Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 80
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Gerður Jóhannsdóttir
Árskógum,
andaðist á hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ þriðjudaginn 2. apríl.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
mánudaginn 8. apríl kl. 15.00.
Kjartan Ármann Kjartansson
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
bróðir, afi og langafi,
Björn Jóhannsson
rekstrartæknifræðingur,
er látinn.
Hugheilar þakkir til allra sem sýnt hafa
okkur samúð og hlýhug. Útför hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir
til starfsfólks 13G við Hringbraut, heimahjúkrunar og
starfsfólks Heru fyrir góða umönnun og hlýju í okkar garð.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Birna Dís, Ingunn Hafdís og Anna Hjördís
Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomulag
útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til samtals um
það sem er þér mikilvægast við lífslok þín. Viljayfirlýsing
þín verður eftirlifendum mikilvægt leiðarljós. Samtalið
og varðveisla upplýsinga er þér að kostnaðarlausu.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Elín Sigrún Jónsdóttir,
lögfræðingur
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Einar Helgason
lést 3. apríl á dvalarheimilinu
í Stykkishólmi. Útför fer fram
frá Fossvogskirkju föstudaginn
12. apríl kl. 13.00.
Emil Einarsson Sigríður Ólöf Sigurðardóttir
Ísak Einarsson
og barnabörn.
Okkar kæri
Þorvaldur K. Hafberg
andaðist á Landspítalanum 30. mars.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
þriðjudaginn 16. apríl kl. 15.00.
Andrés Hafberg Sólveig Guðjónsdóttir
Friðrik Hafberg Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir
Anna Hafberg
Linda Vilhjálmsdóttir Mörður Árnason
Hafdís Vilhjálmsdóttir
Ásta Vilhjálmsdóttir Steinþór Birgisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sævar Guðmundsson
lést þann 1. apríl á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni. Útför Sævars fer fram frá
Grafarvogskirkju miðvikudaginn
10. apríl kl. 15.00.
Sólveig Birna Sigurðardóttir Þór Þorgeirsson
Ari Eyberg Sævarsson Ásta Ósk Hákonardóttir
Guðleif Sunna Sævarsdóttir Baldvin Hrafnsson
Jóhanna Bjarndís Sævarsdóttir Rafal Arapinowicz
barnabörn og barnabarnabörn.
Óperuf lutningur er ómiss-andi þáttur í þjálfun ungra söngvara til þess að geta starfað í óperuhúsum hér á landi og erlendis,“ segir
Anna Júlíana Sveinsdóttir, söngkenn-
ari í Tónlistarskóla Kópavogs. Nú er
hátt reitt til höggs því það er sjálft Brúð-
kaup Fígarós eftir Mozart sem fer á svið
í Salnum í Kópavogi, fyrst annað kvöld,
svo mánudaginn 8. apríl klukkan 20
og á sama tíma miðvikudaginn 10. apríl.
„Við erum eiginlega búin að undir-
búa þessa sýningu í eitt og hálft ár,
og ég leyfi mér að segja að vel takist
til,“ segir Anna Júlíana sem lagði
á sig að þýða Brúðkaup Fígarós á
íslensku. Hún segir þessa uppfærslu
gerast á okkar tíma og vera í aðeins
styttra formi en sú eldri. Svo kemur
lýsing á efninu.
Óperan gerist í nágrenni Sevilla, í
kastala Almaviva greifa og hallargarð-
inum. Greifinn er orðinn leiður á eigin-
konu sinni og rennir hýru auga til þjón-
ustustúlku hennar, Súsönnu, en hún
er lofuð Fígaró, þjóni greifans. Greifa-
frúin og Súsanna ákveða í sameiningu
að leika á greifann því Súsanna veit að
hann getur, ef honum sýnist svo, beitt
hana húsbóndaréttinum og krafist þess
að sænga hjá henni á sjálfa brúðkaups-
nóttina. Í óperunni koma við sögu hinn
ástsjúki unglingur Cher úbín, söng-
kennarinn Basilíó, Don Cúrzíó dómari,
hinn kokkálaði Bartóló læknir, sem
ungur vildi kvænast Rósínu greifafrú,
og fyrrverandi ráðskona hans, Mar-
cellína sem hafði lánað Fígaró peninga
gegn því að hann kvæntist henni ef
hann endurgreiddi henni ekki.
Tuttugu og níu ár eru liðin frá fyrsta
óperuf lutningi í Kópavogi sem var á
vegum Tónlistarskóla Kópavogs, þá í
Hamraborg. Alls hafa tuttugu og sex
óperur verið settar á svið undir stjórn
Önnu Júlíönu.
Tíu söngvarar taka þátt í f lutningn-
um í Salnum . Anna Júlíana er leikstjóri
eins og komið hefur fram, Kristín Stef-
ánsdóttir sýningarstjóri og tónlistar-
stjóri og píanóleikari er Aladár Rácz.
Anna Júlíana tekur fram að aðgangur
sé ókeypis að venju og allir séu vel-
komnir.
gun@frettabladid.is
Brúðkaup Fígarós í Salnum
Söngvarar í Tónlistarskóla Kópavogs sýna Brúðkaup Fígarós í Salnum annað kvöld, á
mánudag og miðvikudag undir stjórn Önnu Júlíönu Sveinsdóttur. Aðgangur er ókeypis.
Alls eru tíu manns sem fara á svið í uppfærslu Tónlistarskóla Kópavogs á Brúðkaupi Fígarós. Hér er tekist á.
Sigrún Gyða Sveinsdóttir sem Rósína greifafrú og Áslákur Ingvarsson sem Almviva greifi.
Fróðleikur um óperuna
Óperan Le nozze di Figaro eins og
hún heitir á frummálinu var frum-
sýnd í Vín 1. maí árið 1786. Höfundur
textans, sem saminn var upp úr gam-
anleik eftir Caron de Bau marchais,
var hinn bráðsnjalli Lorenzo da
Ponte og þar endurspeglast andúð
á yfirstéttinni sem hefur örugglega
skírskotað til tónskáldsins eftir þá
reynslu sem Mozart hlaut í þjónustu
erkibiskupsins í Salzburg.
6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
6
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:1
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
2
-2
B
A
C
2
2
C
2
-2
A
7
0
2
2
C
2
-2
9
3
4
2
2
C
2
-2
7
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
5
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K