Fréttablaðið - 06.04.2019, Síða 47

Fréttablaðið - 06.04.2019, Síða 47
Lausar stöður við leik- og grunnskóla á Fljótsdalshéraði Við leikskóla á Fljótsdalshéraði eru eftirfarandi störf laus til umsóknar frá og með næsta skólaári Staða aðstoðarleikskólastjóra og 40% staða sérkennslu- stjóra við leikskólann Hádegishöfða. Stjórnunarþáttur aðstoðarleikskólastjóra er í samræmi við kjarasamninga FSL og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Möguleiki er á að sameina þessi störf í einni stöðu. Jafnframt er laus staða deildarstjóra við leikskólann Tjarnarskóg. Auk þess eru lausar til umsóknar stöður leikskólakennara við leikskólana Tjarnarskóg og Hádegishöfða. Gerð er krafa um að leikskólakennarar hafi leyfisbréf sem leikskólakennarar eða háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða reynslu á sviði uppeldis og kennslu. Allar frekar upplýsingar um leikskólann Hádegishöfða og störf þar veitir Guðmunda Vala, skólastjóri, í síma 4700 670 eða á netfanginu vala@egilsstadir.is. Upplýsingar um Tjarnarskóg veitir Sigríður Herdís, skólastjóri, í síma 4700 660 eða á netfanginu sigridurp@egilsstadir.is. Tekið er tillit til eldri starfsumsókna sem hafa borist í vetur. Sótt er um á ofangreindum netföngum eða vefföngunum: Hádegishöfði: http://hadegishofdi.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn Tjarnarskógur: http://tjarnarskogur.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn Við Fellaskóla, Fellabæ eru eftirfarandi störf laus til umsóknar frá og með næsta skólaári:. • Íþrótta- og sundkennari 100% • Sérkennari 40% • Heimilisfræði 46% • Textílmennt 30% • Myndmennt 36% • Almenn bekkjarkennsla 58% Nánari upplýsingar um Fellaskóla og störf þar veitir Þórhalla Sigmundsdóttir, skólastjóri í síma: 4700 640 eða á netfanginu thorhallas@egilsstadir.is. Upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðu skólans www.fell.is. Við Egilsstaðaskóla eru eftirfarandi störf laus til umsóknar frá og með næsta skólaári: • Tónmenntakennari 80-100% • Smíðakennari 100% • Sérkennari á mið og elsta stigi. • Umsjónarkennsla 80-100% Gerð er krafa um að kennarar hafi leyfisbréf sem grunnskólakennarar eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi. Í Egilsstaðaskóla hefur kennslan undanfarin ár verið skipulögð sem teymiskennsla og því er lögð áhersla á áhuga og hæfni til að vinna í teymi. Nánari upplýsingar um Egilsstaðaskóla og störf þar veitir Ruth Magnúsdóttir skólastjóri í síma 4700 607 eða á net- fanginu ruth@egilsstadir.is. Upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðu skólans www.egilsstadaskoli.is. Um allar ofangreidar stöður gildir að launakjör eru sam- kvæmt viðkomandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Nauðsynlegt er að umsækjendur séu liprir í samskiptum og æskilegt að þeir hafi gott vald á íslensku. Lögð er áhersla á faglegan metnað, frumkvæði og áhugasemi. Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda hlutaðeigandi skólastjórum. Umsóknarfrestur er til 24. apríl nk. Vakin er athygli á stefnu Fljótsdalshéraðs um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli samfélagið. Við Sunnulækjarskóla á Selfossi eru lausar stöður umsjónarkennara á yngsta- og miðstigi, stöður kennara á elsta stigi og staða kennara í hönnun og smíði frá og með næsta hausti. Meðal kennslugreina á elsta stigi eru stærð- fræði, tungumál og náttúrufræði. Í skólanum eru um 720 nemendur og þar er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að skólastarfinu koma. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu skólans: http://www.sunnulaekjarskoli.is Umsóknarfrestur er til 22. apríl 2019 en ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst 2019. Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum sendist Birgi Edwald, skólastjóra, birgir@sunnulaek.is eða Sunnulækjarskóli, Norðurhólum 1, 800 Selfoss. Skólastjóri Sunnulækjarskóli Í góðu sambandi við framtíðina Hvers vegna Veitur? Það er líf og fjör í vinnunni, starfsemi okkar er fjölbreytt og samfélags- lega mikilvæg. Starfsfólk okkar hefur frumkvæði og fær tækifæri til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd og við leggjum áherslu jafnvægi vinnu og einkalífs, sí- og endurmenntun og möguleika til að vaxa í starfi. Okkur er annt um umhverfið, jafnrétti og að koma fram við hvert annað og viðskiptavini af virðingu. *Þar sem karlar eru í miklum minnihluta í teyminu hvetjum við þá sérstaklega, á grundvelli 1. mgr. 18. gr. laga nr. 10/2008, til að sækja um. Framtíðin er snjöll – mótaðu hana með okkur Verkefnastjóri öryggis og umbóta Framtíð Veitna felur í sér stafræna umbyltingu og straumlínustjórnun. Verkefnastjóri öryggis og umbóta ber ábyrgð á að móta, innleiða og starfrækja öryggis- og umbótastarf Veitna frá degi til dags. Í boði eru fjölbreytt verkefni í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Við hvetjum karlmenn sérstaklega til að sækja um.* Sjá nánar á veitur.is/framtidin Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 0 6 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :1 6 F B 1 0 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 C 2 -6 1 F C 2 2 C 2 -6 0 C 0 2 2 C 2 -5 F 8 4 2 2 C 2 -5 E 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 0 4 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.