Fréttablaðið - 06.04.2019, Síða 44
H Ú S A V Í K
Bakari óskast
Heimabakarí á Húsavík óskar eftir að ráða
bakara til framtíðarstarfa. Húsnæði á staðnum.
Nánari upplýsingar í síma: 616 1505.
Fjallabyggð auglýsir
Eftirfarandi stöður eru lausar til umsóknar við Grunnskóla
Fjallabyggðar fyrir skólaárið 2019-2020. Um er að ræða
ótímabundnar ráðningar nema um annað sé samið.
• Þroskaþjálfi 75% staða.
• Náms- og starfsráðgjafi 50% staða.
• Stöður grunnskólakennara. Meðal kennslugreina
er hönnun og smíði og almenn kennsla og umsjón á
yngsta stigi.
Upplýsingar veitir Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri
Grunnskóla Fjallabyggðar í gegnum netfangið
erlag@fjallaskolar.is eða síma 865-2030. Umsóknum skal
skila á netfangið erlag@fjallaskolar.is.
Eftirfarandi stöður eru lausar til umsóknar við Leikskóla
Fjallabyggðar. Um er að ræða ótímabundnar ráðningar
nema um annað sé samið.
• Stöður leikskólakennara með deildarstjórn
• Stöður leikskólakennara
Upplýsingar veitir Olga Gísladóttir skólastjóri Leikskóla
Fjallabyggðar í gegnum netfangið olga@fjallaskolar.is
eða síma 848-7905. Umsóknum skal skila á netfangið
olga@fjallaskolar.is.
Laun og starfskjör fara eftir kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Grunnskóli Fjallabyggðar er heildstæður grunnskóli með
ríflega 200 nemendur og starfsstöðvar í Ólafsfirði og á
Siglufirði. Skólaakstur er milli byggðarkjarna. Í skólanum
er Uppbyggingarstefnan höfð að leiðarljósi og unnið gegn
einelti skv. Olweusaráætlun. Skólinn er í samstarfi við
Tröppu ráðgjöf ehf. um þróun fjölbreyttra kennsluhátta.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á http://grunnskoli.
fjallabyggd.is/
Leikskóli Fjallabyggðar er 8 deilda leikskóli með um 120
nemendur og starfsstöðvar í Ólafsfirði og Siglufirði. Í
leikskólanum er m.a. unnið með námsefnið Leikur að læra
og Lífsleikni í leikskóla. Nánari upplýsingar um leikskólann
má finna á http://leikskalar.leikskolinn.is og http://leikholar.
leikskolinn.is
Í Fjallabyggð búa um 2000 íbúar. Nánari upplýsingar um
Fjallabyggð er að finna á heimasíðunni www.fjallabyggd.is
Gildi skólasamfélagsins í Fjallabyggð eru: Kraftur - Sköpun
- Lífsgleði
Leitað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir til að viðhalda
og byggja upp öflugt skólasamfélag af dugnaði og atorku
samkvæmt gildandi fræðslustefnu, með virðingu, metnað og
gleði að leiðarljósi.
Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl nk.
Með umsókn skal skila starfsferilskrá, nöfnum 2 umsagnar-
aðila og stuttri kynningu á umsækjanda. Umsækjandi þarf
að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðn-
ingu hefur verið tekin. Fjallabyggð áskilur sér rétt til að
hætta við ráðningu í einstaka stöðu og auglýsa að nýju.
• Háskólamenntun eða önnur sambærileg menntun
sem nýtist í starfi.
• Þekking á innkaupum og AGR innkaupakerfinu
ásamt vöruhúsakerfi.
• Gott vald á íslensku og ensku.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð.
• Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Vörustjórnun í AGR og Navision.
• Samskipti við innlenda og erlenda birgja.
• Þjónusta og upplýsingagjöf til söludeildar.
• Greining og áætlanagerð.
• Eftirfylgni á pöntunum.
• Önnur tilfallandi störf.
INNKAUPAFULLTRÚI
Hæfniskröfur Starfssvið
Umsóknarfrestur er til 26. apríl.
Umsóknir sendist á netfangið atvinna@tengi.is merkt „Innkaupafulltrúi“.
Tengi óskar eftir að ráða öflugan einstakling í innkaupadeild
fyrirtækisins. Starfið er fólgið í innkaupum, birgðastýringu,
samskiptum við innlenda og erlenda birgja, skýrslugerð o.fl.
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • www.tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • tengi@tengi.is
Tengi er stofnað árið 1981 og sérhæfir sig í ráðgjöf og sölu á hreinlætistækjum og pípulagningaefni. Höfuðstöðvar fyrirtækisins
eru í Kópavogi en fyrirtækið er einnig með starfsstöð á Akureyri. Hlutverk Tengis er að auðvelda viðskiptavinum val á
gæðavörum á sviði hreinlætistækja og lagnaefnis sem studdar eru af framúrskarandi þjónustu. Tengi er metnaðarfullur
vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæðan starfsanda og sterka liðsheild. Tengi er eitt af fyrirmyndarfyrirtækjum VR
árið 2018 og framúrskarandi fyrirtækjum Creditinfo 2018. Tengi er reyklaust fyrirtæki.
Innkaupastjóri óskast
Reykjanesbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan og kraftmikinn innkaupastjóra til að starfa í öflugu
teymi starfsmanna á fjármálasviði bæjarins.
Innkaupastjóri Reykjanesbæjar tryggir að kaup á vörum og þjónustu séu ávallt eins hagkvæm og kostur er
hverju sinni og séu í samræmi við gildandi lög og innkaupareglur. Viðkomandi starfar í nánu samstarfi við
aðrar deildir sviðsins.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
• Hefur yfirumsjón með innkaupum á vörum
og þjónustu
• Leitar eftir hagkvæmasta verði og gæðum
vara og þjónustu og gerir tillögur um og sér
um framkvæmd útboða
• Annast gerð samninga um kaup á vörum og
þjónustu og hefur eftirlit með samningum er
varða innkaup
• Veitir stjórnendum sveitarfélagsins ráðgjöf
og aðstoð við bestu kaup
• Vinnur að ýmsum greiningum á
fjármálastærðum í samstarfi við hagdeild
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun á sviði viðskipta og/eða lögfræði eða
önnur menntun sem nýtist í starfi
• Víðtæk reynsla af innkaupamálum nauðsynleg
• Reynsla af opinberum rekstri
• Góð kunnátta í notkun töflureiknis
• Talnagleggni og góð íslenskukunnátta
• Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með
gott orðspor og að framkoma og athafnir á
vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2019.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og stéttarfélags viðkomandi.
Umsókn fylgi starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Sótt er um starfið á vef Reykjanesbæjar
www.reykjanesbaer.is undir Laus störf.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristinn Óskarsson mannauðsstjóri í gegnum netfangið
kristinn.oskarsson@reykjanesbaer.is eða í síma 421-6700.
Reykjanesbær er fjórða stærsta sveitarfélag landsins með rúmlega 19.000 íbúa. Þar starfar samhentur hópur
starfsmanna sem hefur það að leiðarljósi að þjónusta við íbúa bæjarfélagsins sé eins og best verður á kosið
hverju sinni. Við bjóðum góða starfsaðstöðu, tækifæri til starfsþróunar og vaxtar í starfi, jákvætt andrúmsloft
og samstarfsfólk sem tekur áskorunum hvers dags af eldmóði og krafti.
Job.is
Þú finnur draumastarfið á
0
6
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:1
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
2
-3
F
6
C
2
2
C
2
-3
E
3
0
2
2
C
2
-3
C
F
4
2
2
C
2
-3
B
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
0
4
s
_
5
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K