Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 2

Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 2
Veður Léttskýjað að mestu S-til á landinu, en skýjað og stöku él norðan heiða. Austan 3-13, hvassast syðst. Skýjað og úrkomulítið A-lands, annars bjart með köflum. Hiti 2 til 8 stig að deginum, en víða nætur- frost. SJÁ SÍÐU 44 Þjóðleg hefð í Kvennaskólanum Hinn árlegi peysufatadagur Kvennaskólans í Reykjavík var haldinn hátíðlegur í gær. Að vanda klæddu nemendur á öðru ári sig upp í íslenskan búning og skemmtu sér og öðrum með þjóðlegum söng og dansi í Miðbæjarskólaportinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÁVALLT SÓL SKÍN SÓLARFERÐ VERÐ FRÁ 75.900 KR. NÁNAR Á UU.IS ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS DÓMSMÁL „Þetta hlýtur að opna leiðir fyrir lögreglu til að sekta öku- menn bifreiða vegna upplýsinga sem fengnar eru úr staðsetningar- tækjum ökutækja,“ segir Haukur Örn Birgisson, lögmaður Magnúsar Garðarssonar, fyrrverandi forstjóra United Silicon. Landsréttur staðfesti dóm Hér- aðsdóms Reykjaness, sem dæmt hafði Magnús í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hrað- akstur á Reykjanesbraut. Ákæru- valdið hafði áfrýjað dómnum til Landsréttar og gerði þá kröfu að Tesla-bifreið forstjórans fyrr- verandi yrði gerð upptæk. Héraðs- dómur hafði hafnað því en Lands- réttur féllst á kröfuna í dag. Haukur segir í samtali við Frétta- blaðið að Magnús hafi fulla ástæðu til að vera ósáttur við dóminn. Dómstóllinn hafi verið að leggja blessun sína yfir nýja tegund af hraðamælingum bifreiða. „Hingað til hafa skilyrði sem gilda í hrað- akstursmálum verið ströng. Þau hafa snúist um radarmælingar og strangar kröfur verið gerðar til lög- reglu og útbúnaðar,“ segir Haukur. Nú hafi hins vegar verið fallist á að byggja dóminn á upplýsingum úr hraðarita bíls, búnaði sem nú sé til staðar í f lestum nýjum bílum. – bg Magnús sviptur Tesla-bílnum Magnús Garðarsson fékk fjögurra mánaða skilorð. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Fleiri myndir er að finna á +Plússíðu Frétta- blaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Fréttablaðs- appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS STJÓRNMÁL Gunnar Bragi Sveins- son, þingmaður Miðf lokksins, er farinn í leyfi frá þingstörfum. For- mönnum og þingflokksformönnum flokka á Alþingi var send tilkynning þess efnis í gær. Ekki náðist í Gunnar Braga í gær. Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðf lokksins, varðist fregna um leyfið en sagði að breytingar yrðu tilkynntar á mánudag, ef þær yrðu, þegar varamaður myndi þá taka við af Gunnari. Hann sagðist ekki vita hvers vegna Gunnar Bragi ætlaði í leyfi frá þingstörfum. Gunnar Bragi fór í leyfi í nóvem- ber vegna Klausturmálsins ásamt Bergþóri Ólasyni og sneru þeir báðir aftur 24. janúar síðastliðinn. – la Gunnar Bragi farinn í leyfi Gunnar Bragi Sveinsson. VINNUMARKAÐUR „Fólk um allan heim er að hugsa um framtíð vinn- unnar af því að breytingarnar hafa verið svo hraðar. Við getum horft til þátta eins og tækninnar, lofts- lagsbreytinga, lýðfræðinnar og hnattvæðingarinnar. Það er verið að spyrja grundvallarspurninga um hvernig vinnan verði í fram- tíðinni,“ segir Guy Ryder, forstjóri Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO). Ryder var í vikunni meðal fyrir- lesara á alþjóðlegri ráðstefnu í Hörpu sem haldin var í samvinnu ILO og Norrænu ráðherranefndar- innar. ILO fagnar á árinu hundrað ára afmæli sínu og af því tilefni var hleypt af stokkunum sérstöku verkefni sem fjallar um framtíð vinnunnar. „Það er okkur hjá ILO hvatning að horfa til Norðurlandanna sem eru svo oft á toppnum þegar kemur að málefnum vinnumarkaðarins og f leiri málaf lokkum. Þau eru mjög virk í þessari framtíðar- vinnu,“ segir Guy Ryder. Hann segir mikilvægt að huga að því hvernig eigi að undirbúa fólk fyrir þær breytingar sem fram undan eru. „Við erum stödd í miðju breytingaferli. Stóru skilaboðin sem við viljum koma á framfæri eru þau að framtíðin er ekki ráðin. Framtíðin bíður ekki eftir því að gerast. Við þurfum að skapa fram- tíðina og móta hana.“ Þannig þurfi stjórnvöld, aðilar vinnumarkaðar og samfélög að ræða þessi mál. „Því á endanum snýst það hvernig við störfum í framtíðinni um framtíð okkar samfélaga. Þetta snýst um jafn- rétti, þátttöku, hamingju og efnis- lega velferð.“ Aðspurður segir Ryder að þessir aðilar séu í dag ekki undirbúnir að fullu fyrir komandi breytingar. Það sé hins vegar hvetjandi að þessi umræða eigi sér nú stað. „Fólk er að tala um vinnuna á hátt sem ég hef ekki upplifað í langan tíma. Við höfum oft þurft að glíma við vandamál tengd fjármálakerfinu, viðskiptum eða umhverf ismálum. Vinnumálin hafa að einhverju leyti orðið út undan.“ Ryder segist ekki hafa áhyggjur af því að framtíðin feli það í sér að það verði viðvarandi skortur á störfum. „Fyrir 20 árum voru einhverjir fræðimenn að tala um endalok vinnunnar. Vélmenni myndu taka yfir störfin og við gætum bara setið heima og haft það gott. Ég held að fólk sé hætt að tala svona.“ Fram undan séu þó gríðarlegar breytingar á vinnuumhverfinu. „Fólk mun þurfa að færa sig yfir í tegundir starfa sem eru ekki enn þá til í dag. Ég held við séum að upp- lifa mikið umrót í vinnuumhverfi heimsins, sennilega á skala sem við höfum ekki séð áður. Við munum hvorki sjá endalok vinnunnar né mikinn skort á störfum. En við munum sjá miklar breytingar sem við þurfum að ná stjórn á og gera það vel.“ sighvatur@frettabladid.is Þurfum að skapa og móta framtíðina Forstjóri Alþjóðavinnumálastofnunarinnar segir að þótt gríðarlegar breyt- ingar séu í farvatninu á vinnuumhverfi heimsins óttist hann ekki varanleg- an skort á störfum. Hins vegar megum við ekki bara bíða eftir framtíðinni. Framtíð vinnunnar var rædd á ráðstefnunni FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Guy Ryder, forstjóri ILO. 6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :1 6 F B 1 0 4 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C 1 -E 6 8 C 2 2 C 1 -E 5 5 0 2 2 C 1 -E 4 1 4 2 2 C 1 -E 2 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 0 4 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.