Fréttablaðið - 06.04.2019, Síða 80

Fréttablaðið - 06.04.2019, Síða 80
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Gerður Jóhannsdóttir Árskógum, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þriðjudaginn 2. apríl. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 8. apríl kl. 15.00. Kjartan Ármann Kjartansson börn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, bróðir, afi og langafi, Björn Jóhannsson rekstrartæknifræðingur, er látinn. Hugheilar þakkir til allra sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks 13G við Hringbraut, heimahjúkrunar og starfsfólks Heru fyrir góða umönnun og hlýju í okkar garð. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Birna Dís, Ingunn Hafdís og Anna Hjördís Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomulag útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til samtals um það sem er þér mikilvægast við lífslok þín. Viljayfirlýsing þín verður eftirlifendum mikilvægt leiðarljós. Samtalið og varðveisla upplýsinga er þér að kostnaðarlausu. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Einar Helgason lést 3. apríl á dvalarheimilinu í Stykkishólmi. Útför fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. apríl kl. 13.00. Emil Einarsson Sigríður Ólöf Sigurðardóttir Ísak Einarsson og barnabörn. Okkar kæri Þorvaldur K. Hafberg andaðist á Landspítalanum 30. mars. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 16. apríl kl. 15.00. Andrés Hafberg Sólveig Guðjónsdóttir Friðrik Hafberg Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir Anna Hafberg Linda Vilhjálmsdóttir Mörður Árnason Hafdís Vilhjálmsdóttir Ásta Vilhjálmsdóttir Steinþór Birgisson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sævar Guðmundsson lést þann 1. apríl á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útför Sævars fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 10. apríl kl. 15.00. Sólveig Birna Sigurðardóttir Þór Þorgeirsson Ari Eyberg Sævarsson Ásta Ósk Hákonardóttir Guðleif Sunna Sævarsdóttir Baldvin Hrafnsson Jóhanna Bjarndís Sævarsdóttir Rafal Arapinowicz barnabörn og barnabarnabörn. Óperuf lutningur er ómiss-andi þáttur í þjálfun ungra söngvara til þess að geta starfað í óperuhúsum hér á landi og erlendis,“ segir Anna Júlíana Sveinsdóttir, söngkenn- ari í Tónlistarskóla Kópavogs. Nú er hátt reitt til höggs því það er sjálft Brúð- kaup Fígarós eftir Mozart sem fer á svið í Salnum í Kópavogi, fyrst annað kvöld, svo mánudaginn 8. apríl  klukkan 20 og á sama tíma miðvikudaginn 10. apríl.  „Við erum eiginlega búin að undir- búa þessa sýningu í eitt og hálft ár, og ég leyfi mér að segja að vel takist til,“ segir Anna Júlíana sem lagði á sig að þýða  Brúðkaup Fígarós  á íslensku.   Hún segir þessa uppfærslu gerast á okkar tíma og  vera í aðeins styttra formi en sú eldri. Svo kemur lýsing á efninu. Óperan gerist í nágrenni Sevilla, í kastala Almaviva greifa og hallargarð- inum. Greifinn er orðinn leiður á eigin- konu sinni og rennir hýru auga til þjón- ustustúlku hennar, Súsönnu, en hún er lofuð Fígaró, þjóni greifans. Greifa- frúin og Súsanna ákveða í sameiningu að leika á greifann því Súsanna veit að hann getur, ef honum sýnist svo, beitt hana húsbóndaréttinum og krafist þess að sænga hjá henni á sjálfa brúðkaups- nóttina. Í óperunni koma við sögu hinn ástsjúki unglingur Cher úbín, söng- kennarinn Basilíó, Don Cúrzíó dómari, hinn kokkálaði Bartóló læknir, sem ungur vildi kvænast Rósínu greifafrú, og fyrrverandi ráðskona hans, Mar- cellína sem hafði lánað Fígaró peninga gegn því að hann kvæntist henni ef hann endurgreiddi henni ekki. Tuttugu og níu ár eru liðin frá fyrsta óperuf lutningi í Kópavogi sem var á vegum Tónlistarskóla Kópavogs, þá í Hamraborg. Alls hafa tuttugu og sex óperur verið settar á svið undir stjórn Önnu Júlíönu. Tíu söngvarar taka þátt í f lutningn- um í Salnum . Anna Júlíana er leikstjóri eins og komið hefur fram, Kristín Stef- ánsdóttir sýningarstjóri og tónlistar- stjóri og píanóleikari er Aladár Rácz. Anna Júlíana tekur fram að aðgangur sé ókeypis að venju  og allir séu vel- komnir. gun@frettabladid.is Brúðkaup Fígarós í Salnum Söngvarar í Tónlistarskóla Kópavogs sýna Brúðkaup Fígarós í Salnum annað kvöld, á mánudag og miðvikudag undir stjórn Önnu Júlíönu Sveinsdóttur. Aðgangur er ókeypis. Alls eru tíu manns sem fara á svið í uppfærslu Tónlistarskóla Kópavogs á Brúðkaupi Fígarós. Hér er tekist á. Sigrún Gyða Sveinsdóttir sem Rósína greifafrú og Áslákur Ingvarsson sem Almviva greifi. Fróðleikur um óperuna Óperan Le nozze di Figaro eins og hún heitir á frummálinu var frum- sýnd í Vín 1. maí árið 1786. Höfundur textans, sem saminn var upp úr gam- anleik eftir Caron de Bau marchais, var hinn bráðsnjalli Lorenzo da Ponte og þar endurspeglast andúð á yfirstéttinni sem hefur örugglega skírskotað til tónskáldsins eftir þá reynslu sem Mozart hlaut í þjónustu erkibiskupsins í Salzburg. 6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 0 6 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :1 6 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 C 2 -2 B A C 2 2 C 2 -2 A 7 0 2 2 C 2 -2 9 3 4 2 2 C 2 -2 7 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 0 4 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.