4, Bryndís Guðmundsdóttir 4, Erna Hákonardóttir 3, Birna Valgerður Benónýsdóttir 2, Þóranna Hodge-Carr 1. Skallagrímur - Snæfell 63-71 Skallagrímur: Maja Michalska 20/10 frá- köst, Shequila Joseph 19/15 fráköst, Árnína Lena Rúnarsdóttir 14, Sigrún Sjöfn Ámunda- dóttir 10. Snæfell: Gunnhildur Gunnarsdóttir 24, Angelika Kowalska 20, Berglind Gunnars- dóttur 9, Rebekka Rán Karlsdóttir 6, Anna Soffía Lárusdóttir 5, Katarina Matijevic 4/16 fráköst/10 stoðsendingar, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 3. KR - Breiðablik 86-87 KR: Kiana Johnson 34/10 fráköst, Orla O’Reilly 18, Vilma Kesanen 18, Unnur Tara Jónsdóttir 14, Þorbjörg Andrea Friðriks- dóttir 2 Breiðablik: Ivory Crawford 34/28 fráköst, Sanja Orazovic 26, Þórdís Jóna Kristjáns- dóttir 15, Sóllilja Bjarnadóttir 10, Eyrún Ósk Alfreðsdóttir 2. Efri Valur 40 Keflavík 38 Stjarnan 34 KR 30 Neðri Snæfell 30 Haukar 16 Skallagr. 12 Breiðablik 8 Domino’s-deild kvenna Línurnar farnar að skýrast í Domino’s-deild kvenna Valskonur stigu stórt skref í átt að deildarmeistaratitlinum og um leið heimaleikjarétti í úrslitakeppninni í Domino’s-deild kvenna þegar þær unnu 80-68 sigur á Kef lavík í gær. Með sigrinum er Valur kominn með tveggja stiga forskot á Kef lavík á toppi deildarinnar ásamt því að vera með innbyrðis viðureignirnar á Kef lavík þegar tvær umferðir eru eftir. Annar titill vetrarins er því í sjónmáli fyrir Valsliðið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KÖRFUBOLTI Úrslitakeppnin í Domino’s-deild karla hefst í kvöld í Garðabæ og Njarðvík þegar tvö efstu lið deildarinnar, Stjarnan og Njarðvík taka á móti Grindavík og ÍR. Það er erfitt að sjá að Grind- víkingum takist að stríða deildar- og bikarmeisturum Stjörnunnar. Stjarnan hefur verið eitt heitasta lið landsins undanfarna mánuði og unnið þrettán af síðustu fjórtán leikjum í deildarkeppninni. Einn þessara sigra kom einmitt gegn Grindavík í 21. umferð þar sem Grindvíkingar voru lítil fyrirstaða í átján stiga sigri Stjörnunnar. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindvíkinga, sem kveður liðið að tímabilinu loknu hefur oft náð að kreista fram hið ótrúlegasta úr Grindavíkurliðinu í úrslitakeppn- inni og á góðum degi getur Grinda- vík staðið í Stjörnunni en það er erfitt að sjá Grindvíkinga gera þetta að spennandi einvígi. Spennan er heldur meiri fyrir seinna einvíginu sem hefst í kvöld þar sem Njarð- vík tekur á móti ÍR. Tvær vikur eru liðnar síðan liðin mættust síðast þegar ÍR vann eftir f ramlengdan leik í Ljónagryfjunni og svo gott sem komu í veg fyrir deildarmeistaratitil Njarð- víkinga. Njarðvík vann nauman sigur í fyrri leik liðanna þar sem staðan var jöfn fyrir lokaleikhlutann. Vita ÍR-ing- ar því að þeir geta vel strítt Njarðvíkingum og gott betur en það þrátt fyrir að hér séu að mætast liðin sem enduðu í sjöunda og öðru sæti deildarinnar. Á morgun hefjast svo seinni tvö einvígin á Sauðárkróki og í Kefla- vík. Gengi Stólanna hefur verið brösugt undanfarna mánuði en Sauðkrækingar sýndu allar sínar bestu hliðar í sigrinum á Keflavík í síðustu umferð. Pressan er á Stól- unum fyrir einvígið gegn Þórsurum frá Þorlákshöfn enda gerð krafa um Íslandsmeistaratitil á Sauðárkróki en Þórsarar fara nokkuð pressu- lausir inn í úrslitakeppnina eftir að hafa óvænt tekið sjötta sætið í deildinni. Liðin unnu sitt hvorn leikinn í deildarkeppninni á heimavelli. Að lokum tekur Kef la- vík á móti KR annað kvöld. Undanfarin ár hefur úrslitakeppnin verið tími KR-inga og hefur KR titil að verja fimmta