Fréttablaðið - 06.04.2019, Síða 30

Fréttablaðið - 06.04.2019, Síða 30
borðið heldur hratt. Það er sagt um þessa meðferð að hún virki miklu hraðar en lyf við djúpu þunglyndi,“ segir Gunnhildur sem segist halda að það hafi verið pressa á henni vegna barnanna. „Hvað gerist ef ég jafna mig ekki? Missi ég þá börnin mín? Eftir því sem ég les meira um þessar með- ferðir þá verð ég meira afhuga þeim. Ég myndi seint fara í hana í dag. En ef einhver myndi segja, annars missir þú börnin þín, þá myndi ég gera það. Læknar virðast hafa ofurtrú á þessu. En þeir eru fáir sem ég hitti sem hafa mjög jákvæða reynslu af þessari meðferð,“ segir Gunnhildur og segir að það hafi verið ákveðið að hún færi í raf lostmeðferðir þrjú skipti í viku í tvær vikur. Og kannski eitt eða tvö skipti í viðbót. Þetta var mikil törn.“ Var efins um meðferðina Gunnhildur segir að það sé skráð í sjúkraskýrsluna að hún hafi verið mjög efins um að fara aftur eftir fyrstu meðferðina. „Þá var verið að peppa mig áfram og segja mér að ég þyrfti að harka af mér. Ég fékk ofsalega mikla verki. Maður fær krampa þótt maður sé á vöðvaslakandi lyfjum. Sem eru svo sterk að þindin lamast. Það þarf að setja súrefnistank á mann og dæla því lungun virka ekki,“ segir Gunn- hildur sem segir að eftir þrjú skipti haf i vinkona he n n a r s é ð miklar breyt- ingar á henni. „Hún sagði mér að hú n hefði séð ljósið í a u g u n u m mínum aftur. Hún hefði bara aldrei séð svona hröð umskipti hjá nok k u r r i manneskju. Ég hefði verið svo döpur og þung. Allt í einu var ég farin að tala. Það er það sem gerist í raflostmeðferð. Fólk fær orku og verður virkara og það er það sem læknar sjá sem þennan stórkost- lega árangur,“ segir Gunnhildur sem segir að það sé mjög misjafnt hversu lengi þessi árangur helst. Rof í meðvitundinni Gunnhildur fór í helgarleyfi eftir þessi sex skipti í raf lostmeðferð. Hún hefur lesið í sjúkraskýrsl- unum að hún hafði kvartað undan minnisleysi á milli raflostmeðferða. „Ég kvartaði til dæmis við lækninn minn um að ég hefði séð tölvupóst í símanum mínum sem ég hafði skrifað deginum áður en mundi ekki eftir að hafa skrifað. Þegar ég steig yfir þröskuldinn heima er eins og það hafi þurrkast út að ég hefði verið á spítalanum. Það varð rof í meðvitundinni. Því ég man bara fyrst eftir mér heima í sófastól með börnin. Ég vissi að það væri föstudagur og við ætluðum að hafa kósíkvöld og panta pitsu. Ég var í kunnuglegum aðstæðum fyrir utan að mamma er þarna. Mér fannst það alveg næs en velti því fyrir mér hvert tilefnið væri. Hvort við hefðum planað þetta. Þá uppgötvaði ég að ég mundi ekkert. Ég mundi ekki beinlínis hvað hafði verið að gerast undan- farið. Mamma hélt í höndina á mér og sagði: Gunnhildur, þú ert búin að vera uppi á spítala síðustu þrjár vikur. Ég sagði bara nei! Ímyndaðu þér að vera í þessum kringumstæðum. Að einhver segi þér hvað þú hefur verið að gera í margar vikur. Og þú hreinlega manst ekki eftir því. Síðan fékk ég að vita að ég hefði farið í raf lost- meðferð. Ég varð rosalega reið og spurði hver hefði heimilað þetta og látið mig gera þetta. Þegar þau sögðu mér að ég hefði verið hlynnt þessu, þá trúði ég nú ekki. En ég treysti því að fólkið í kring- um mig segi mér satt. Þetta hefði gerst. Þá tók við algjört panikk. Ég fór aftur upp á spítala eftir helgar- leyfið og var þá reið og grátandi. Ég vildi ekki vera áfram í innlögn en var auðvitað ekki í ástandi heldur til að fara heim. Ég var í innlögn í tvær vikur til viðbótar og ég sagðist vilja áfallahjálp. Þá fékk ég að hitta sálfræðing. En hugsa sér, að það var eitthvað sem var algjörlega ekki í ferlinu á geðsviði. Svo sagðist ég líka vilja fara í