Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 78

Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 78
ÞAÐ ER AUÐVELT AÐ VERA HEIMSFRÆGUR Á ÍSLANDI. ÞAÐ GETUR VERIÐ GOTT AÐ FÁ TÆKIFÆRIN SNEMMA EN ÞAÐ GETUR LÍKA VERIÐ SLÆMT. Ar on M á r Ól a f s -s on fék k m i k ið lof fyrir leik sinn í annar r i þátt aröð Ófærðar sem var sýnd skömmu eftir áramót. Hann lék ungan samkyn- hneigðan mann, Víking, sem glímir við erfiða fjölskyldusögu og áföll. „Þetta var ótrúlega gott hlut- verk, ég var heppinn að hafa náð að lenda því. Þetta var vissulega krefjandi hlutverk. Að fá að prófa að leika með atvinnuleikurum og fá góða leikstjórn. Mér var hent út í djúpu laugina. Fór beint frá því að leika með samnemendum mínum í þetta,“ segir Aron Már. Aron Már stundar leiklist í Lista- háskóla Íslands og mun útskrifast með BA-gráðu í vor. Það hlýtur að vera kostur að geta fengið svona tækifæri snemma á ferlinum? „Já, eins og margir segja í gamni. Það er auðvelt að vera heimsfrægur á Íslandi. Það getur verið gott að fá tækifærin snemma en það getur líka verið slæmt. Það fer líklega eftir því hvort þú ert tilbúinn og hvort hlut- verkið er gott, “ segir Aron Már. „Samfélag okkar er lítið og tæki- færin mörg. Ef maður vill líta út fyrir landsteinana þá er gott að búa að þessari reynslu að hafa leikið stór hlutverk í kvikmyndum og á sviði.“ Aron Már er í stífu æfingaferli í Borgarleikhúsinu þegar blaða- maður nær tali af honum. Hann fer með eitt aðalhlutverkanna í Kæru Jelenu, verki eftir Ljúdmílu Razumovskaju sem hefur farið sigurför um heiminn frá því það var skrifað árið 1980. Verkið var sett á svið í Þjóðleikhúsinu fyrir tæpum 30 árum í þýðingu Ingibjargar Har- aldsdóttur sem Kristín Eiríksdóttir skáld hefur fært nær okkur í stað og tíma. Sjokkerandi verk „Leikritið fjallar í stuttu máli um fjóra nemendur sem koma að kvöldi til kennara síns. Þau krefjast svolít- ils af henni og meira segi ég ekki,“ segir hann og hlær og vill alls ekki gefa söguþráðinn upp til þeirra sem eru að sjá verkið í fyrsta sinn. Verkið hefur verið sett nokkrum sinnum á fjalir íslenskra leikhúsa og þykir höfða til ungs fólks. „Verkið var síðast sett upp í stóru leikhús- unum á tíunda áratugnum.Anna Kristín Arngrímsdóttir lék Jelenu, en nemendurnir voru leiknir af Baltasar Kormáki, Halldóru Björns- dóttur, Hilmari Jónssyni og Ingvari E. Sigurðssyni. En það er gaman að segja frá því að ég lék í Kæru Jelenu í Verslunarskólanum. Fór reyndar með annað hlutverk þá, mér finnst það ótrúlega skemmtilegt. Verkið á erindi í dag eins og áður en það spyr grundvallarspurninga um okkur og mannseðlið.“ Útvarpsstöð í vexti Aron Már er einn stofnenda hins nýja Útvarps 101. „Ég er einn eig- enda en hef verið of upptekinn í leikhúsinu til að sinna stöðinni. Hún er reyndar í góðum höndum félaga minna. Ég kem sterkur inn þegar hægist um hjá mér. Daginn sem við opnuðum stöðina höfðum við unnið að því að stofna hana í algjörri leynd. Því það var gat á markaðnum. Við vildum huga betur að menningu og ungu fólki. Í einu orði þá snýst Útvarp 101 um menningu. Við erum náttúrulega með frábæran tónlistarstjóra, sem er Logi Pedro. Vikulega er haldinn fundur þar sem er farið yfir allt sem er í deiglunni. Hvað er nýtt? Hvað er áhugavert og þarf að fara í spilun. Við erum alveg á tánum. Og munum á næstunni kynna næsta skref, ég hlakka til þegar ég má segja frá því,“ segir Aron Már og lætur ekkert uppi þrátt fyrir mikinn þrýsting. Stressandi og stórt skref Í haust leikur Aron Már Shake- speare í Þjóðleikhúsinu