Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 76

Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 76
ÉG VIL AÐ ÍSLENDINGAR VITI AÐ VINIR ÞEIRRA, SAHRAWI-ÞJÓÐIN, BÝR VIÐ HERNÁM MAROKKÓ- MANNA. Brahim Ghali, forseti Vestur-Sahara og leið-togi þjóðfrelsishreyf-ingarinnar Polisario, segist vilja flytja Íslend-ingum boðskap vináttu og virðingar. Hann var staddur hér á landi í vikunni og ræddi við Frétta- blaðið um sjálfan sig og stöðuna í þessu strjálbýla en þó fjölmennasta ríki þess sem Sameinuðu þjóðirnar flokka sem ríki án sjálfsstjórnar. Vestur-Sahara var undir stjórn Spánverja til 1975 en þeir hurfu á brott eftir þrýsting frá Sameinuðu þjóðunum. Þá tóku Marokkómenn og Máritanar við en Marokkó hafði gert tilkall til svæðisins allt frá árinu 1957. Átök á milli Polisario og Máritana og Marokkómanna brutust út. Þótt Máritanar hafi vikið árið 1979 hernámu Marokkó- menn stærstan hluta Vestur-Sahara. Í dag halda Marokkómenn þessum hluta ennþá en Sahrawi-þjóðin, eða hið lýðræðislega lýðveldi Sahrawi- Araba, heldur minni hlutanum. Alls viðurkenna 84 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna sjálfstæði Vestur-Sahara. Fjörutíu ríki hafa hins vegar „fryst“ viðurkenningu sína. Ísland er ekki á meðal þeirra ríkja sem hafa viðurkennt sjálfstæði en fáein ár eru þó frá því Alþingi ályktaði að „fela utanríkisráðherra að beita sér á alþjóðavettvangi fyrir því að sjálfsákvörðunarréttur íbúa Vestur-Sahara verði virtur í samræmi við ályktanir öryggis- ráðs og allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna og styðja viðleitni til að finna friðsamlega og varanlega pólitíska lausn.“ Vonast eftir samstöðu Ghali segist vilja biðja Íslendinga um að sýna þjóð í erfiðri stöðu sam- stöðu. „Við eigum margt sameigin- legt og við vonumst til þess að koma á sterku sambandi á milli þessara þjóða til frambúðar.“ Að sögn Ghalis hefur Sahrawi-fólk lengi heyrt sögur af Íslandi. Hann heyrði til að mynda sjálfur af land- inu þegar hann var í öðrum bekk grunnskóla. „Þið eruð fræg fyrir andspyrnu. Íslenska þjóðin hefur staðið vörð um sína stöðu á friðsam- legan hátt. Þið eruð þjóð sem styður smáríki og rétt þeirra til frelsis. Þess vegna kom ég hingað að heimsækja þetta vingjarnlega land og ég vonast til þess að þið séuð móttækileg fyrir skilaboðum mínum.“ Hitti forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra fundaði með Ghali. Ghali segir að það hafi verið góður fundur. Hann hafi útskýrt stöðuna í Vestur- Sahara og sagt henni frá þjáningu þjóðarinnar og andspyrnunni. „Ég sagði henni einnig að við vild- um eiga gott samband við Ísland. Ég er afar þakklátur fyrir fundinn og vil þakka forsætisráðherranum fyrir að hlýða á skilaboð okkar. Við óskum henni alls hins besta og þjóðinni sömuleiðis,“ segir Ghali. Áratugalöng barátta Sjálfur hefur Ghali tekið virkan þátt í sjálfstæðisbaráttu Vestur- Sahara til margra áratuga. Hann var til að mynda varnarmálaráð- herra Sahrawi-lýðveldisins frá 1976 til 2005 og hefur nú verið forseti undan farin þrjú ár. Forsetinn segir að frá því Spán- verjar eignuðu sér svæðið fyrst fyrir rúmum 130 árum hafi verið samfelld andspyrna af hálfu íbúa svæðisins. Þessi andspyrna hefur þó breyst með tíð og tíma. „Í dag höfum við okkar eigið ríki, þótt