Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 22

Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 22
Hún er tónlistar-m a ð u r t ó n -listarmanna,“ er stundum sagt um l i s t a m a n n i n n K r i s t í nu Ö n nu Valtýsdóttur. Hún hefur algjörlega farið eigin leiðir og þykir vera óút- reiknanleg og einlæg. Kristín Anna varð fræg ásamt tví- burasystur sinni Gyðu Valtýsdóttur í hljómsveitinni múm á tíunda ára- tugnum og er þekkt fyrir einstakt raddsvið og -beitingu. Háa, beitta og skæra tóna. Eftir að hún hætti í hljómsveitinni hafði hún ríka þörf fyrir að skapa á eigin forsendum og helst ekki fyrir nokkra manneskju. Hún hefur því gefið lítið út af verkum eftir sig. Í meira en áratug hefur hún hins vegar samið tónverk á píanó, sum tekin upp en önnur geymdi hún í minninu og hélt þeim þétt að sér. Jæja, Kristín … Það var ekki fyrr en vinir hennar, hjónin Ragnar Kjartansson og Ingi- björg Sigurjónsdóttir, þrýstu á hana að nú væri nóg komið og skipuðu henni í stúdíó að hún lét tilleiðast. „Þau sögðu bara: Jæja, Kristín. Nú er komið að því. Kjartan Sveinsson steig þarna líka inn og sagðist vilja stýra upptökum á plötunni. Ef þau hefðu ekki skipað mér að taka upp þessa plötu, þá hefði hún aldrei komið út.“ Útgáfutónleikarnir voru haldnir í Dómkirkjunni og platan er gefin út af Bel-Air Glamour Records útgáf- unni sem er í eigu Ragnars og Ingi- Ég er hætt að flýja „Það hefur verið svartur skuggi á sálinni í langan tíma,“ segir tónlistarkonan Kristín Anna Valtýsdóttir. Eftir að hún hætti í múm í kjölfar erfiðrar reynslu dró hún sig inn í skel og hélt listsköpun sinni að miklu leyti út af fyrir sig. Hún gaf nýverið út plöt- una I Must Be The Devil en fyrsta lagið á plötunni var samið fyrir tólf árum. „Mér hefur alltaf þótt nekt eðlileg, náttúruleg,“ segir Kristín Anna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Myndina á plötuumslaginu tók Ari Magg. bjargar og í samstarfi við The Vinyl Factory. Kristín Anna tók plötuna upp í samstarfi við Kjartan Sveins- son tónlistarmann. Hún er stödd í einum af bláu beitingaskúrunum á Granda. Þar er vinnustofa Ragnars Kjartans- sonar. Í einu horni vinnustofunnar er pálmatré úr pappa, í miðjunni er í vinnslu stórt portrett af bandarískri listakonu, tveir skrautlegir gítarar hanga uppi á vegg, plötur og plötu- spilari. Svolítið bókasafn og eld- húskrókur. Á flauelsteppi á gólfinu liggur nokkurra mánaða gömul dóttir hennar og hjalar. Kristín Anna setur nýju plötuna á fóninn. Plötuumslagið hefur vakið athygli þar sem hún situr fullklædd í hópi nakinna karlmanna. Naktir karlmenn á umslaginu „Það var bara hóað í alla sem hægt var,“ segir Kristín Anna um nöktu karlmennina sem prýða umslagið. Hugmyndin kom frá rithöfund- inum og hönnuðinum Ragnari Helga Ólafssyni sem hefur getið sér afar gott orð fyrir hönnun bóka- kápa. „Hann er sjálfur þarna fyrir miðju,“ segir hún og hlær og bendir á umslagið. Ljósmyndina tók Ari Magg. „Mér hefur alltaf þótt nekt eðlileg, Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is náttúruleg. Tengi betur við hana en margt annað sem mannskepnunni þykir eðlilegra en líkaminn. Í þessu samhengi er líkami karlmannanna bara ótrúlega fallegt skúlptúrískt lifandi efni í sjálfu sér, en í tilvísun sinni í tónlistarsöguna og mynd- málið, margræðari en það. Sjálf var ég fjórtán sinnum nakin framan á síðustu plötu sem ég gaf út,“ segir Kristín Anna og vísar í plötuna Howl sem kom út árið 2015. „Tónlistin á henni er samin í spuna á einni viku en mánuðir fóru í myndakápuna fyrir hana, og endaði sú ljósmynd sem myndverk sem ég sýndi svo á listasafni. Þá hafði ég mikið verið að spá í líkamanum sem náttúru, vildi að það yrði ekki greinilegt hvað væri klettur, dýr eða manneskja,“ segir Kristín Anna sem hefur síðasta áratug verið hugleikið sem listamanni hvernig hún gæti skapað án hjálpartækja. „Reverb og kjóll eru til dæmis bæði ákveðinn búningur sem gaman er að leika sér með, en líkaminn og orkan sem frá honum stafar er fyrir mér mjög heillandi hljóðfæri að spila á.“ Vildi koma í veg fyrir útgáfuna Platan er tekin upp í gömlu sund- lauginni í Mosfellsbæ. Upptöku- ferlið tók um það bil tvö ár. 6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :1 6 F B 1 0 4 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C 2 -1 7 E C 2 2 C 2 -1 6 B 0 2 2 C 2 -1 5 7 4 2 2 C 2 -1 4 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 0 4 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.