Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 6

Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 6
Ég tel mjög brýnt að brugðist verði við eins fljótt og auðið er Benedikt Bogason, stjórnarfor- maður Dómstólasýslunnar Aðalfundur Félags íslenzkra símamanna verður haldinn þriðjudaginn 16. apríl 2019, kl. 18.00, á Stórhöfða 31, fundarsalur 4. hæð. AÐALFUNDUR 2019 DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. Skýrsla stjórnar Reikningar félagsins Umræða um skýrslu stjórnar Kosningar 2. Lagabreytingar. 3. Önnur mál. Kveðja, stjórn Félags íslenzkra símanna Vertu með í páskaleik Góu á goa.is! Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Vinnustaðanámssjóði. Sjóðurinn veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi skv. aðalnámskrá framhaldsskóla. Umsóknarfrestur er til 19. nóvember 2019, kl. 16:00. Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi. Umsóknargögn og leiðbeiningar er að finna á www.rannis.is/sjodir/menntun/vinnustadanamssjodur/ Umsóknum skal skilað á rafrænu formi. Nánari upplýsingar veitir Skúli Leifsson, sími 515 5843, skuli.leifsson@rannis.is Vinnustaðanámssjóður Umsóknarfrestur til 19. nóvember H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n DÓMSMÁL Landsréttarmálið var ekki til umræðu í ríkisstjórn í vikunni en tæpar fjórar vikur eru síðan Mannréttindadómstóll Evr- ópu kvað upp dóm þess efnis að það samræmdist ekki ákvæði sátt- málans um réttláta málsmeðferð að dómarar sem ekki voru skipaðir í samræmi við réttar málsmeðferðar- reglur dæmi mál.  Landsréttur starfar ekki af fullum krafti eftir dóminn og töluverð óvissa ríkir bæði vegna mögu- legs málskots til efri deildar MDE og þess hvernig skipan Landsréttar verður á næstu misserum og til frambúðar vegna dómsins. „Ég tel mjög brýnt að brugðist verði við eins f ljótt og auðið er því það er augljóst að Landsréttur getur ekki sinnt sínu hlutverki með góðu móti þegar fjórir dómarar af fimm- tán eru ekki að störfum,“ segir Bene- dikt Bogason, stjórnarformaður Dómstólasýslunnar. Benedikt segir að því lengri töf sem verði á því að ákvarðanir verði teknar um viðbrögð við dóminum, því meiri dráttur verði á meðferð mála við Landsrétt. „Það er mjög bagalegt ef þetta tefst lengi, því ef dráttur byrjar að verða á meðferð mála getur sá vandi undið upp á sig á skömmum tíma og orðið erfiður viðureignar,“ segir Benedikt. Þær ákvarðanir sem þarf að taka í kjölfar dómsins eru tvíþættar. Ann- ars vegar þarf að ákveða hvort mál- inu verði skotið til efri deildar MDE en mjög skiptar skoðanir hafa verið um það meðal stjórnmálamanna, dómara og fræðimanna. Hins vegar þarf ákveða til hvaða ráðstafana verður gripið til að tryggja eðlilega virkni Landsréttar en ákvarðanir þess efnis bíða væntanlega þangað til fyrir liggur hvort leitað verði endurskoðunar dómsins. Verði slíkrar endurskoð- unar leitað þarf að tryggja virkni réttarins meðan óvissa ríkir um endanlega niðurstöðu en sú óvissa gæti varað í tvö ár. Verði hins vegar ákveðið að una dómi þarf að ákveða hvernig eigi að bregðast við dóminum og koma í veg fyrir áframhaldandi brot gegn ákvæði sáttmálans. Benedikt segir Dómstólasýsluna hafa bent á einu raunhæfu leiðina úr vanda Landsréttar, í erindi til stjórnvalda strax í sömu viku og dómur MDE var kveðinn upp. Í erindinu er lagt til að dómurum við Landsrétt verði f jölgað um fjóra en til þess þarf lagabreytingu. Aðspurður segist Benedikt ekki hafa fengið viðbrögð frá stjórn- völdum við erindinu.  adalheidur@frettabladid.is Brýnt að bregðast við vanda Landsréttar Brýnt er að binda enda á óvissuna um Landsrétt að mati Dómstólasýslunnar. Bagalegt er dráttur verður á meðferð mála. Málið var ekki rætt í ríkisstjórn í vikunni. Rúmar þrjár vikur liðnar frá dómi Mannréttindadómstóls Evrópu. Benedikt var meðal framsögumanna á málstofu um Landsrétt á Lagadögum í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR GRIKKLAND Lögreglu og f lóttafólki lenti saman í Grikklandi nærri landamærunum við Norður-Make- dóníu. Flóttafólkið hafði safnast saman eftir að orðrómur breiddist út um að landamærin yrðu opnuð fyrir f lóttafólki, að því er sagði á vef BBC. Hundruð höfðu safnast nærri f lóttamannabúðunum við bæinn Diavata vegna orðrómsins, sem fór eins og eldur í sinu um samfélags- miðla. Að sögn grískra fjölmiðla köstuðu f lóttamenn steinum og spýtum að lögreglu en lögregla svaraði með táragasi. Dimitris Vitsas, ráðherra inn- f lytjendamála, sagði í viðtali við gríska ríkissjónvarpið að það væri ekki rétt að landamærin yrðu opnuð. Samkvæmt Reuters kom sams konar ástand upp í Tyrklandi. Þar handtóku yfirvöld nærri 1.200 f lóttamenn sem höfðu safnast saman við landamærin að Grikk- landi vegna sögusagna um að landa- mærin yrðu opnuð. – þea Orðrómur leiddi til átaka Flóttafólk flýr táragas lögreglu við landamærin. NORDICPHOTOS/AFP BANDARÍKIN Donald Trump Banda- ríkjaforseti ætlar að sniðganga blaða ma nna k völdverð Hv ít a hússins þriðja árið í röð. Frá þessu greindi hann í gær en kvöldverður- inn er haldinn þann 27. apríl næst- komandi í höfuðborginni Washing- ton. Síðasti forseti til þess að mæta ekki á viðburðinn var Ronald Reag- an. Hann var þá að jafna sig eftir skotárás en hringdi þó inn. Trump telur hins vegar að andrúmsloftið á viðburðinum sé of neikvætt, en hann hefur átt í stormasömu sam- bandi við fjölmiðla í forsetatíð sinni. „Ég ætla að halda fjöldafund í staðinn af því að kvöldverðurinn er svo leiðinlegur og neikvæður. Við ætlum að halda mjög jákvæðan fjöldafund. Hann verður stór. En blaðamannakvöldverðurinn er of neikvæður. Ég hef gaman af jákvæð- um hlutum,“ sagði Trump. – þea Sniðgengur þriðja árið í röð Donald Trump, forseti Banda- ríkjanna. 6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :1 6 F B 1 0 4 s _ P 0 9 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C 2 -0 E 0 C 2 2 C 2 -0 C D 0 2 2 C 2 -0 B 9 4 2 2 C 2 -0 A 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 0 4 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.