Fréttablaðið - 06.04.2019, Síða 82
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
amma og langamma,
Laufey Sigurfinnsdóttir
lést þann 20. mars sl. á hjartadeild
Landspítalans. Útför hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Haraldur Haraldsson
Margrét Sif Haraldsdóttir
Haraldur Haraldsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
Ólöf Svava Indriðadóttir
(Lóa)
kjólameistari,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
27. mars. Jarðsett verður frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn
17. apríl klukkan 15.00.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Benedikt Sigurbjörnsson
Þóra Guðrún Benediktsdóttir
Hólmfríður Ben Benediktsdóttir
Indriði Benediktsson
Ástkær systir okkar,
Svanhildur Finndal
Guðmundsdóttir
frá Finnstungu, til heimilis að
Hólavegi 28, Sauðárkróki,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
mánudaginn 1. apríl. Útför fer fram
frá Blönduóskirkju miðvikudaginn 10. apríl kl. 13.00.
Grétar, Heimir, Áslaug og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þorgeir Hjörleifsson
frá Hnífsdal,
sem lést á Grund 28. mars, verður
jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn
8. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á Minningarsjóð dvalar- og
hjúkrunarheimilisins Grundar.
Elísabet Þorgeirsdóttir
Halldór Þorgeirsson Sjöfn Heiða Steinsson
Arnaldur Máni Finnsson Karna Sigurðardóttir
Berglind Halldórsdóttir Adib Birkland
Hákon Atli Halldórsson Bára Hlín Kristjánsdóttir
og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar og stjúpfaðir,
Sigurður Finnbjörn Mar
vélfræðingur,
Vatnsstíg 19, 101 Reykjavík,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn
2. apríl. Jarðarförin fer fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Sæunn G. Guðmundsdóttir
Kristín Ingibjörg Mar
Birna Mar
Steinunn Mar
Jóhanna Laufey Ólafsdóttir
Steinunn Fjóla Ólafsdóttir
Guðrún Katrín Ólafsdóttir
Berglind Eva Ólafsdóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir veitta samúð,
vináttu og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður minnar,
systur, mágkonu og frænku,
Önnu Jóhannsdóttur
frá Steinum,
Kleppsvegi 58, Reykjavík.
Sérstakar til starfsfólks á 3. hæð á hjúkrunarheimilinu
Skjóli fyrir umönnun og hlýju í gegnum árin.
Jóhann Elí
Guðmunda Jóhannsdóttir Sigurður Gunnsteinsson
Jóna M.R. Jóhannsdóttir Ólafur Haraldsson
og systrabörn.
Jón Runólfsson og
Ingibjörg Ágústa Björnsdóttir
áður til heimilis að Espigerði 4, Reykjavík,
létust á hjúkrunarheimilinu Mörk, Reykjavík,
28. mars 2019 og 31. mars. 2019. Útför þeirra fer fram frá
Grensáskirkju föstudaginn 12. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir.
Bragi Jónsson
Unnur Jónsdóttir
Inga Jónsdóttir Friðfinnur Finnbogason
Jón Ágúst Jónsson Margrét Jónsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Ástkærir
foreldrar okkar,
tengdaforeldrar,
afi og amma,
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Finnbogason
Fannafold 165, 112 RVK,
fd. 10.01.1935 á Eyrarbakka,
varð bráðkvaddur í Þýzkalandi þann
4. mars. Útför hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
f.h. fjölskyldunnar,
Roswitha Kreye Finnbogason
Úlfar Guðmundsson
Bryndís Guðmundsdóttir Jón Aðalsteinn Kristinsson
Maria E. Guðmundsdóttir, sem er nú látin
Sigrún L. Guðmundsdóttir Jón Pétursson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát ástkærrar
eiginkonu, móður, tengdamóður,
dóttur og systur,
Dóru Hafsteinsdóttur
sem lést þriðjudaginn 26. febrúar sl.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
heimahlynningar Landspítalans HERA og líknardeildar
fyrir einstaka aðstoð og umönnun.
