Fréttablaðið - 06.04.2019, Side 12
Ekki á að meina
neytendum að
skoða netverslanir annarra
aðildarríkja.
Margrethe Vestager, samkeppnis-
málastjóri ESB
Búnaður í Jaguar F-Pace er m.a.: 18" álfelgur, halógen-aðalljós með dagljósum, framsæti með vönduðu
áklæði og átta stefnu handvirkri stillingu, baksýnisspegill með sjálfvirkri deyfingu, gljásvart króm á
skrautlista, 10" Touch Pro, upplýstar sílsahlífar úr málmi með Jaguar-áletrun.
B
ún
að
ur
b
íls
á
m
yn
d
e
r
fr
áb
ru
g
ð
in
n
au
g
lý
st
u
ve
rð
i
VERÐ FRÁ: 8.890.000 KR.
Jaguar F-Pace Prestige.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
3
3
1
0
J
a
g
u
a
r
F
-
P
a
c
e
5
x
2
0
a
p
rí
l
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
JAGUAR
HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 525 6500
JAGUAR F-PACE
ÞAÐ VILJA EKKI ALLIR
VERA EINS OG ALLIR HINIR.
Netör yg g isr a nns a kendu r f r á
tæknirisanum Cisco hafa fundið
74 stóra Facebook-hópa á undan-
förnum mánuðum þar sem nærri
400.000 meðlimir versla með ólög-
legar vörur. Rannsakendahópurinn,
sem kallast Talos, birti skýrslu um
rannsóknina þar sem þeir lýstu því
að fólk auglýsti amapóstsþjónustu
(e. spam service) gegn gjaldi, stolna
aðganga að Facebook og fjölda ann-
arra síðna og stolnar kreditkorta-
upplýsingar svo fátt eitt sé nefnt.
„Þrátt fyrir að nöfn hópanna hafi
augljóslega gefið til kynna að þar
fari fram ólögleg starfsemi hefur
sumum þessara hópa tekist að
halda sér inni á Facebook í allt að
átta ár. Þannig hafa hóparnir sank-
að að sér tugum þúsunda meðlima,“
sagði í skýrslu Talos um málið.
Rannsakendurnir sögðu svo frá
því að hópurinn hafi tilkynnt brot-
legu hópana á Facebook. Sumir
þeirra hafi verið teknir niður en í
öðrum voru einungis ákveðin inn-
legg fjarlægð. Eftir að Talos setti sig
í beint samband við öryggisteymi
Facebook var meginþorra hópanna
hins vegar eytt. Nýir hafa hins vegar
komið í staðinn og segjast Talos-
liðar vinna með Facebook að því að
taka á vandamálinu.
Ekki liggur fyrir hversu mikil við-
skipti fara fram í gegnum hópana.
Seljendur, eða tengiliðir seljenda,
biðja um greiðslu með Bitcoin eða
annarri rafmynt. Ekki er því hægt
að segja til um raunverulegt umfang
viðskiptanna.
Þetta er langt frá því að vera í
fyrsta skipti sem Facebook lendir í
vandræðum með ólögleg viðskipti
á samfélagsmiðlinum. Netöryggis-
rannsakandinn Brian Krebs, sem
heldur úti síðunni Krebs on Secur-
ity, greindi frá því fyrir um ári að
Facebook hefði þá nýlega eytt um
120 hópum, með um 300.000 með-
limi, þar sem álíka viðskipti fóru
fram.
Facebook hefur reyndar átt í
vandræðum með miklu f leira en
ólögleg viðskipti undanfarin miss-
eri. Ýmis hneykslismál hafa komið
upp er varða meðferð Facebook
á persónulegum upplýsingum,
til dæmis Cambridge Analytica-
hneykslið og öryggisgalli sem kom
upp á síðasta ári sem gerði óprúttn-
um aðilum kleift að stela 50 millj-
ónum Facebook-aðganga. Fjallað
hefur verið um að skilaboðasam-
skipti milljóna notenda séu til sölu
á veraldarvefnum og kynþáttafor-
dóma innan fyrirtækisins. Þá hefur
fyrirtækið verið gagnrýnt fyrir að
beita sér ekki af nægri hörku gegn
öfgahópum sem nota Facebook til
að ala á hatri.
Hér á landi hefur ítrekað verið
greint frá því að fíkniefni séu seld í
lokuðum Facebook-hópum. Slíkar
fréttir hafa raunar skotið upp koll-
inum ár eftir ár.
thorgnyr@frettabladid.is
Illa fengnar kortaupplýsingar
seldar í tonnavís á Facebook
Rannsakendur á vegum Cisco uppgötvuðu fjölda hópa þar sem stolnar kortaupplýsingar og stolnir að-
gangar að samfélagsmiðlasíðum eru auglýstir til sölu. Vandamálið ekki nýtt af nálinni. Facebook hefur
ítrekað lent í klandri fyrir alls konar mál og fíkniefni hafa lengi verið seld á miðlinum hér á landi.
Á myndinni sést reyndar enginn raunverulegur hakkari. NORDICPHOTOS/GETTY
TÆKNI
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur tilkynnt banda-
ríska tölvuleikjafyrirtækinu Valve
og fimm öðrum tölvuleikjafram-
leiðendum um að á upphafsstigum
rannsóknar líti út fyrir að fyrir-
tækin hafi brotið samkeppnisreglur
Evrópusambandsins með því að
meina neytendum að kaupa tölvu-
leiki þvert á landamæri innan sam-
bandsins.
Hið bandaríska Valve er einna
helst þekkt sem eigandi og rekstrar-
aðili tölvuleikjavettvangsins Steam.
Hin fyrirtækin sem framkvæmda-
stjórnin aðvaraði eru Bandai
Namco, Capcom, Focus Home, Koch
Media og ZeniMax.
„Á raunverulegum stafrænum
innri markaði eiga evrópskir neyt-
endur að geta keypt og spilað tölvu-
leiki að eigin vali óháð því hvar í
Evrópusambandinu þeir búa. Ekki
á að meina neytendum að skoða
netverslanir annarra aðildarríkja
til þess að finna hagstæðasta verðið.
Valve og hinir framleiðendurnir
fimm hafa nú tækifæri til þess að
svara okkur,“ var haft eftir Mar-
grethe Vestager, samkeppnismála-
stjóra Evrópusambandsins, í frétta-
tilkynningunni. – þea
Telja að Steam
sé að brjóta lög
6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
6
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:1
6
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
2
-0
9
1
C
2
2
C
2
-0
7
E
0
2
2
C
2
-0
6
A
4
2
2
C
2
-0
5
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
5
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K