Fréttablaðið - 21.03.2019, Page 12
Staðalbúnaður í Comfort útgáfu er meðal annars: 16” álfelgur, leiðsögukerfi með Íslandskorti,
þokuljós, miðstöð með loftkælingu, brekkuhemlun (eingöngu í 4x4), hraðastillir með
hraðatakmörkun, fjarlægðarskynjarar að aftan, neyðarhemlunarhjálp, start/stopp búnaður,
skyggðar rúður að aftan, hiti í framsætum.
Aukalega í Prestige útgáfu: 17” álfelgur, Multiview 360° myndavélakerfi, sjálfvirk miðstöð með
loftkælingu, lykillaust aðgengi, leðuráklæði á sætum.
Nýr Dacia Duster
Gerðu virkilega
góð kaup!
Verð frá:
3.690.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
2
2
0
2
D
a
c
ia
D
u
s
te
r
5
x
2
0
a
lm
e
n
n
f
e
b
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Bílaleigan Enterprise, sem er í eigu
Kynnisferða, mun kaupa um 30
prósentum færri nýja bíla í ár en í
fyrra. Bílaleiga Akureyrar/Höldur
mun kaupa 20-23 prósentum færri
nýja bíla í ár og Hertz á Íslandi mun
kaupa mun færri nýja bíla. Þetta
segja stjórnendur fyrirtækjanna
við Fréttablaðið.
Steingrímur Birgisson, forstjóri
Bílaleigu Akureyrar, segir að stjórn-
endur fyrirtækisins hafi horft fram
á erfiðara rekstrarumhverfi og því
ákveðið að fækka bílum í f lotanum.
Frá og með áramótum hafi bíla-
leigur orðið að greiða full vörugjöld,
launakostnaður sé hár og fari hækk-
andi og samhliða minna framboði
af f lugi til landsins var fyrirséð að
ferðamönnum myndi fækka. „Það
er orðið erfitt að ná endum saman,“
segir hann.
Erlendum farþegum sem flugu frá
Keflavíkurflugvelli fækkaði um sjö
prósent á milli ára í febrúar og um
6,4 prósent ef janúar er tekinn með
í reikninginn, samkvæmt tilkynn-
ingu ISAVIA.
Björn Ragnarsson, forstjóri
Kynnisferða, segir að almennt hafi
afkoman af rekstri bílaleiga verið
afar döpur. „Við höfum markvisst
verið að draga úr framboði af bíla-
leigubílum,“ segir hann. Um sé að
ræða viðleitni til að draga úr fram-
boði og hækka verð. Verðin hafi
verið ágæt á sumrin en langt undir
kostnaðarverði á veturna.
Sigfús Bjarni Sigfússon, forstjóri
Hertz á Íslandi, hefur verið í ferða-
mannabransanum í hartnær 30 ár
og rekið bílaleigur í 20 ár. „Ég hef
ekki upplifað jafn mikla óvissu,“
segir hann og nefnir að óvissa sé
uppi um framtíð WOW air, hvort
leiðakerfi f lugfélaga eins og Ice-
landair og Norwegian sem f ljúga
hingað til lands muni raskast vegna
þess að f lugvélarnar Boeing 747
MAX 8 hafi tímabundið verið kyrr-
settar og nú séu verkföll yfirvofandi
sem beint sé að ferðaþjónustunni.
„Í ofanálag voru álögur á bílaleig-
ur auknar um áramótin. Nú verðum
við að greiða full vörugjöld af bílum
í útleigu. Leigubílstjórar, útgerðir og
flugfélög þurfa ekki að greiða vöru-
gjöld af sínum atvinnutækjum.
Þetta er ósanngjarnt. Aukinheldur
erum við einu fyrirtækin í ferða-
þjónustu sem greiða virðisauka-
skatt í hæsta þrepi sem er með því
hæsta sem þekkist í heiminum,“
segir Sigfús.
Fram kom í skýrslu KPMG í haust
að hagnaður bílaleiga sem hlutfall
af tekjum hefði dregist saman úr
6,3 prósentum árið 2016 í 0,5 pró-
sent árið 2017. Fjögur af níu félögum
sem könnuð voru og telja tæplega
60 prósent af markaðnum, voru
rekin með tapi. Vandinn fólst í því
að launakostnaður og fjármagns-
kostnaður fór vaxandi.
Enterprise tapaði 88 milljónum
árið 2017 en Björn segir að tapið
hafi verið eitthvað minna í fyrra.
„Árið 2018 í rekstri Hertz á Íslandi
var hið versta í níu ár. En við vorum
réttum megin við strikið,“ segir
Sigfús. Fyrirtækið hagnaðist um 90
milljónir árið 2017.
Björn segir að fyrir tveimur árum
hafi meðalleigutími verið sjö, átta
dagar en sé nú fimm, sex dagar.
Ferðamenn, sem geti keyrt ótak-
markað án viðbótarkostnaðar,
keyri hins vegar jafn mikið en á
styttri tíma. Bílarnir séu því meira
eknir og það þurfi að afgreiða þá
oftar til viðskiptavina sem auki
rekstrarkostnað.
St jór nendu r bí la leig a er u
almennt sammála um að pantanir í
janúar og febrúar hafi verið ágætar.
Björn segir að þær bókanir sem nú
berist séu einkum frá ferðaskrifstof-
um. Eftir að fór að bera á verkfalls-
aðgerðum hafi þær dregist saman
um 20-30 prósent. Steingrímur segir
að ekki hafi dregið úr pöntunum hjá
Bílaleigu Akureyrar en fyrirspurnir
vegna verkfalla séu margar.
Steingrímur bendir á að almennt
séu bílaleigubílar bókaðir í mars
til júní. Sigfús Bjarni segir að fyrst
kaupi fólk f lug, því næst hótel og
loks bílaleigubíla. „Sumarið lítur
ágætlega út en við höfum kannski
fengið um ein þriðja af bókunum
sumarsins,“ segir hann.
Festa kaup á mun færri bílaleigubílum
Stórar bílaleigur bregðast við erfiðara rekstrarumhverfi með því að kaupa 20-30 prósent færri nýja bílaleigubíla í ár. Leigutímabilið
er orðið styttra og ferðamönnum fækkar. Greiða nú full vörugjöld af bílum. Launakostnaður bílaleiga hefur farið hækkandi.
Í kjölfar verkfallsaðgerða drógust pantanir saman um 20-30 prósent hjá bílaleigunni Enterprise. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
MARKAÐURINN
2 1 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
1
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
D
-0
F
E
C
2
2
9
D
-0
E
B
0
2
2
9
D
-0
D
7
4
2
2
9
D
-0
C
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K