í verkinu Shakespeare in Love í leikstjórn Selmu Björnsdóttur. Verkið verður frumsýnt í október á stóra sviðinu. Það er byggt á samnefndri kvik- mynd sem fékk sjö Óskarsverðlaun árið 1998 þar sem Gwyneth Paltrow og Joseph Fiennes fóru með aðal- hlutverk. Leikgerðin hefur verið vinsæl á West End í London síðustu fimm ár. Á móti Aroni Má leikur Lára Jóhanna Jónsdóttir. „Já, ég svík lit og fer yfir í Þjóð- leikhúsið,“ segir Aron Már í gamni. „En þetta er gríðarlegt stökk. Að fara af litla sviðinu yfir á stóra svið Þjóðleikhússins. Litla sviðið hér er reyndar frábært. Mér finnst nálægð- in góð, mér finnst ég umkringdur og það er þægilegt. En það er mjög stressandi að vera að fara að leika aðalhlutverk á stóra sviðinu. Ég ætla ekki að reyna að ljúga því að ég er mjög stressaður. Þetta er krefjandi en góð áskorun. Og ég er reyndar svolítið fyrir það að vera hent kúta- lausum í djúpu laugina.“ Föðurhlutverkið mikilvægast „Mikilvægasta hlutverkið er nú samt föðurhlutverkið,“ segir Aron Már. Hann og kærasta hans, Hildur Skúladóttir, eignuðust son í janúar á síðasta ári. „Lífið er gott. Hann er kominn á leikskóla og er á ungbarnadeild. Við vorum að flytja á Laufásveg og hann fer á Laufásborg. Það er allt að smella. Konan mín er að sækja um í meistaranám í sálfræði og starfar sem f lugfreyja. Hún er ótrúlega hæfileikarík og ég er alla daga mjög stoltur af henni,“ segir Aron Már. Hvernig gengur ykkur að máta þetta saman, leikaralífið og f lug- lífið? „Það fer ágætlega saman. Þegar hún er að fljúga er ég oft svolítið laus á daginn og á ofsalega góðan tíma með syni mínum. Ómetanlegur tími, finnst mér. Leikaralífið, það er reyndar svo- lítið skrýtið líf. . Og allt öðruvísi en á setti í kvikmyndum. Þú þarft að muna allan textann þinn. Allar lín- urnar. Alltaf að grufla og grafa og í konstant sambandi við leikstjórann og samleikara þína. Maður er að hnoða leir. En í bíó getur þú dútlað þér,“ segir Aron Már. Lánaðar tilfinningar Góður leikari þarf að vera í góðu sambandi við tilfinningar sínar. Hefur ferlið sem þú varst í hjálpað þér? „Það er munur á því að tala um eigin tilfinningar og tilfinningar á sviði. Tilfinningar á sviði eru lán- aðar tilfinningar og maður þarf af bestu getu að skilja þarna á milli. Þetta er jafnvægi sem maður þarf að finna. Maður þarf að passa upp á sig.“ „Þetta er eins og pípulögn, þú þarft bara að vita hvernig þú skrúfar frá. Ég er enn að læra þetta. Finna mitt tilfinningaróf á sviði. Þegar maður upplifir tilfinningar, ef maður er sannur í sínu, þá koma þær bara yfir mann. En þegar maður fer á svið þá þarf maður að geta stjórnað þessu. Að geta, í hvaða ástandi sem er, skilið á milli.“ Kútalaus í djúpu lauginni Leikferill Arons Más Ólafssonar, betur þekktur sem Aron Mola, fer kröftuglega af stað. Hann leikur eitt aðalhlutverkið í Kæru Jelenu sem er frumsýnt í Borgarleikhúsinu í næstu viku. Næsta haust mun hann svo standa á stóra sviði Þjóðleikhússins. Aron Már er ekki útskrifaður frá Listaháskólanum en hefur fengið nokkur stór hlutverk. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR KONAN MÍN ER AÐ SÆKJA UM Í MEISTARANÁM Í SÁLFRÆÐI OG STARFAR SEM FLUGFREYJA. HÚN ER ÓTRÚLEGA HÆFILEIKARÍK OG ÉG ER ALLA DAGA MJÖG STOLTUR AF HENNI. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :1 6 F B 1 0 4 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 C 2 -1 7 E C 2 2 C 2 -1 6 B 0 2 2 C 2 -1 5 7 4 2 2 C 2 -1 4 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 0 4 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.