Fréttablaðið - 06.04.2019, Síða 78
ÞAÐ ER AUÐVELT AÐ VERA
HEIMSFRÆGUR Á ÍSLANDI.
ÞAÐ GETUR VERIÐ GOTT
AÐ FÁ TÆKIFÆRIN
SNEMMA EN ÞAÐ GETUR
LÍKA VERIÐ SLÆMT.
Ar on M á r Ól a f s -s on fék k m i k ið lof fyrir leik sinn í annar r i þátt aröð Ófærðar sem var sýnd skömmu eftir
áramót. Hann lék ungan samkyn-
hneigðan mann, Víking, sem glímir
við erfiða fjölskyldusögu og áföll.
„Þetta var ótrúlega gott hlut-
verk, ég var heppinn að hafa náð
að lenda því. Þetta var vissulega
krefjandi hlutverk. Að fá að prófa
að leika með atvinnuleikurum og
fá góða leikstjórn. Mér var hent út
í djúpu laugina. Fór beint frá því að
leika með samnemendum mínum í
þetta,“ segir Aron Már.
Aron Már stundar leiklist í Lista-
háskóla Íslands og mun útskrifast
með BA-gráðu í vor. Það hlýtur að
vera kostur að geta fengið svona
tækifæri snemma á ferlinum?
„Já, eins og margir segja í gamni.
Það er auðvelt að vera heimsfrægur
á Íslandi. Það getur verið gott að fá
tækifærin snemma en það getur líka
verið slæmt. Það fer líklega eftir því
hvort þú ert tilbúinn og hvort hlut-
verkið er gott, “ segir Aron Már.
„Samfélag okkar er lítið og tæki-
færin mörg. Ef maður vill líta út
fyrir landsteinana þá er gott að búa
að þessari reynslu að hafa leikið stór
hlutverk í kvikmyndum og á sviði.“
Aron Már er í stífu æfingaferli
í Borgarleikhúsinu þegar blaða-
maður nær tali af honum. Hann
fer með eitt aðalhlutverkanna í
Kæru Jelenu, verki eftir Ljúdmílu
Razumovskaju sem hefur farið
sigurför um heiminn frá því það var
skrifað árið 1980. Verkið var sett á
svið í Þjóðleikhúsinu fyrir tæpum
30 árum í þýðingu Ingibjargar Har-
aldsdóttur sem Kristín Eiríksdóttir
skáld hefur fært nær okkur í stað og
tíma.
Sjokkerandi verk
„Leikritið fjallar í stuttu máli um
fjóra nemendur sem koma að kvöldi
til kennara síns. Þau krefjast svolít-
ils af henni og meira segi ég ekki,“
segir hann og hlær og vill alls ekki
gefa söguþráðinn upp til þeirra sem
eru að sjá verkið í fyrsta sinn.
Verkið hefur verið sett nokkrum
sinnum á fjalir íslenskra leikhúsa og
þykir höfða til ungs fólks. „Verkið
var síðast sett upp í stóru leikhús-
unum á tíunda áratugnum.Anna
Kristín Arngrímsdóttir lék Jelenu,
en nemendurnir voru leiknir af
Baltasar Kormáki, Halldóru Björns-
dóttur, Hilmari Jónssyni og Ingvari
E. Sigurðssyni. En það er gaman að
segja frá því að ég lék í Kæru Jelenu
í Verslunarskólanum. Fór reyndar
með annað hlutverk þá, mér finnst
það ótrúlega skemmtilegt. Verkið á
erindi í dag eins og áður en það spyr
grundvallarspurninga um okkur og
mannseðlið.“
Útvarpsstöð í vexti
Aron Már er einn stofnenda hins
nýja Útvarps 101. „Ég er einn eig-
enda en hef verið of upptekinn í
leikhúsinu til að sinna stöðinni.
Hún er reyndar í góðum höndum
félaga minna. Ég kem sterkur inn
þegar hægist um hjá mér. Daginn
sem við opnuðum stöðina höfðum
við unnið að því að stofna hana
í algjörri leynd. Því það var gat
á markaðnum. Við vildum huga
betur að menningu og ungu fólki.
Í einu orði þá snýst Útvarp 101 um
menningu. Við erum náttúrulega
með frábæran tónlistarstjóra, sem
er Logi Pedro. Vikulega er haldinn
fundur þar sem er farið yfir allt sem
er í deiglunni. Hvað er nýtt? Hvað
er áhugavert og þarf að fara í spilun.
Við erum alveg á tánum. Og munum
á næstunni kynna næsta skref, ég
hlakka til þegar ég má segja frá því,“
segir Aron Már og lætur ekkert uppi
þrátt fyrir mikinn þrýsting.