Sigurður Ingi Margeirsson
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson Valgerður Rúnarsdóttir
Margeir Gunnar Sigurðsson Marta Goðadóttir
Stefán Gunnar Sigurðsson Bergrún Mist Jóhannesd.
barnabörn,
Hafsteinn Austmann og Kristín Hafsteinsdóttir
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Samtökin voru stofnuð 25. októ-ber 1969 en við höldum upp á fimmtíu ára afmælið allt árið,“ segir Katrín Magnúsdóttir, verk-efnisstjóri hjá Landvernd. „Núna
í apríl erum við að fókusera á fatasóun
og erum með tvo viðburði af því tilefni,
sá fyrri er norræni fataskiptadagurinn
sem er í dag. Það eru að minnsta kosti
fatamarkaðir á Háskólatorgi í Reykja-
vík og svo á Akureyri, Laugarvatni og
í Hafnarfirði. En það eru samtals 300
fataskiptaviðburðir um öll Norðurlönd
í dag svo Ísland er dálítið peð í því sam-
hengi. Þetta er bara í annað sinn sem við
Íslendingar tökum þátt. Við tókum þátt
í fyrra líka, þá var það Hitt húsið sem sá
um daginn. En nú fellir Landvernd hann
inn í afmælisdagskrá sína.“
Fatasóun er málefni sem Katrín segir
Landvernd taka reglulega fyrir, meðal
annars í skólum. „Við vekjum athygli á
umhverfisvanda og samfélagskostnaði í
öllum textíliðnaði, það er eitt af málum
málanna og meðal knýjandi verkefna
nútímans er að stemma stigu við þeirri
sóun.“
Vill Katrín sem sagt að fólk gangi í föt-
unum sínum þangað til þau eru útslitin?
„Strangt til tekið gætum við Íslendingar
f lestir hætt að kaupa okkur föt núna
og nýtt það sem við eigum. Það mundi
endast okkur ævina út að því gefnu að
við fitnum ekki óhóflega mikið og það
stendur líka í okkar valdi að það gerist
ekki. En svo róttæk verðum við auðvitað
ekki. Við viljum benda fólki á að skapa
sinn eigin stíl, endurnýja fataskápinn
með því að skipta á fötum við aðra, þann-
ig að úr verði hringrás. Líka að kaupa föt á
mörkuðum og breyta þeim að eigin geð-
þótta, ef þess gerist þörf.“
Katrín bendir á að tíska sé ákveðin af
fólki, hún sé ekkert náttúrulögmál held-
ur markaðsbrella. Í framhaldinu bregður
hún upp kunnuglegri mynd. „Maður
mætir út í búð og sér allt það sem maður
á að eiga og líkist engu í eigin fataskáp. Þá
kemur þessi vöntunartilfinning í sálina.
Ég gæti líka talað um umhverfis- og sam-
félagskostnaðinn. Ástæðan fyrir því að
fatarisar geta selt vörur sína jafn ódýrt og
raun ber vitni er sú að inn í verðið vantar
allan umhverfiskostnað og kostnað sem
fylgir því að borga fólkinu sem framleiðir
vörurnar mannsæmandi laun. Því miður
er þó engin trygging fyrir því að þessir
hlutir séu í lagi þó fötin séu dýr því aðrir
hirða gróðann.“
Næsti afmælisviðburður Landverndar
tengist líka sóun vegna tískunnar, að
sögn Katrínar. Það er sýning myndar-
innar The True Cost sem verður í Bíói
Paradís 10. apríl. Frítt er inn á hana í boði
Landverndar.
gun@frettabladid.is
Norrænn fataskiptadagur
Landvernd er fimmtug á árinu og er með viðamikla afmælisdagskrá. Liðir í henni eru
fataskiptamarkaðir í dag á 4 stöðum á landinu og sýning heimildarmyndar 10. apríl.
„Strangt til tekið gætum við Íslendingar flestir hætt að kaupa okkur föt núna,“ segir Katrín. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R38 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
6
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:1
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
2
-2
6
B
C
2
2
C
2
-2
5
8
0
2
2
C
2
-2
4
4
4
2
2
C
2
-2
3
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
0
4
s
_
5
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K