það sé her- numið að hluta. Við erum stofnað- ili Afríkubandalagsins. Rúmlega áttatíu ríki viðurkenna sjálfstæði okkar og við vonum að fleiri bætist í hópinn. Stór hluti þjóðarinnar býr í útlegð en við búum yfir öllum þeim innviðum sem fullvalda ríki þarf að hafa,“ segir Ghali. Næsta skref er að hans sögn að fá fulla viðurkenningu á sjálfstæði rík- isins. „Við erum komin afar nálægt markmiðinu og erum mun nær því nú að vera alviðurkennt sjálfstætt ríki en áður. Þetta er þrátt fyrir að hernámsaflið beiti sér gegn vinnu Sameinuðu þjóðanna og reyni að þvinga heiminn til þess að gangast við þeirra eigin heimssýn. Alþjóða- samfélagið þarf að beita sér af hörku gegn hernámsaf linu til þess að þvinga það til samstarfs.“ Ghali segir að það sé óumflýjan- legt að Sahrawi-þjóðin nái þessu markmiði sínu. Það sé einungis tímaspursmál. „Auðvitað er þetta líka spurning um samvisku heims- byggðarinnar, hvenær hún áttar sig á þessu óréttlæti.“ Þá segir hann að það verði ekki aftur snúið nú. Þjóðin sé staðráðin og muni aldrei gefast upp. Sakaður um þjóðarmorð Þessi staðhæfing Ghalis er hins vegar ekki óumdeild. Amnesty International hefur til að mynda ályktað að Polisario standi, líkt og Marokkó, fyrir kúgun almennra borgara. Að auki opnuðu spænskir dómstólar árið 2016 á ný rannsókn á Ghali þar sem hann er meðal ann- ars sakaður um þjóðarmorð, stríðs- glæpi, glæpi gegn mannkyninu og pyntingar, samkvæmt fréttum meðal annars spænska miðilsins El País og breska ríkisútvarpsins. Glæpirnir eiga að hafa átt sér stað í Tindouf-flóttamannabúðunum í Alsír. Þar hýsir Sahrawi-lýðveldið einna helst f lóttamenn Sahrawi- þjóðarinnar. Marokkóum, Alsír- ingum og Sahrawi-fólki ber ekki saman um fjölda flóttafólks í búð- unum en talan hleypur á tugum þúsunda. Ég vil spyrja þig um rannsóknina á Spáni. Spænskir miðlar hafa greint frá því að þú sért rannsakaður fyrir meðal annars stríðsglæpi sem eiga að hafa átt sér stað á milli 1976 og 1987 í Tindouf-f lóttamannabúð- unum. Eru þessar ásakanir sannar? „Þetta eru tilhæfulausar og rang- ar ásakanir,“ segir Ghali og bætir því við að ásakanirnar séu pólitísks eðlis. Andstæðingarnir í Marokkó séu sérfræðingar í því að ljúga upp á hann og aðra leiðtoga Polisario og Sahrawi-lýðveldisins. Ghali segir það orðið að gamalgrónum vana Marokkómanna að ljúga um Vest- ur-Sahara. „Þau eru sérfræðingar í skáldskap og lygum.“ Hörmuleg kúgun „Ég vil að Íslendingar viti að vinir þeirra, Sahrawi-þjóðin, býr við her- nám Marokkómanna. Við stöndum frammi fyrir hörmulegri bælingu, gegnumgangandi og kerfisbundinni kúgun af hálfu marokkóska hersins á okkar landi. Það er kerfisbundin undirokun. Það skiptir engu hvort um börn eða aldraða er að ræða. Það er ekki ein einasta Sahrawi- fjölskylda sem ekki hefur orðið fyrir þessari kúgun að einhverju leyti.“ Hann bætir því við að fjöldi almennra borgara sitji nú í fang- elsi af pólitískum ástæðum. Ghali segir frá því að um þrjátíu þúsund Sahrawi-manna haf i sest að í búðum í eyðimörkinni fyrir utan höfuðborgina Laayoune, sem Mar- okkómenn halda, til þess að mót- mæla hernáminu án þess að stofna til ófriðar innan borgarmarkanna. „Þetta fólk stóð ekki fyrir neinum árásum eða of beldi en svo kom marokkóski herinn og eyðilagði búðirnar, handtók fólkið og fang- elsaði marga. Fólkið var pyntað á margvíslegan hátt og er enn pyntað í dag. Þetta fólk fékk órétt- láta dóma, allt frá tuttugu árum til lífstíðarfangelsis. Það fær ekki að fá heimsóknir frá fjölskyldu né að hafa samskipti við umheiminn.