Fréttablaðið - 21.03.2019, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 21.03.2019, Blaðsíða 28
Það kom aldrei neitt annað til greina hjá Sólveigu Adoru Hansdóttur fatahönnuði en að fara út í heim eftir útskrift frá Listaháskóla Íslands enda segist hún hafa viljað fá tískubransann beint í æð og læra á allt eins hratt og mögulegt var. Hún hefur undanfarið ár búið í London þar sem hún hefur verið í starfsnámi hjá Richard Malone, Hillier Bartley og Calvin Klein. Vinnudagarnir eru oftast langir en um leið hefur árið verið afskaplega lærdóms- ríkur tími að hennar sögn. „Tísku- bransinn á Íslandi er svo örlítill að ég vissi að ég fengi miklu meira út úr því að fara utan strax eftir útskrift. London varð fyrir valinu vegna þess hve stór, fjölbreytileg og framsækin hún er þegar kemur að tísku. Samt er tískubransinn hér ekki eins rótgróinn og hefðbund- inn eins og í París og Mílanó og því er London opnari fyrir nýjum og öðruvísi leiðum og það heillar mig mjög. New York gæti svo verið næst, hver veit.“ Ferskur og nýstárlegur Fyrsti hönnuðurinn sem Sólveig vann fyrir var Richard Malone. sem er írskur og nýlega útskrifaður frá Central Saint Martins listahá- skólanum í London. „Ég var búin að fylgjast með honum eftir að hann útskrifaðist og fannst hann vera með ferska sýn á tísku og tískubransann og um leið með nýstárlega og litríka hönnun sem ég fíla.“ Sólveig starfaði þar í fjóra mánuði og vann m.a. við haust- og vetrarlínuna 2019 sem var svo sýnd á London Fashion Week í febrúar. „Þar fékk ég að fylgja öllu ferlinu frá byrjun til enda og vann mjög náið með honum. Hann saumar og gerir f lest allt sjálfur í stúdíóinu sem þýddi að ég fékk að vinna með flíkurnar sjálfar, gera prufur og að lokum sauma nokkrar sýningarflíkur. Tísku- vikan sjálf var mikil upplifun þar sem var mikið unnið og lítið sofið. Eftir tískuvikuna fórum við til Parísar þar sem ég aðstoðaði við að setja upp svo kallað „showroom“ þar sem bæði einstaklingar og stórverslanir skoða línuna nánar og ákveða hvort og hvað þau vilja kaupa úr henni.“ Eftir dvölina í París hóf Sólveig starfsnám hjá fatamerkinu Hillier Bartley sem Luella Bartley og Katie Hillier stofnuðu. „Hönnunar- teymið þar sér líka um hönnun og þróun fyrir Calvin Klein svo ég er í raun starfandi hjá báðum fyrir- tækjunum. Ég finn mikinn mun á þessu fyrirtæki og Richard Malone enda nokkur stærðarmunur. Hér fæ ég að takast á við ólíkari og meira krefjandi verkefni sem er frábært.“ Eigin hönnun í haust Um þessar mundir er Sólveg að vinna á fullu í eigin hönnun, undir merkinu Sólveig Adora, sem hún ætlar að sýna hér á landi í haust. „Sú sýning verður öðruvísi en fólk á að venjast. Mér finnst nefnilega mikilvægt að þróa þetta sjúka kerfi sem tískuheimurinn vinnur eftir og því mun sýningin aðeins koma á óvart, t.d. gefst gestum kostur á að hafa áhrif á útkomu flíkanna og taka þátt í sýningunni. Ég get þó ekki sagt of mikið núna en það er hægt að fylgjast með þróun mála á Instagram-síðu minni, @solveig- adora.“ Hún segir tískuna ekki lengur snúast um strauma heldur sé hún orðin eitthvað allt annað. „Tískan er orðin svo stór og svo hröð að það er einhvern veginn allt og ekkert í tísku á öllum tímum. En fyrir mér er það mjög spennandi því það eru allir löngu komnir með nóg af því að reyna að fylgjast með því hvað er í tísku hverju sinni. Það er kominn tími á breytingar og þær eru í loftinu, sem betur fer.“ London er frábær borg London er frábær borg að hennar sögn enda býr hún yfir mikilli fjöl- London er frábær borg sem býr yfir mikilli fjölbreytni og þar kann Sólveig vel við sig. MYND/TÓMAS HOWSER HARÐARSON Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ breytni í menningu, fólki, mat og öllu sem tengist tískubransanum. „Fyrir vikið getur borgin verið svo- lítið yfirþyrmandi sem er um leið helsti kostur hennar. Það verður þó áhugavert að sjá hvað gerist núna vegna Brexit-málsins sem getur haft mikil áhrif á tískubransann. Ég hef heyrt að margir í bransan- um séu órólegir yfir ástandinu og íhuga jafnvel að flytja bækistöðvar sínar frá Englandi.“ Lítill frítími Vinnudagarnir eru langir í stór- borginni og lítill tími fyrir frítíma að hennar sögn. „Þó finn ég að það er ótrúlega mikilvægt að gefa sér tíma fyrir sjálfan sig, annars getur borgin gjörsamlega gleypt mann og ruglað í hausnum á manni. Því finnst mér mikilvægt að hafa góðan félagsskap og hitta vini reglulega, hreyfa mig og hugleiða. Einnig reyni ég að fara sem oftast á söfn og sýningar. Svo virkar oft líka að fá sér gin og tónik og slaka á.“ Mér finnst nefni- lega mikilvægt að þróa þetta sjúka kerfi sem tískuheimurinn vinnur eftir og því mun sýningin koma á óvart. Eftir flutninginn til London starfaði Sólveig fyrst um fjögurra mánaða skeið hjá Richard Malone þar sem hún vann meðal annars við haust- og vetrarlínuna 2019 sem var sýnd á London Fashion Week í febrúar. NORDICPHOTO/GETTY 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . M A R S 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 2 1 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 9 D -1 9 C C 2 2 9 D -1 8 9 0 2 2 9 D -1 7 5 4 2 2 9 D -1 6 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.