Fréttablaðið - 06.04.2019, Qupperneq 36
Ég prjóna hverja
peysu í einum lit
og sauma svo hvolpinn
ofan í lykkjurnar. Það er
mun þægilegri aðferð en
að prjóna peysuna
samtímis með mörgum
litum af garni.
Barnabörnin urðu að vonum ákaflega glöð að fá Hvolpasveitarpeysurnar enda eru
þau miklir Hvolpasveitaraðdáend
ur,“ segir prjónakonan Svanborg
Svanbergsdóttir á Akureyri.
Svanborg og stórvinkona
hennar, Anna Þórsdóttir, hafa
setið saman við prjónaskapinn að
undanförnu til að gleðja barna
börn sín með litríkum Hvolpa
sveitarpeysum sem vakið hafa
aðdáun og athygli í hannyrða
hópnum Handóðir prjónarar á
Facebook.
„Ég ákvað að setja inn myndir
af peysunum því mér finnst sjálfri
svo gaman að sjá eitthvað nýtt
og vildi að aðrir gætu nýtt sér að
gera eins. Við Anna erum þó ekki
að finna upp hjólið því Kristrún
Þórhallsdóttir vinkona okkar
gerði eina peysu á undan okkur í
hópi tíu til fimmtán kvenna sem
koma alltaf saman á þriðjudögum
hér nyrðra og miðla hver ann
arri af ýmiss konar fróðleik um
handverk,“ upplýsir Svanborg sem
er þegar búin að fullklára tvær
Hvolpasveitarpeysur og er með
þriðju peysuna í vinnslu.
„Þær stefna í að verða enn fleiri
á prjónunum því það eru mörg
börn í stórfjölskyldunni sem
vilja sporta sig í litríkum peysum
með vinum sínum úr Hvolpa
sveitinni. Við njótum þess, enda
er það heimilisleg og notaleg iðja
að prjóna í frístundum og nokkuð
einfalt að prjóna Hvolpasveitar
peysurnar,“ segir Svanborg sem
vinnur peysurnar á sérstakan hátt.
„Ég prjóna hverja peysu í einum
lit og sauma svo hvolpinn ofan
í lykkjurnar þannig að myndin
lítur út fyrir að vera prjónuð í.
Þetta er svolítil vinna en alls ekki
f lókin þegar maður veit hvernig á
að þræða lykkjurnar og aðferðin
er mun þægilegri en að prjóna
peysuna samtímis með mörgum
litum af garni,“ útskýrir Svanborg.
Hvolparnir saumaðir í púða
Barnabörn Svanborgar njóta
þess að klæðast Hvolpasveitar
peysunum frá ömmu sinni í
leikskólanum, enda hlýjar, mjúkar
og auðvitað svakalega flottar á
mælikvarða smáfólksins þegar
kemur að tísku og áhrifavöldum úr
teiknimyndaheiminum.
„Það er bæði gaman og leikur
einn að láta drauma barna rætast
á prjónunum. Ég fór einfaldlega
inn á vefsíðuna Pinterest og sló
inn leitarorðið Hvolpasveitin eða
Paw Patrol. Þá birtust ótal prjóna
munstur af öllum hvolpunum á
rúðustrikuðum blöðum sem ég
prentaði út og eftirleikurinn var
auðveldur. Ímyndunaraflinu eru
svo engin takmörk sett og eflaust
hægt að prjóna hvaða teikni
myndafígúru sem er. Þá er líka
hægt að nota hvolpamunstrin til
að sauma út krosssaum í púða eða
veggmyndir til að prýða barna
herbergin,“ segir Svanborg sem
átti hreint ekki von á þeim miklu
viðbrögðum sem Hvolpasveitar
peysurnar hafa fengið.
„Margir spyrja hvar peysurnar
fáist en hugmyndin var bara að
sýna öðru hannyrðafólki árangur
inn og gefa því hugmynd að fleiri
útgáfum af Hvolpasveitarpeysum
því svo margir hafa gert hinar
útgáfurnar, með prjónuðum bekk
af litlum hvolpum, sem notið hafa
mikilla vinsælda, og það er alltaf
gaman að prófa að prjóna eitthvað
nýtt,“ segir Svanborg.
Hvolpadraumar
rætast á prjónum
Ömmur eru dásamlegar og hjá þeim geta villtustu
draumar barnanna ræst. Á Akureyri prjóna tvær ömmur
fjörlegar Hvolpasveitarpeysur handa barnabörnunum og
uppskera einskæra gleði og sanna hamingju að launum.
Svanborg og Anna njóta þess að prjóna drauma fyrir barnabörnin sín og
það leynir sér ekki hversu spenntir og kátir bræðurnir Gabríel Máni og Aron
Máni Jónssynir, ömmustrákar Svanborgar, eru að klæðast Hvolpasveitar-
peysunum sínum. MYNDIR/AUÐUNN NÍELSSON OG AF DRENGJUNUM ÚR EINKASAFNI
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA
Arctic star sæbjúgnahylki
innihalda yfir fimmtíu tegundir af
næringarefnum, og eru þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið
• Að auka blóðflæði
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla að
myndun húðpróteins og insúlins
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er
Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á www.arcticstar.is
Arctic Star sæbjúgnahylki
Varan fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hagkaupum.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . A P R Í L 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
6
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:1
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
2
-4
9
4
C
2
2
C
2
-4
8
1
0
2
2
C
2
-4
6
D
4
2
2
C
2
-4
5
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
0
4
s
_
5
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K