Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.03.2019, Qupperneq 60

Fréttablaðið - 21.03.2019, Qupperneq 60
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Auglýsing um deiliskipulagstillögu fyrir Grænuvelli og nágrenni á Selfossi í Sveitarfélaginu Árborg. Samkvæmt 1.mgr.41.gr. skipulagslaga n.r. 123/2010 auglýsir bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar tillögu að deiliskipu- lagi Grænuvalla og nágrennis Deiliskipulagstillagan nær yfir Árveg 2-10, Fagurgerði 1-9, Grænuvelli 1-8a, Hörðuvelli 2-6 og Austurveg 25-35. Fyrirhugað skipulagssvæði afmarkast af Austurvegi til suðurs, Fagurgerði til vesturs, Árvegi til norðurs og Hörðu- völlum til austurs. Skipulagssvæðið er alls um 3,2 ha að flatarmáli. Í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2010-2030 er meirihluti skipulagssvæðisins, sem hér um ræðir, skil- greindur sem íbúðarsvæði. Suðurhlutinn, meðfram Austurvegi, er skilgreindur sem miðsvæði. Samkvæmt aðalskipulaginu er lögð áhersla á þéttingu íbúðabyggðar í eldri hluta Selfoss og möguleikar á þéttingu byggðar taldir töluverðir í og við miðbæinn, beggja vegna Austurvegar. Markmið deiliskipulagstillögunar er að skýra kvaðir og heimildir á byggðum og óbyggðum lóðum á skipu- lagssvæðinu. Með deiliskipulaginu er gerð breyting á lóðunum Grænu- vellir 8 og 8b. Lóðin sem stendur nær götunni Grænu- völlum verður íbúðarlóð, nr. 8 og sú sem fjær stendur, nr. 8a verður ætluð fyrir bílastæði. Á þeirri lóð verður ekki byggingarréttur. Einnig er gerð sú breyting á lóðinni Hörðuvellir 2 að hún skiptist í tvær lóðir, Hörðuvelli 2 og Árveg 10. Teikning ásamt greinargerð og skilmálum, vegna tillög- unnar mun liggja frammi á skrifstofu skipulags- og bygg- ingarfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi frá 21. mars 2019 til og með 2. maí 2019. Öllum er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila athugasemdum rennur út fimmtudaginn 2.maí 2019 og skal þeim skilað skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa á skrifstofu hans að Austurvegi 67, 800 Selfossi. Á sama tíma er teikning, greinargerð og skilmálar til kynningar á heimasíðu Árborgar http://www.arborg.is þar sem hægt er að skoða tillöguna og senda athugasemdir til skipulags- og byggingarfulltrúa á netfangið bardur@ arborg.is Virðingarfyllst, Bárður Guðmundsson skipulags- og byggingarfulltrúi. LÍFIÐ ER Á FRETTABLADID.IS Líð á frettabladid.is allar um fólk, menningu, tísku, heilsu og margt eira. Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook Forlagið gefur út fjórar nýjar hljóðbækur í dag; Að vetrarlagi eftir Isabel Allende, Listamanna­laun eftir Ólaf Gunnars­son, Barnið sem hrópaði í hljóði eftir Jónínu Leósdóttur og síðast en ekki síst Sextíu kíló af sól­ skini sem nýlega skilaði Hallgrími Helgasyni Íslensku bókmennta­ verðlaununum. Hallgrímur leiklas hljóðbókar­ útgáfuna sjálfur með slíkum tilþrif­ um að hann komst ekki yfir nema 30 blaðsíður í hverri lotu. „Þetta tók sinn tíma. Ég gat aldrei lesið nema tvo tíma í einu,“ segir Hallgrímur. „Þá var ég bara alveg búinn.“ Hallgrímur var í átta vikur við upptökur á hljóðbókinni sem er um það bil átján klukkustunda löng þannig að verkið útheimti gríðarlega orku og vinnu af hálfu höfundarins. Hallgrímur reyndi eftir fremsta megni að blása enn meira í lífi í fjörugan texta sinn með því að gefa persónum mismunandi raddir. „Erfiðast við þetta var kannski líka að ég var ekki alveg viss um norð­ lenskuna, hvernig hún var töluð á þessum tíma. Mér finnst nú eigin­ lega engin norðlenska í Siglufirði núna, eða minni heldur en í Ólafs­ firði og á Dalvík og Akureyri, en held hún hafi nú verið meiri í upp­ hafi 20. aldar.