Fréttablaðið - 21.03.2019, Page 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Við reynum eftir
fremsta megni að
fara Víkurskarðið aðra
leiðina þar sem þetta er
mikill kostnaður
Guðbergur Egill Eyjólfsson
Ein ákvörðunin, um
laun aðstoðarseðlabanka-
stjóra, var aldrei birt en
samkvæmt henni eru
mánaðarlaun hans tæpar
1,9 milljónir króna.
KJARAMÁL Kjararáð hafnaði beiðn-
um minnst 37 embættismanna, auk
allra dómara landsins, um hækkun
launa áður en ráðið var lagt niður.
Þar af voru í það minnsta tveir
sem ekki voru virtir svars. Þetta er
meðal þess sem lesa má úr fundar-
gerðum kjararáðs fyrir árin 2015-18.
Ný ver ið fék k Frét t ablaðið
fundargerðir ráðsins afhentar eftir
að hafa í tvígang þurft að leita til
úrskurðarnefndar um upplýsinga-
mál til að fá afgreiðslu ráðsins og
fjármála- og efnahagsráðuneytisins
hnekkt. Fundargerðir áranna 2015-
18 fengust af hentar en ekki eldri
fundargerðir þar sem of tímafrekt
myndi reynast að afmá upplýsingar
úr þeim.
Ráðið var lagt niður í fyrra
en áður en til þess kom tók það
ákvörðun í málum 44 starfa sem
beiðnir höfðu verið sendar um þess
efnis. Ein ákvörðunin, um laun
aðstoðarseðlabankastjóra, var
aldrei birt en samkvæmt henni eru
mánaðarlaun hans tæpar 1,9 millj-
ónir króna. Sömu sögu er að segja
um þóknun dómara í Félagsdómi
og nefndarmanna nefndar um
dómarastörf. Forseti Félagsdóms
fær til að mynda rúmar 870 þúsund
krónur greiddar alla mánuði ársins
fyrir störf sín.
Þegar lögum um kjararáð var
breytt árið 2016 var sett bráða-
birgðaákvæði í lögin um það að
málum sem væri ekki lokið fyrir
1. janúar 2018 skyldi ljúka sam-
kvæmt eldri lögum. Af því leiddi að
í kringum jólahátíðina 2017 sendi
fjöldi embættismanna bréf til ráðs-
ins með beiðni um hækkun launa.
Síðasti fundur ráðsins það ár var
hins vegar 20. desember og erindi
sem bárust eftir þann dag því ekki
afgreidd heldur vísað frá.
Það er þó ekki algilt. Til dæmis
var beiðni skólameistara Flensborg-
arskólans ekki afgreidd þótt hún
væri send 15. desember 2017. Svip-
aða sögu er að segja af erindi for-
stöðumanns Stofnunar Vilhjálms
Stefánssonar. Þá voru erindi for-
stjóra Skipulagsstofnunar og fram-
kvæmdastjóra fjölmiðlanefndar
ekki afgreidd þótt þau hefðu borist
í maí 2017. Erindi forstjóra Byggða-
stofnunar og Íbúðalánasjóðs hlutu
heldur ekki afgreiðslu þrátt fyrir að
vera enn eldri.
Til viðbótar þessu má nefna ítrek-
uð erindi Dómarafélags Íslands með
beiðnum um endurskoðun á laun-
um dómara. Bréfanna er hins vegar
ekki getið í fundargerðum ráðsins
og virðist sem ráðið hafi ákveðið að
taka þau ekki til meðferðar.
Að endingu er vert að nefna að
ráðið hafnaði að taka beiðni lög-
reglustjóra landsins um endurupp-
töku launa sinna til meðferðar þar
sem „[ekki yrði ráðið] að breytingar
hafi orðið á starfi lögreglustjóra
sem breyta mati kjararáðs á launa-
kjörum þeirra frá því sem fram
kemur í [úrskurði frá 2015].“
Í gagnabeiðni Fréttablaðsins
var óskað eftir bréfum ráðsins til
þeirra sem undir það heyra vegna
almennrar hækkunar og breyt-
ingar á einingakerfi ráðsins árið
2011. Taldi blaðið að tækifærið
hefði verið nýtt til að hækka laun
einhverra umfram almennu hækk-
unina. Þeirri beiðni var hafnað. Í
bókun frá árinu 2015 kemur á móti
fram að forstjóri Landspítalans var
sá eini sem var hækkaður umfram
almennu hækkunina. Hækkuðu
laun hans við þetta um tæp 24 pró-
sent meðan aðrir þurftu að sætta sig
við lægri hækkun. joli@frettabladid.is
Misræmi í afgreiðslu kjararáðs
Kjararáð tók ekki til afgreiðslu erindi tuga embættismanna áður en það var lagt niður. Hluti síðustu
ákvarðana ráðsins ekki birtur. Forstjóri Landspítalans sá eini sem hlaut hulduhækkun árið 2011.
