Fréttablaðið - 21.03.2019, Side 23

Fréttablaðið - 21.03.2019, Side 23
Þorvaldur Gylfason Í DAG L ima, Perú – Tvo síðustu fimmtudaga hef ég að gefnu tilefni fjallað hér um spill-ingu. Fyrst rakti ég rás við-burðanna á Íslandi frá upp-hafi haftabúskapar 1927 fram á okkar daga og hvernig spilling gróf um sig í skjóli hafta og skömmt- unar, hermangs, ókeypis úthlutunar veiðiheimilda til útvegsmanna og einkavæðingar bankanna. Síðan stikl- aði ég á stóru í spillingarsögu Panama til að leiða lesandanum fyrir sjónir ýmsar e.t.v. óvæntar andstæður og einnig hliðstæður. Nú er komið að því að reyna að rekja í grófum dráttum samhengið í sögunni. Menningarástand og saga Spilling verður naumast rakin til ákveðinna atburða, t.d. hafta eða hermangs, heldur virðist nær að skoða hana sem inngróna hegðun á vettvangi stjórnmála og viðskipta, ákveðið menningarástand sem hefur ríkt á Íslandi síðan vísir að lýð- ræðisstjórnmálum varð til um og eftir aldamótin 1900. Heimastjórninni 1904 fylgdi sterkt f lokksræði ásamt auknum umsvifum ríkisins næstu áratugi. Hvað skyldi fyrsti ráðherr- ann, Hannes Hafstein, hafa haft fyrir stafni þau ár sem hann var ekki ráð- herra? Hann var ráðherra 1904-1909, bankastjóri Íslandsbanka 1909-1912, ráðherra aftur 1912-1914 og banka- stjóri 1914-1917 þegar heilsa hans bilaði. Tryggvi Gunnarsson, móður- bróðir hans, sat á Alþingi 1869-1885 og aftur 1894-1908 og var bankastjóri Landsbankans 1893-1909. Þarna m.a. var lagður grunnur að meira en hundrað ára samkrulli bankamála og stjórnmála. Haftakerfið 1927-1960 féll í gljúpan svörð við þessar kringumstæður og varð að gróðrarstíu fyrir hvers konar spillingu. Höftin ræktuðu sérstaka tegund hugarfars þar sem skilin milli viðskipta og stjórnmála máðust út að miklu leyti. Margar skýringar á spill- ingunni koma til álita, m.a. yfirburða- staða eins stjórnmálaf lokks í stjórn- kerfinu, fyrst Framsóknarf lokksins í skjóli skakkrar kjördæmaskipanar og síðan Sjálfstæðisf lokksins með tilheyrandi ofríki og markaðsfirr- ingu með hálfsovézkum formerkjum. Margar bækur, gamlar og nýjar, hafa lýst þessu ástandi auk annarra vitnis- burða. Meðal eldri bóka um málið má nefna Iðnbylting hugarfarsins (1988) eftir Ólaf Ásgeirsson sagnfræðing, Milliliður allra milliliða (1959) eftir Pétur Benediktsson bankastjóra og Þjóð í hafti (1988) eftir Jakob F. Ásgeirsson rithöfund. Erum við of fá? Sumir nefna fámenni sem skýringu á spillingunni þvert á tiltækar tölur. Transparency International hefur í bráðum aldarfjórðung mælt spill- ingu í stjórnmálum og stjórnsýslu um heiminn. Mælingarnar sýna að fámenn lönd mælast yfirleitt óspillt- ari en fjölmenn lönd. Meðaleinkunn fyrir spillingu í 20 löndum með færri en eina milljón íbúa var 5,3 árin 2015- 2016 borið saman við meðaleinkunn- ina 3,9 hvort heldur í 31 landi með 10-20 milljónir íbúa eða 13 löndum með f leiri en 100 milljónir íbúa. Háar einkunnir vísa á litla spillingu. Danir og Ný-Sjálendingar skora hæst með einkunnina 9,0 fyrir 2015-2016. Sómalía rekur lestina með einkunn- ina 0,9 og ætti því e.t.v. heldur að heita Ósómalía. Ef fámenni væri ein af undirrótum spillingar væri úr