“ Fleiri ljá bókinni eyra Egill Örn Jóhannsson, forstjóri For­ lagsins, segir að á undanförnum árum hafi vöxturinn í bókaútgáfu á alþjóðavísu verið mestur í hljóð­ bókum og Forlagið hafi brugðist við þeirri þróun. „Við í Forlaginu höfum ákveðið að fjárfesta töluvert á næstu misserum í útgáfu hljóð­ bóka,“ segir Egill. „Þessi hljóðbóka­ markaður er mjög spennandi,“ segir H a l l g r í m u r . „Sjálfur hef ég verið að hlusta á bækur og þetta er bara svolítið önnur u p pl i f u n á b ó k m e n n t ­ unum og mjög s k e m m t i l e g . Síðan vill maður helst gera þetta sjálf­ ur svo þetta sé þá til og ég lagði mig allan fram við að gera þetta vel. Og maður vonar bara að fólk muni stökkva á þetta vegna þess að þetta er form sem hentar nútímalífi.“ Hallgrímur bendir á að fólk sé alltaf á ferð og f lugi og þá nýtist hljóðbókin vel. „Svo er þetta mjög gott til að sofna út frá á kvöldin. Fólk sofnar yfirleitt ef það setur hljóðbók í eyrun. Bara verst að þegar það vaknar veit það ekkert hvar í bókinni það sofnaði.“ Forlagið hefur reist sitt eigið hljóðver þar sem stefnan er að taka upp að lágmarki 15­20 titla á ári auk þess sem stefnt er að því að nýta aðra aðila til þess að geta aukið verulega við útgáfuna á árinu. Stoltur útgefandi „Við setjum stefnuna á að gefa út allt að 30 hljóðbækur á árinu og nú er markmiðið fyrst og fremst að fjölga hlustendum og opna heim hljóð­ bókanna fyrir sem flestum og þess vegna höfum við ákveðið að fagna útkomu bókar Hallgríms á hljóð­ bók með því að selja hana á aðeins 490 krónur næstu daga,“ segir Egill. „Ég er ákaf lega stoltur af þess­ ari útgáfu og þetta er partur af þeirri við­ leitni, að sem f lestum verði g e r t k l e i f t að kaupa og hlusta á verð­ launabók Hall­ gríms í algjörlega frábærum lestri. Ég leyfi mér að segja að þessi útgáfa sætir tíðindum.“ Forlagið sendi í fyrra frá sér smáfor­ ritið Hljóðbók, app fyrir bæði Android­ og Apple­tæki til þess að streyma hljóðbókum. Egill segir uppfærslu á forritinu væntanlega á næstu vikum þar sem notendum verður meðal annars gert kleift að hlaða hljóðbókunum niður þannig að þeir geti hlustað þegar þeir eru utan netsambands. Athugið að hægt er að hlusta á Hallgrím lesa fyrsta kaf la bókar sinnar á Fréttablaðið.is. thorarinn@frettabladid.is Hallgrímur kláraði 60 kíló á átta vikum Verðlaunabók Hallgríms Helgasonar Sextíu kíló af sólskini kemur út á hljóðbók í dag en höfundurinn leiklas hana sjálfur með mikl- um tilþrifum á átta vikum sem kostuðu hann mikla orku og vinnu. Hallgrímur gaf sig allan í upplesturinn á verðlaunabók sinni Sextíu kíló af sólskini og tók sér átta vikur í verkið og komst ekki í gegnum meira en 30 blaðsíður í senn en bókin er um átján klukkustunda löng. MYND/GASSI SJÁLFUR HEF ÉG VERIÐ AÐ HLUSTA Á BÆKUR OG ÞETTA ER BARA SVOLÍTIÐ ÖNNUR UPPLIFUN Á BÓKMENNTUNUM OG MJÖG SKEMMTILEG. Hallgrímur Helgason Egill Örn er ákaflega stoltur af leiklestri Hall- gríms og fullyrðir að út- gáfan sæti tíðindum. 2 1 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R44 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 1 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 9 D -0 F E C 2 2 9 D -0 E B 0 2 2 9 D -0 D 7 4 2 2 9 D -0 C 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.