“ Ghali er þarna að tala um Gdeim Izik-búðirnar sem var komið upp í október 2010 og stóðu í um mánuð. Að sögn marokkóskra yfirvalda var réttað yfir 25 mótmælendum og segja þarlend yfirvöld að 11 mar- okkóskir öryggisgæslumenn hafi farist og tveir mótmælendur. Polis- ario segir hins vegar að 36 Sahrawi- menn hafi farist og 163 verið hand- teknir. Auðlindarán og yfirráðasvæði Ghali segir margt orsaka núverandi ástand. Í alþjóðlegu samhengi megi líta til stefnu Spánverja og einkum Frakka gagnvart Maghreb-svæðinu, sem nær yfir Alsír, Líbýu, Marokkó, Máritaníu, Túnis og Vestur-Sahara. Ghali segir að stefnan litist af nýlenduhugmyndafræði. „Þar sem þetta er að mestu frönskumælandi svæði líta Frakkar á þetta sem sitt áhrifasvæði,“ segir Ghali. Þá segir hann að Marokkó „haldi fast í þá kreddu“ að stækka þurfi ríkið. Mar- okkómenn vilji sömuleiðis eigna sér auðlindir Vestur-Sahara. Framtíðarhorfur Marokkómenn og Sahrawi-menn settust að viðræðuborðinu í desem- ber og svo aftur í mars undir hand- leiðslu Horst Köhler, fyrrverandi forseta Þýskalands og erindreka SÞ. Vert er að nefna að Sameinuðu þjóð- irnar hafa í tæp þrjátíu ár starfrækt verkefni á svæðinu, MINURSO, sem á að tryggja aðstæður fyrir þjóðar- atkvæðagreiðslu Sahrawi-fólksins. Atkvæðagreiðslan hefur ekki enn farið fram. Ghali lofar Köhler fyrir hans þátt í viðræðunum en segir Marokkó hindra starf SÞ og Sahrawi-leiðtoga. „En við vonum að okkar bíði árang- ursrík framtíð í þessum viðræðum.“ Að auki lýstu aðildarríki Þróunar- bandalags sunnanverðrar Afríku, sem og nokkur ríki utan álfunnar, yfir eindregnum stuðningi við bar- áttu Sahrawi-fólksins í mars. Ghali segir mikinn árangur hafa náðst þar. Þvinganir og viðskiptabönn Ghali segir að lokum að til þess að leysa úr deilunni um Vestur-Sahara ætti Alþjóðasamfélagið að beita Marokkó meiri þrýstingi. Marokkó hlusti einfaldlega ekki á ályktanir um sjálfstæði Vestur-Sahara. „Alþjóðasamfélagið ætti að beita Marokkó þvingunum og viðskipta- bönnum vegna þess sem á sér stað. Þetta er það sama og gerðist undir aðskilnaðarstefnunni í Namibíu og Suður-Afríku. Þetta er kúgun, þjófnaður á auðlindum og mismun- un. Við viljum að frjálsar lýðræðis- þjóðir heims, óháð félagasamtök og almennir borgarar geri það sem þeir geta til þess að aðstoða okkur í því að endurheimta landið, auðlindir okkar og mannréttindi.“ 130 ára löng barátta fyrir sjálfstæði Forseti Vestur-Sahara ræðir við Fréttablaðið um baráttuna fyrir sjálfstæði og segir Marokkómenn kúga Sahrawi-þjóðina. Fundaði með forsætisráð- herra. Spánverjar rannsaka ásakanir um stríðs- glæpi, hann segir ásakanirnar vera tilhæfulausar. Forseti Vestur-Sahara segir Sahrawi-þjóðina eiga margt sameiginlegt með Íslendingum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is 6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :1 6 F B 1 0 4 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 C 2 -0 4 2 C 2 2 C 2 -0 2 F 0 2 2 C 2 -0 1 B 4 2 2 C 2 -0 0 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.