Stressandi og stórt skref
Í haust leikur Aron Már Shake-
speare í Þjóðleikhúsinu í verkinu
Shakespeare in Love í leikstjórn
Selmu Björnsdóttur. Verkið verður
frumsýnt í október á stóra sviðinu.
Það er byggt á samnefndri kvik-
mynd sem fékk sjö Óskarsverðlaun
árið 1998 þar sem Gwyneth Paltrow
og Joseph Fiennes fóru með aðal-
hlutverk. Leikgerðin hefur verið
vinsæl á West End í London síðustu
fimm ár. Á móti Aroni Má leikur
Lára Jóhanna Jónsdóttir.
„Já, ég svík lit og fer yfir í Þjóð-
leikhúsið,“ segir Aron Már í gamni.
„En þetta er gríðarlegt stökk. Að
fara af litla sviðinu yfir á stóra svið
Þjóðleikhússins. Litla sviðið hér er
reyndar frábært. Mér finnst nálægð-
in góð, mér finnst ég umkringdur
og það er þægilegt. En það er mjög
stressandi að vera að fara að leika
aðalhlutverk á stóra sviðinu. Ég ætla
ekki að reyna að ljúga því að ég er
mjög stressaður. Þetta er krefjandi
en góð áskorun. Og ég er reyndar
svolítið fyrir það að vera hent kúta-
lausum í djúpu laugina.“
Föðurhlutverkið mikilvægast
„Mikilvægasta hlutverkið er nú
samt föðurhlutverkið,“ segir Aron
Már. Hann og kærasta hans, Hildur
Skúladóttir, eignuðust son í janúar
á síðasta ári.
„Lífið er gott. Hann er kominn
á leikskóla og er á ungbarnadeild.
Við vorum að flytja á Laufásveg og
hann fer á Laufásborg. Það er allt að
smella. Konan mín er að sækja um
í meistaranám í sálfræði og starfar
sem f lugfreyja. Hún er ótrúlega
hæfileikarík og ég er alla daga mjög
stoltur af henni,“ segir Aron Már.
Hvernig gengur ykkur að máta
þetta saman, leikaralífið og f lug-
lífið?
„Það fer ágætlega saman. Þegar
hún er að fljúga er ég oft svolítið laus
á daginn og á ofsalega góðan tíma
með syni mínum. Ómetanlegur
tími, finnst mér.
Leikaralífið, það er reyndar svo-
lítið skrýtið líf. . Og allt öðruvísi en
á setti í kvikmyndum. Þú þarft að
muna allan textann þinn. Allar lín-
urnar. Alltaf að grufla og grafa og í
konstant sambandi við leikstjórann
og samleikara þína. Maður er að
hnoða leir. En í bíó getur þú dútlað
þér,“ segir Aron Már.
Lánaðar tilfinningar
Góður leikari þarf að vera í góðu
sambandi við tilfinningar sínar.
Hefur ferlið sem þú varst í hjálpað
þér?
„Það er munur á því að tala um
eigin tilfinningar og tilfinningar á
sviði. Tilfinningar á sviði eru lán-
aðar tilfinningar og maður þarf af
bestu getu að skilja þarna á milli.
Þetta er jafnvægi sem maður þarf
að finna. Maður þarf að passa upp
á sig.“
„Þetta er eins og pípulögn, þú
þarft bara að vita hvernig þú
skrúfar frá. Ég er enn að læra þetta.
Finna mitt tilfinningaróf á sviði.
Þegar maður upplifir tilfinningar,
ef maður er sannur í sínu, þá koma
þær bara yfir mann. En þegar
maður fer á svið þá þarf maður að
geta stjórnað þessu. Að geta, í hvaða
ástandi sem er, skilið á milli.“
Kútalaus
í djúpu
lauginni
Leikferill Arons Más Ólafssonar, betur
þekktur sem Aron Mola, fer kröftuglega af
stað. Hann leikur eitt aðalhlutverkið í Kæru
Jelenu sem er frumsýnt í Borgarleikhúsinu
í næstu viku. Næsta haust mun hann svo
standa á stóra sviði Þjóðleikhússins.
Aron Már er ekki útskrifaður frá Listaháskólanum en hefur fengið nokkur stór hlutverk. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
KONAN MÍN ER AÐ SÆKJA
UM Í MEISTARANÁM Í
SÁLFRÆÐI OG STARFAR
SEM FLUGFREYJA. HÚN ER
ÓTRÚLEGA HÆFILEIKARÍK
OG ÉG ER ALLA DAGA MJÖG
STOLTUR AF HENNI.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
6
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:1
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
2
-1
7
E
C
2
2
C
2
-1
6
B
0
2
2
C
2
-1
5
7
4
2
2
C
2
-1
4
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
5
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K