Fréttablaðið - 06.04.2019, Side 26
„Jú, það er partur af einhverri leið
en á endanum þá ertu bara farin að
vinna við að selja popp í bíóhúsi
til að hafa ofan í þig og á, og þó ég
njóti þeirrar vinnu, allt er gaman ef
maður er með góðu fólki, þá er það
samt sárt að vera ekki að eyða meiri
tími í það sem maður elskar mest að
gera og hefur lagt sig svo mikið fram
við að geta gert vel.
En svo líka það að bjóða ekki
neinn velkominn. Í raun og veru var
þessi gjörningur ákveðin birtingar-
mynd af því hvert ég var komin. Ég
var búin að fela mig inni í dularfull-
um kassa og ef þú rakst á hann fyrir
algjöra tilviljun þá gastu kíkt inn um
litla rauf og mögulega séð hvað ég var
að gera. Jú, þetta var líklega ákveðið
manifestó,“ segir hún og hlær.
Slökkti eldinn
„Ég var að enda eldfimt samband
mitt við David Portner, þá var
hljómsveit hans Animal Collective
að ná miklum hæðum í Bandaríkj-
unum og við að skilja. Ég átti miða
frá Íslandi til New York og ætlaði
mér að fara og dvelja hjá vinum í
Rokeby, en þar tókum við síðar upp
Visitors eftir Ragnar Kjartansson. Ég
hafði handskrifað til þeirra bréf um
vorið og beðið um að fá að vera hjá
þeim og taka upp lög við f lyglana
sem þar eru. Vinna í matjurtagarð-
inum fyrir dvölinni. Ég fékk vélritað
bréf til baka og var boðin velkomin.
Ég átti f lugmiða um haustið en var
svo andlega illa fyrirkölluð að ég
komst ekki út. Ég var ekki sjálfráða
í vanlíðan minni og ákvað að vera
frekar á Íslandi að takast á við það.
Ég upplifði mig í andlegri eyðimörk
þar. Það var mikið búið að ganga á
og ég ákvað bara að gangast inn í
íslenskan hversdagsleika. Og reyna
að komast að því hvað væri að mér.
Takast á við taugaáfall sem ég hafði
orðið fyrir. Horfast í augu við það að
ég átti mjög erfitt með mig. Þarna
slökkti ég eldinn sem ég hafði haft
fram að þessu um að taka upp og
gefa út tónlist, líklegast til að forð-
ast eftirsjá, en ég hélt áfram að spila
og semja. Það var þá sem við Ragnar
urðum nánir vinir, honum virtist
þykja ég frábær en ekki skrýtin. Svo
eignaðist ég gamlan bíl, Rambler
American ̕66. Það meikaði engan
sens en ég fékk mörg esóterísk hint
að því að hann ætti að verða minn.
Í kjölfarið var ég kynnt fyrir Sigurði
Óla sem í fjögur ár hitti mig reglu-
lega í skúrnum hjá sér og ekkert var
svo ónýtt að ekki væri hægt að laga
það. Allir þessir þrír hjálpaðu mér
að takast á við hversdaginn, gera
hann að ævintýri.“
Gjöfult og gott samstarf
Samstarf Kristínar Önnu við Ragnar
Kjartansson að sýningunni The
Visitors hélt áfram. Hún hefur tekið
þátt í sköpun á fjölmörgum verkum
Ragnars, meðal annars verkinu
Death is Elsewhere, en sýning á því
verður opnuð í Metropolitan-safn-
inu í New York í maí.
Þau störfuðu saman að gerð tón-
listarmyndbands við lagið Forever
Love af nýju plötunni. Ragnar og
Allan Sigurðsson leikstýrðu mynd-
bandinu og þykir það ægifallegt en í
því kveikir Kristín Anna í leikmynd
af varðeldi. Á þeim tíma sem mynd-
bandið er tekið upp er hún barns-
hafandi að Agnesi Ninju dóttur
sinni.
„Mér fannst mikið frelsi fólgið í
því að koma fram í verkum Ragga.
Ég þurfti ekki að bera ábyrgð. Ég
þurfti ekki að vita hvers vegna lista-
verkið ætti að fá að verða til. Ég var
með samviskubit yfir því að vera til
og mér fannst gott að fá að lifa innan
í listaverki. Einnig átti vel við mig að
vera bara performer. Flytja verkin
og fara svo. Skilja ekki eftir nein
ummerki. Bara upplifunina. Á sviði
og í gjörningum er ekki tími til að
hugsa, efast eða velta fyrir sér hlut-
unum. Það á vel við mig,“ segir hún.
Með svartan skugga á sálinni
Nú þegar þú hefur sagt mér frá fyrsta
laginu, eldinum sem slokknaði um
tíma, hvernig þú dróst þig inn í skel
en varst dregin út af vinum og studd,
tja, nánast pínd til að gera plötuna.
Þá langar mig að spyrja, breytti það
einhverju fyrir þig að verða móðir?
„Ég held að hlutirnir hafi komið
heim og saman við það að verða
loksins móðir. Það hefur verið
svartur skuggi á sálinni í langan
tíma. Eða hola í sálinni, tóm. Það
er líka svo gaman að vera mamma.
Maður þarf að hugsa um sjálfan sig
og aðra. Ég var farin að leita lífsfyll-
ingar á undarlegustu stöðum og
ekki að finna hana. Allt í einu hurfu
allir þessi komplexar og allt í einu
vil ég gefa út tónlist mína. Ég vil geta
séð fyrir okkur og ég er hætt að flýja.
Frá því að fullorðnast og frá því sem
er varanlegt.“
ÞARNA SLÖKKTI ÉG ELD-
INN SEM ÉG HAFÐI HAFT
FRAM AÐ ÞESSU UM AÐ
TAKA UPP OG GEFA ÚT
TÓNLIST, LÍKLEGAST TIL
AÐ FORÐAST EFTIRSJÁ.
Vodafone býður upp á fjölbreytt úrval af snjöllum
og fallegum vörum til fermingargjafa.
Kíktu í næstu verslun eða á vodafone.is
Verslanir Vodafone eru í Kringlunni, Smáralind, á Suðurlandsbraut 8 og Glerártorgi.
Græjaðu
ferminguna
hjá okkur 2 mánaðafarsímaáskriftfylgir
30 daga
áskrift að
Stöð 2
Maraþon
fylgir
Ertu til?
Framtíðin er spennandi.
6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
6
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:1
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
2
-2
6
B
C
2
2
C
2
-2
5
8
0
2
2
C
2
-2
4
4
4
2
2
C
2
-2
3
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
0
4
s
_
5
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K