árið í röð. Kef lavík vann báða leiki liðanna í deildar- keppninni þar sem Michael Craion reyndist gömlu liðs- félögum sínum erfiður en það skyldi enginn afskrifa reynslumikið lið KR sem hefur unnið fjóra leiki í röð og litið betur út undan- farnar vikur. – kpt Úrslitakeppnin hjá körlunum hefst í kvöld FÓTBOLTI Jón Þór Hauksson til- kynnti í gær hvaða 23 leikmenn hann hefði valið í næsta verkefni kvennalandsliðsins fyrir æfingar- leiki gegn Suður-Kóreu í byrjun apríl. Þjálfarateymið gerir fimm breytingar á leikmannahópnum frá Algarve og detta kunnugleg andlit út. Sara Björk Gunnarsdóttir, Mar- grét Lára Viðarsdóttir, Dagný Brynj- arsdóttir og Sif Atladóttir sem eiga samanlagt 400 landsleiki ásamt Öglu Maríu Albertsdóttur fara ekki með liðinu til Seoul. Inn í þeirra stað koma þær Sandra María Jessen, Elísa Viðarsdóttir, Fanndís Friðriks- dóttir, Anna Rakel Pétursdóttir og Lára Kristín Pedersen. Leikirnir eru hluti af undirbún- ingi Íslands fyrir undankeppni EM sem hefst í haust. „Viðræður stóðu yfir í smá tíma en við vorum spennt fyrir því að fá tækifæri til að mæta Suður-Kóreu. Þetta eru öðruvísi mótherjar en við erum vanalega að mæta og það verður gaman að prófa það,“ segir Jón Þór í samtali við Fréttablaðið. „Það eru líkindi á milli liðs Suð- ur-Kóreu og Kanada, þær eru með sterkt lið og beinskeyttar. Þær eru að mörgu leyti ólíkar öðrum Asíu- þjóðum þegar kemur að því, því að þær spila fast fyrir og ákveðið ofan á það að vera teknískar og mjög fljótar. Þetta er verðugt verkefni og við berum virðingu fyrir liði Suður- Kóreu sem er frábært en á sama tíma óttumst við ekkert. Við þurf- um bara að einblína á það sem við ætlum okkur að gera,“ segir hann. Jón Þór ákvað í samráði við Dag- nýju og Margréti að gefa þeim frí til að þær geti einbeitt sér að undir- búningstímabili með félagsliðum sínum. Sif er að ná sér af lítils háttar meiðslum og Sara Björk fær frí til hvíldar. Það vantar því kjarnann í liðinu undanfarin ár en Jón vill sjá aðra leikmenn grípa tækifærið. „Það eru frábærir leikmenn sem við erum að skilja eftir en það eru líka frábærir leikmenn í hópnum. Leiðtogar og sterkir karakterar sem ég vænti þess að stígi upp og leiði þetta lið,“ segir Jón Þór sem segist vera búinn að ákveða hver verði fyrirliði en vill ekki gefa það upp fyrr en hann er búinn að tilkynna leikmanninum það. Ísland fer út nokkrum dögum fyrr til að venjast aðstæðum enda leikirnir um miðja nótt að íslensk- um tíma. „Leikirnir eru um miðjan dag úti þannig að aðstæðurnar verða krefj- andi fyrir okkur. Það er eitthvað nýtt fyrir okkur og undir þjálfara- teyminu komið að undirbúa leik- mennina til að geta mætt af fullum krafti.“ Agla María gat ekki gefið kost á sér í þetta verkefni vegna lokaprófs í háskólanum. kristinnpall@frettabladid.is Spennandi tækifæri Það vantar lykilleikmenn í íslenska kvennalandsliðið sem fer til Suður-Kóreu í apríl en landsliðsþjálfarinn væntir þess að aðrir leikmenn grípi tækifærið. Þetta verður þriðja verkefni landsliðsins undir stjórn Jóns Þórs og Ians Jeff sem tóku við kvennalandsliðinu síðasta haust. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 1 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R26 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 25 leiki í röð hefur KR unnið í fyrstu umferð úrslitakeppn- innar undanfarin ellefu ár. 2 1 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 9 D -2 D 8 C 2 2 9 D -2 C 5 0 2 2 9 D -2 B 1 4 2 2 9 D -2 9 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.