end- urhæfingu og þá var gengið í það. En það var ekki heldur sjálfgefið. End- urhæfingin var á Kleppi og þetta var gott prógramm. Næsta hálfa árið þurfti ég að púsla mér saman og læra eiginlega allt upp á nýtt. Meira að segja að kaupa í matinn! Reynslan dregin í efa Þetta er ekki alveg farið. Þótt ég sé að mestu leyti búin að ná heilbrigði aftur. Ef ég man ekki eitthvað þá hugsa ég: Er þetta bara raf lostið? Eða man ég þetta ekki? En hún er ekki alveg horfin, þessi óöryggis- tilfinning um að ég geti ekki treyst sjálfri mér. Að þurfa að vera á varð- bergi gagnvart sjálfri sér er ákaflega vond tilfinning.“ Gunnhildur telur að raflækningar séu ekki að verða sjaldgæfari heldur jafnvel að færast í aukana. „Þetta er að aukast ef eitthvað er og margir læknar tala vel um þessa meðferð. Það var gert mjög lítið úr minni reynslu af minnisleysinu,“ segir Gunnhildur. „Hún var dregin í efa, allavega að þetta tengdist beinlínis raflostinu. Ég hef alltaf reynt að vera jákvæð í afstöðu minni til geðheilbrigðis- kerfisins en ég er alltaf að verða meira hugsi, að minnsta kosti hvað varðar þjónustuna á bráðageðsviði og það viðhorf sem er til þeirra sem þurfa að leita þangað. Það er helst það að þetta er bráðaþjónusta og þess vegna er ekki hægt að sinna þeim sem leita sér hjálpar með vanda sem ekki skilgreinist sem bráðavandi. Og þá er fólki vísað frá og veit ekki hvert annað er hægt að leita. Því það hefur vantað alveg þjónustu inn á heilsugæsluna og í skólana. Brjálfræði í Háskólanum Það er margt gott sem er að gerast annars staðar, til dæmis er ég í utanumhaldi hjá samfélagsteymi Landspítalans á Reynimel sem er til fyrirmyndar,“ segir Gunnhildur og segir meira jafnræði í meðferðar- sambandinu. Eftir að læknirinn í samfélags- teyminu kom inn í mitt andlega heilbrigði fóru margir hlutir að skýrast. Afstaða mín gagnvart læknum og geðheilbrigðisþjónustu er einnig að breytast.“ Gunnhildur er byrjuð aftur í háskólanámi, nú í fötlunarfræði. Hana langar að nýta reynslu sína af því að lifa með geðsjúkdómi í rann- sóknir sem gætu hjálpað öðrum. „Þetta er eins og hugljómun, þar heyrði ég fyrst hugtakið „Mad Studies“.“ Sem kannski mætti útfæra sem brjálfræði? „Þetta er frábær þýðing, hver veit nema hún festist. En þetta eru fræði sem byggja á því að þeir sem skrifa rannsóknir um reynslu fólks af geð- heilbrigðiskerfinu eigi að hafa sjálfir reynslu eða vera notendur. Þetta er annað sjónarhorn á þennan heim. Ég er að lesa bók sem kom út árið 2013, Mad Matters, þar er einn kafli um raf lostmeðferð. Þar kemur fram að stór meirihluti sem fer í meðferðirnar eru konur. Það er víst staðreyndin hér líka. Einhver gæti sagt: Er það ekki bara vegna þess að f leiri konur eru þunglyndar? Það er ekki þannig, ég held að þetta sé spurning um valdahlutföll. Konur gera hvað sem er vegna þess að þær eru mæður, þær eru hreinlega í veik- ari stöðu. Karlmenn eru ekki settir í þessa stöðu þó að við eigum að búa í jafnréttissamfélagi. Það sem ég myndi vilja rannsaka er saga raflostmeðferða í dag. Hver er að fara í þetta, hver ákveður? Er utanaðkomandi þrýstingur? Svo er spurning með framtíðina. Fyrir 60 árum var enn verið að framkvæma framheilaskurð, nú er það álitið mannvonska. Ég spyr mig hvort við eigum eftir að líta til baka eftir 50 ár með sama hætti varðandi raflost- meðferðirnar.“ standa í röð hjá Mæðrastyrksnefnd til að fá mjólk því ég átti ekki pening fyrir bæði tómstundum og mat. En það er allt þess virði.