vöndu að ráða. Þá þyrftu fámenn ríki annaðhvort að sætta sig við spillinguna eða gera sér- stakar ráðstafanir til að uppræta hana eða jafnvel ráðast í mannfjölgun með innf lutningi fólks annars staðar að. En fámenni virðist sem sagt ekki vera sérstakt vandamál sem betur fer fyrir fámenn lönd. Eigi að síður getur talizt nauðsynlegt að gera ráðstafanir gegn spillingu í litlum löndum. Einmitt það hefur ríkisstjórnin í Panama gert að gefnu tilefni og einnig ríkisstjórn Sví- þjóðar í fyrirbyggjandi tilgangi. Hér í Perú situr Alberto Fujimori fv. forseti landsins 1990-2000 í fangelsi fyrir spillingu og mannréttindabrot. Vanheilög þrenning Órofa tengsl stjórnmála, viðskipta og banka vegna skorts á valdmörkum og mótvægi eru höfuðkennimark, mér liggur við að segja brennimark íslenzkrar spillingar. Einkavæðing bankanna var illa ef ekki glæpsam- lega útfærð og leiddi til hruns m.a. af því að stjórnvöld vildu ekki sleppa takinu af bönkunum. Stjórnmála- menn höfðu af hent útvegsmönnum ókeypis aðgang að auðlindinni í sjónum og töldu vænlegt að hafa svipaðan hátt á einkavæðingu bankanna. Vart mátti á milli sjá hvor röddin var háværari í halelújakórnum að baki bankanna fram að hruni, rödd stjórnmálamannanna eða rödd viðskiptalífsins. Viðskiptaráð taldi Ísland standa Norðurlöndum „framar á f lestum sviðum“. Bankarnir lánuðu þingmönnum mikið fé fyrir hrun, einkum til hlutabréfakaupa með veði í bréfunum sem gufuðu upp. Tíu alþingismenn, þar af sjö þingmenn Sjálfstæðisf lokksins, skulduðu bönk- unum 100 milljónir króna eða meira hver um sig, sumir miklu meira, þegar bankarnir hrundu. Bankarnir halda áfram að veita útvegsfyrirtækjum lán með veði í sameignarauðlind þjóðar- innar. Þrenningin lætur sér ekki segjast. Hún mun halda uppteknum hætti eða jafnvel færa sig upp á skaftið nema fólkið í landinu setji henni stólinn fyrir dyrnar. Heim til þín, Ísland Bankarnir halda áfram að veita útvegsfyrirtækjum lán með veði í sameignarauðlind þjóðarinnar. Þrenningin lætur sér ekki segjast. Hún mun halda uppteknum hætti eða jafnvel færa sig upp á skaftið nema fólkið í landinu setji henni stólinn fyrir dyrnar. E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 8 1 4 H y u n d a i i2 0 a lm e n n 5 x 2 0 m a rs Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is Nýr og spennandi Hyundai i20. Sýndu skynsemi. Veldu nýjan i20. Nýr i20 er fáanlegur með sjálfvirkri neyðarhemlun, akreinavara og sjálfvirkri hækkun og lækkun aðalljósa. Innréttingin hefur fengið nýtt og vandaðra yfirbragð, nýr 7" snertiskjár nýtir sér fullkomnustu margmiðlunartækni á borð við Apple CarPlay™ og Android Auto™. Verið velkomin að reynsluaka nýjum og glæsilegum Hyundai i20. Verð frá: 2.290.000 kr. Hyundai býður viðskiptavinum sínum upp á eina víðtækustu ábyrgð sem völ er á. Öllum Hyundai bílum fylgir 5 ára verksmiðjuábyrgð og ótakmarkaður akstur. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23F I M M T U D A G U R 2 1 . M A R S 2 0 1 9 2 1 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 9 D -2 D 8 C 2 2 9 D -2 C 5 0 2 2 9 D -2 B 1 4 2 2 9 D -2 9 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.