Fréttablaðið - 21.03.2019, Blaðsíða 48
BÍLAR
Miklar líkur eru á því
að Mazda-bílar muni
á næstu árum fást
með Rotary-vélum
en nýleg þróun á
vélinni hefur gert
þessa vélartækni afar
hagkvæma, með litla
eyðslu og mengun.
Margir muna eftir Mazda RX7 og RX8 sportbílunum með Rotary-vélum en framleiðslu þeirra
var hætt, ekki síst vegna mikillar
eyðslu vélanna og talsverðs við-
halds. Mazda hefur þó aldrei gefist
alveg upp á þessari vélartækni og
sífelldar fréttir hafa verið af frekari
þróun Mazda á Rotary-tækninni en
uppbygging vélarinnar er talsvert
frábrugðin hefðbundnum bruna-
vélum. Nú heyrast þær raddir að
Mazda hugi að bíl eða bílum sem
munu aftur fá Rotary-vélar. Þróun
Mazda á vélinni hefur leitt til þess
að hún þykir aftur eftirsóknarverð
og svo vel hefur Mazda tekist upp
að eyðsla hennar er orðin minni en
í hefðbundnum brunavélum.
Reynist afar hagkvæm í rekstri
Í viðtali sem blaðamaður ástr-
alska bílatímaritsins Drive tók við
Ichiro Hirose, yfirmann vélasmíði
Mazda, á bílasýningunni í Genf
fyrir nokkrum dögum kom fram
að fyrirhuguð þróun Rotary-vélar
sem „range extender“ hafi breyst
yfir í það að vera hugsuð sem
aðalvél einhverra bíla Mazda. Ný
Rotary-vél þeirra hafi reynst svo
hagkvæm í rekstri að bjóða mætti
hana á öllum mörkuðum þar sem
hún myndi standast allar kröfur
um bæði eyðslu og mengun,
hversu strangar sem þær væru. Því
mætti búast við bílum frá Mazda
á næstu árum með Rotary-vélar
og þá líklega fyrst í heimalandinu
Japan og í Ástralíu, en vonandi svo
sem víðast um heiminn.
Ef til vill er því Rotary-vélin
ekki alveg dauð úr öllum æðum,
en einn helsti kostur hennar
er fólginn í miklu af li frá litlu
sprengirými.
Mazda hyggur á Rotary-vél
Gordon Murrey,
sem hannaði
McLaren F1 sport-
bílinn, vinnur nú að
smíði agnarsmás en
öflugs sportbíls.
Gordon Murrey Automotive vinnur nú að smíði lítils sportbíls með 1,5 lítra og
þriggja strokka Dragon vél frá Ford
sem skilar 215 hestöf lum. Þessi vél
er sú sama og finna má í Ford Fiesta
ST en í bíl Gordons Murrey skilar
hún auka 18 hestöf lum. Ford Fiesta
bíllinn vegur 1.260 kíló en sport-
bíll Gordons Murrey mun aðeins
vega 850 kíló og verða þeim mun
sprækari.
Það mun gera þennan bíl öf lugri
per kíló en til dæmis Alfa Romeo
4C og eru 229 hestöf l á hvert tonn
í sportbílnum en 202 hestöf l per
tonn eru í Alfa Romeo 4C. Því ætti
hann að vera sneggri úr sporunum
en síðarnefndi bíllinn. Í Lotus
Elise 1,8 S Cup er til dæmis 231
hestaf l per tonn. Hinn nýi sport-
bíll Gordons Murrey, en hann
er jú einna þekktastur fyrir það að
hafa hannað McLaren F1 bílinn,
mun fá nafnið T43 og bíllinn á að
vera venjulegur götubíll en ekki
brautarbíll.
Ál og koltrefjar skýra léttvigtina
Bíllinn á að vera með helstu nauð-
synjar venjulegs ökutækis og
verður með miðstöð, hljóðkerfi og
leiðsögukerfi og fullt af öryggis-
púðum þrátt fyrir litla þyngd. Bíll-
inn er einkar smávaxinn og lengd
hans aðeins 3,6 metrar, breiddin
1,75 metrar, hæðin 1,24 metrar og
bilið milli öxla 2,5 metrar.
Undir vagninn er að mestu
smíðaður úr áli og yfirbyggingin
úr koltrefjum og það skýrir að
mestu léttvigtina. Bíllinn mun
líkjast talsvert McLaren F1 en bara
miklu minni. Hann verður með 6
gíra beinskiptingu og verður á 18
tommu léttmálmsfelgum. Bíllinn
verður með frábært loftf læði og
mun kljúfa loftið betur en f lestir
aðrir bílar. Ef til vill það besta við
þennan nýja bíl er að hann á ekki
að kosta meira en 40.000 pund,
eða um 6,4 milljónir króna. Það
mun gera hann 1,1 milljón ódýr-
ari en Alpine A110 sportbílinn og
1,9 milljónum ódýrari en Porsche
Cayman. Ekki er enn ljóst hvenær
fyrstu T43 bílarnir koma á götuna.
Öflugur þriggja strokka sportari
Þriggja strokka sportbíll Gordons Murrey mun aðeins vega 850 kíló og verða þeim mun sprækari.
Ný Rotary-vél hefur reynst svo hagkvæm í rekstri að hún myndi standast
allar kröfur um bæði eyðslu og mengun, hversu strangar sem þær væru.
Finnur
Thorlacius
finnurth@frettabladid.is
2 1 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R32 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MJÖG GOTT - MJÖG GOTT - MJÖG GOTT - VERÐ
OPIÐ TIL 22:00 ALLA DAGA
HALLVEIGARSTÍG 1 - FAXAFENI 14 - REYKJAVÍK
CUCINA & LORENZO
- HÁGÆÐA ÍTALSKAR VÖRUR
ALLT SEM ÞARF Í GÓÐA PASTA VEISLU
197kr. 197kr. 197kr.
LÍFRÆNT HEILHVEITI
CONCHIGLIE
LÍFRÆNT HEILHVEITI
PENNE
LÍFRÆNT HEILHVEITI
FUSILLI
151kr. 151kr.133kr.
CELENTANI
PASTA
FUSILLI
PASTA
PENNE
PASTA
506kr.
VÍNBERJAKJARNA
OLÍA
1099kr. 1099kr.
JÓMFRÚAR
ÓLÍFU OLÍA
LÍFRÆN JÓMFR.
ÓLÍFU OLÍA
269kr.
FETTUCCINE
PASTA
275kr.
TÓMATSÓSA
MEÐ HVÍTLAUK
275kr.
TÓMATSÓSA
MEÐ BASIL
275kr.
TÓMATSÓSA
MEÐ CHILI
211kr.
TÓMAT
PASTASÓSA
r.
2
1
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
C
-F
2
4
C
2
2
9
C
-F
1
1
0
2
2
9
C
-E
F
D
4
2
2
9
C
-E
E
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K