Kjararáð var lagt niður í fyrra, en launaákvarðanir ráðsins höfðu sætt harðri gagnrýni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ís-Band rekur fullkomið bifreiða- og þjónustuverkstæði,
ásamt varahlutaþjónustu.
Mikil lofthæð gerir okkur kleift að sinna húsbílum,
atvinnubílum og stórum pallbílum.
Tæknimenn okkar eru með áratuga reynslu af
viðgerðum á flestum gerðum bifreiða
og hafa hlotið sérþjálfun frá
FCA (Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Jeep og RAM).
STUTTUR BIÐTÍMI
Tímapantanir
í síma 534 4433
Erum á Smiðshöfða 5
ALLAR ALMENNAR BIFREIÐAVIÐGERÐIR
OG SMURÞJÓNUSTA
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF - VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN - SMIÐSHÖFÐA 5 - 110 REYKJAVÍK
SÍMI 534 4433 - THJONUSTA@ISBAND.IS - WWW.ISBAND.IS - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00
SAMGÖNGUMÁL „Þessi samgöngu-
bót er aðeins fyrir þá efnameiri.
Við verðum að horfast í augu við þá
staðreynd,“ segir Guðbergur Egill
Eyjólfsson, íbúi í Fnjóskadal, en
hann rekur ásamt fjölskyldu sinni
dýragarðinn Daladýrð á bænum
Brúnagerði í dalnum.
Frá því Vaðlaheiðargöng voru
opnuð hefur hann nýtt göngin enda
margt að sækja til Akureyrar. Nú er
svo komið að hann hefur tvisvar
keypt 100 ferðir í göngin og eru
þær ferðir búnar. „Við reynum eftir
fremsta megni að fara Víkurskarðið
aðra leiðina þar sem þetta er mikill
kostnaður,“ segir Guðbergur.
Þá rekur fjölskyldan saumastofu
og hafa starfsmenn komið frá Akur-
eyri. „Allt mögulegt vinnuafl fyrir
svæðið býr á Akureyri. Til að vera
samkeppnishæf þá þurfum við að
greiða hærri laun. Þetta er því nokk-
ur farartálmi,“ segir Guðbergur.
Hilmar Gunnlaugsson, for-
maður stjórnar Vaðlaheiðarganga,
segir 700 krónur á hverja ferð ekki
hátt verð og að fyrirtækið verði að
geta greitt af lánum. „Við sjáum á
umferðartölum að við erum að fá í
gegnum göngin þá umferð sem fór
um Víkurskarðið í fyrra en auðvitað
er of snemmt að fullyrða það að það
haldi áfram,“ segir Hilmar.
Göngin voru opnuð rétt fyrir síð-
ustu jól og gjaldtaka hófst í byrjun
árs. Mikið hefur verið rætt um að
gjald fyrir þyngstu bifreiðar sé of
hátt og fyrirtæki í ferðaþjónustu
hafa gagnrýnt hátt verð.
Vaðlaheiðargöng reyndust miklu
dýrari en ráð var fyrir gert og því
þarf að greiða niður hærra lán með
veggjöldum en vonir stóðu til. – sa
Segir Vaðlaheiðargöng aðeins fyrir þá efnameiri
STJÓRNMÁL Hvorki Öryrkjabanda-
lagið né Alþýðusambandið ætla að
skrifa undir skýrslu samráðshóps
um breytt framfærslukerfi almanna-
trygginga. Ásmundur Einar Daðason
félagsmálaráðherra skipaði hópinn
í apríl 2018 og til stóð að vinnunni
yrði lokið síðasta haust. Katrín Jak-
obsdóttir forsætisráðherra sagði í
ræðu á þingi á þriðjudaginn að vinna
starfshópsins væri á lokametrunum.
Halldór Sævar Guðbergsson,
varaformaður ÖBÍ, segir í samtali
við Fréttablaðið að hvorki ÖBÍ né
ASÍ ætli að skrifa undir skýrsluna.
„Stjórn ÖBÍ treysti sér ekki til að
skrifa undir þetta vegna þess að við
sjáum ekki að þetta verði fötluðu
fólki til framdráttar. Framfærslan
er ekki tryggð og það er mjög óljóst
hvernig kerfið verður byggt upp,“
segir Halldór Sævar. Þar að auki
sé ekki skýrt að afnema eigi tekju-
skerðingar.
Til stóð að skrifa undir skýrsluna
í síðustu viku, fundurinn var afboð-
aður eftir að afstaða ÖBÍ lá fyrir. Ekki
er búið að boða annan fund. - ab.
Ætla ekki að
skrifa undir
Halldór Sævar Guðbergsson, vara-
formaður ÖBÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 1 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
1
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
D
-0
1
1
C
2
2
9
C
-F
F
E
0
2
2
9
C
-F
E
A
4
2
2
9
C
-F
D
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K