“ Alltaf langað að verða rithöfundur Bókin þín er fallega stíluð og frá- sögnin hrein og bein en á sama tíma djúp og ósérhlífin. Þú stekkur fram á sjónarsviðið nánast fullskapaður rithöfundur. Hefur þú mikið verið að skrifa? „Mig hefur alltaf langað til að verða rithöfundur og er ofsalega glöð ef það tekst. Þegar ég var lítil þá var ég alltaf að skrifa sögur. Leyni- lögreglusögur í Enid Blyton stíl. Og þegar ég æfði á píanóið þá notaði ég sögur. Ég var lengi að læra lög utan- bókar og nótnalaust. Ég bjó því til söguumhverfi í huganum til þess að vita betur hvað kæmi næst. Ég átti líka alltaf pennavini og skrifaði gamaldags bréf. Ég bý yfir sjálfs- trausti þegar ég skrifa,“ segir hún. Gunnhildur hefur gist á f lestum móttökudeildum geðsviðs á Hring- braut. „Mér hefur alltaf þótt starfs- fólkið yndislegt inni á deildunum. Þó að ég sé að setja núna stór spurn- ingarmerki við valdastrúktúrinn í meðferð geðsjúkdóma. Ég er heimakunnug á geðsviði Landspítalans og hef séð hvernig aðbúnaðurinn er misjafn. Ég hef verið í gömlu sjúkrarúmunum í herbergjum þar sem eru slitnar og lafandi gardínur sem vantar heilu stykkin í yfir í að gista á uppgerðri deild þar sem allt er nýtt. Aðbúnað- urinn er ekki nógu góður að mörgu leyti og misjafn. Djúpt þunglyndi Í nokkur ár var ég að leggjast inn einu sinni til þrisvar á ári. Fyrir utan árið 2012, en þá lagðist ég ekk- ert inn. Árið 2016 var hins vegar erfitt. Ég var að fara á Reykjalund og ætlaði að tékka á virkniúrræðum. Ég fékk þá þessar aukaverkanir af lyfjunum sem eru kallaðar „extra pyramidal“. Sem virka á Parkinson-stöðvarnar í heilanum. Ég man ekki eftir þessu og er að segja þér frá því sem mér hefur verið sagt. Ég var lögð inn og öll þessi lyf voru tekin af mér á einu bretti. Það má ekki gera það heima, maður verður að vera í innlögn undir miklu eftirliti. Það var allt tekið nema Lithium. En þá datt ég ofan í versta þunglyndi sem ég hef nokk- urn tímann lent í. Ég var hálf stjörf og hætti að borða, hætti að tala, hætti að sofa. Flestir þekkja hvað maður verður tættur af svefnleysi. En að vera þunglyndur og þjást af svefnleysi það er svo ofsalega erfitt. Samkvæmt því sem mér hefur verið sagt og ég les í sjúkraskýrsl- unum þá kynnti læknirinn sem ég var hjá raflostmeðferð fyrir mér og ég samþykkti að fara í hana. Vin- kona mín sem kom að heimsækja mig nánast á hverjum degi segir að ég hafi gúgglað og velt þessu fyrir mér fram og til baka. Ég held ég hafi bara ekki vitað betur en að þarna væri bara komin frábær lausn. Sem myndi kippa mér upp á yfirborðið. Mig langaði það náttúrulega. Og ekki bara að komast upp á yfir- Brot úr bókinni: STÓRAR STELPUR FÁ RAFLOST Heim úr svartholi óminnis „Ég man ekki meira frá þessu kvöldi. Jú, ég man þegar pítsan kom, ég kunni að svara dyrabjöll- unni og tók við pítsunni. Ég rétti fram greiðslu- kortið mitt og tók við posanum. En svo var aftur allt tómt. Ég mundi ekki pinnúmerið. Ég reyndi eins og ég gat, ég fann að þetta var að verða vandræða- legt. Mamma kom og horfði undrandi á mig. „Ég man ekki númerið,“ sagði ég. Pítsukonan sagði að það væri allt í lagi, ég mætti bara kvitta. Seinna kom í ljós að þetta var ekki eina leyninúmerið sem ég hafði gleymt, þau voru öll horfin.“ MAÐUR FÆR KRAMPA ÞÓTT MAÐUR SÉ Á VÖÐVA- SLAKANDI LYFJUM. SEM ERU SVO STERK AÐ ÞINDIN LAMAST. ÞAÐ ÞARF AÐ SETJA SÚREFNISTANK Á MANN OG DÆLA ÞVÍ LUNGUN VIRKA EKKI. „Mamma hélt í höndina á mér og sagði: Gunnhildur, þú ert búin að vera uppi á spítala síðustu þrjár vikur. Ég sagði bara nei!“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBRINK 6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :1 6 F B 1 0 4 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C 1 -F F 3 C 2 2 C 1 -F E 0 0 2 2 C 1 -F C C 4 2 2 C 1 -F B 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 0 4 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.