Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 82

Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 82
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma, Laufey Sigurfinnsdóttir lést þann 20. mars sl. á hjartadeild Landspítalans. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Haraldur Haraldsson Margrét Sif Haraldsdóttir Haraldur Haraldsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, Ólöf Svava Indriðadóttir (Lóa) kjólameistari, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 27. mars. Jarðsett verður frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 17. apríl klukkan 15.00. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Benedikt Sigurbjörnsson Þóra Guðrún Benediktsdóttir Hólmfríður Ben Benediktsdóttir Indriði Benediktsson Ástkær systir okkar, Svanhildur Finndal Guðmundsdóttir frá Finnstungu, til heimilis að Hólavegi 28, Sauðárkróki, lést á gjörgæsludeild Landspítalans mánudaginn 1. apríl. Útför fer fram frá Blönduóskirkju miðvikudaginn 10. apríl kl. 13.00. Grétar, Heimir, Áslaug og fjölskyldur. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þorgeir Hjörleifsson frá Hnífsdal, sem lést á Grund 28. mars, verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn 8. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar. Elísabet Þorgeirsdóttir Halldór Þorgeirsson Sjöfn Heiða Steinsson Arnaldur Máni Finnsson Karna Sigurðardóttir Berglind Halldórsdóttir Adib Birkland Hákon Atli Halldórsson Bára Hlín Kristjánsdóttir og langafabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og stjúpfaðir, Sigurður Finnbjörn Mar vélfræðingur, Vatnsstíg 19, 101 Reykjavík, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 2. apríl. Jarðarförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sæunn G. Guðmundsdóttir Kristín Ingibjörg Mar Birna Mar Steinunn Mar Jóhanna Laufey Ólafsdóttir Steinunn Fjóla Ólafsdóttir Guðrún Katrín Ólafsdóttir Berglind Eva Ólafsdóttir og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir veitta samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður minnar, systur, mágkonu og frænku, Önnu Jóhannsdóttur frá Steinum, Kleppsvegi 58, Reykjavík. Sérstakar til starfsfólks á 3. hæð á hjúkrunarheimilinu Skjóli fyrir umönnun og hlýju í gegnum árin. Jóhann Elí Guðmunda Jóhannsdóttir Sigurður Gunnsteinsson Jóna M.R. Jóhannsdóttir Ólafur Haraldsson og systrabörn. Jón Runólfsson og Ingibjörg Ágústa Björnsdóttir áður til heimilis að Espigerði 4, Reykjavík, létust á hjúkrunarheimilinu Mörk, Reykjavík, 28. mars 2019 og 31. mars. 2019. Útför þeirra fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn 12. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Bragi Jónsson Unnur Jónsdóttir Inga Jónsdóttir Friðfinnur Finnbogason Jón Ágúst Jónsson Margrét Jónsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Ástkærir foreldrar okkar, tengdaforeldrar, afi og amma, Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðmundur Finnbogason Fannafold 165, 112 RVK, fd. 10.01.1935 á Eyrarbakka, varð bráðkvaddur í Þýzkalandi þann 4. mars. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. f.h. fjölskyldunnar, Roswitha Kreye Finnbogason Úlfar Guðmundsson Bryndís Guðmundsdóttir Jón Aðalsteinn Kristinsson Maria E. Guðmundsdóttir, sem er nú látin Sigrún L. Guðmundsdóttir Jón Pétursson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, dóttur og systur, Dóru Hafsteinsdóttur sem lést þriðjudaginn 26. febrúar sl. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar Landspítalans HERA og líknardeildar fyrir einstaka aðstoð og umönnun. Sigurður Ingi Margeirsson Hafsteinn Gunnar Sigurðsson Valgerður Rúnarsdóttir Margeir Gunnar Sigurðsson Marta Goðadóttir Stefán Gunnar Sigurðsson Bergrún Mist Jóhannesd. barnabörn, Hafsteinn Austmann og Kristín Hafsteinsdóttir Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Samtökin voru stofnuð 25. októ-ber 1969 en við höldum upp á fimmtíu ára afmælið allt árið,“ segir Katrín Magnúsdóttir, verk-efnisstjóri hjá Landvernd. „Núna í apríl erum við  að fókusera á fatasóun og erum með tvo viðburði af því tilefni, sá fyrri er norræni fataskiptadagurinn sem er í dag. Það eru að minnsta kosti fatamarkaðir á Háskólatorgi í Reykja- vík og svo á Akureyri, Laugarvatni og í Hafnarfirði. En það eru samtals 300 fataskiptaviðburðir um öll Norðurlönd í dag svo Ísland er dálítið peð í því sam- hengi. Þetta er bara í annað sinn sem við Íslendingar tökum þátt. Við tókum þátt í fyrra líka, þá var það Hitt húsið sem sá um daginn. En nú fellir Landvernd hann inn í afmælisdagskrá sína.“ Fatasóun er málefni sem Katrín segir Landvernd taka reglulega fyrir, meðal annars í skólum. „Við vekjum athygli á umhverfisvanda og samfélagskostnaði í öllum textíliðnaði, það er eitt af málum málanna og meðal knýjandi verkefna nútímans er að stemma stigu við þeirri sóun.“ Vill Katrín sem sagt að fólk gangi í föt- unum sínum þangað til þau eru útslitin? „Strangt til tekið gætum við Íslendingar f lestir hætt að kaupa  okkur föt núna og nýtt það sem við eigum. Það mundi endast okkur ævina út að því gefnu að við fitnum ekki óhóflega mikið og það stendur líka í okkar valdi að það gerist ekki. En svo róttæk verðum við auðvitað ekki. Við viljum benda fólki á að skapa sinn eigin stíl,  endurnýja fataskápinn með því að skipta á fötum við aðra, þann- ig að úr verði hringrás. Líka að kaupa föt á mörkuðum og breyta þeim að eigin geð- þótta, ef þess gerist þörf.“ Katrín bendir á að tíska sé ákveðin af fólki, hún sé ekkert náttúrulögmál held- ur markaðsbrella. Í framhaldinu bregður hún upp kunnuglegri mynd. „Maður mætir út í búð og sér allt það sem maður á að eiga og líkist engu í eigin fataskáp. Þá kemur þessi vöntunartilfinning í sálina. Ég gæti líka talað um umhverfis- og sam- félagskostnaðinn. Ástæðan fyrir því að fatarisar geta selt vörur sína jafn ódýrt og raun ber vitni er sú að inn í verðið vantar allan umhverfiskostnað og kostnað sem fylgir því að borga fólkinu sem framleiðir vörurnar mannsæmandi laun. Því miður er þó engin trygging fyrir því að þessir hlutir séu í lagi þó fötin séu dýr því aðrir hirða gróðann.“ Næsti afmælisviðburður Landverndar tengist líka sóun vegna tískunnar, að sögn Katrínar. Það er sýning myndar- innar The True Cost sem verður í Bíói Paradís 10. apríl. Frítt er inn á hana í boði Landverndar.   gun@frettabladid.is  Norrænn fataskiptadagur  Landvernd er fimmtug á árinu og er með viðamikla afmælisdagskrá. Liðir í henni eru fataskiptamarkaðir í dag á 4 stöðum á landinu og sýning heimildarmyndar 10. apríl. „Strangt til tekið gætum við Íslendingar flestir hætt að kaupa okkur föt núna,“ segir Katrín. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R38 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :1 6 F B 1 0 4 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 C 2 -2 6 B C 2 2 C 2 -2 5 8 0 2 2 C 2 -2 4 4 4 2 2 C 2 -2 3 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 0 4 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.