Fréttablaðið - 06.04.2019, Side 90

Fréttablaðið - 06.04.2019, Side 90
Teikningin er í hávegum höfð á sýningunni Útlínu sem opnuð verður í Gerðarsafni klukkan 13 í dag. Um leið og stigið er inn í norður salinn blasir við serían Heimilisteikningar eftir Valgerði Briem og skissur eftir Barböru Árnason úr bók sem hún og Magnús Árnason, ásamt Víf li syni þeirra, gáfu út um Mexíkó 1966. Sýningarstjórarnir Hrafnhildur Gissurardóttir og Brynja Sveins­ dóttir fræða okkur Stefán ljós­ myndara um allt sem fyrir augu Hér á útlínan sjálfstætt líf Á sýningunni Útlína sem opnuð verður í Gerðarsafni í dag eru valin verk úr safneigninni frá 1950 til nútímans. Sum verkin eru sett upp í barnahæð. Heimilisteikningar nefnist þessi sería eftir listakonuna og listkennarann Valgerði Briem sem Erró hefur sagt að hefði verið hans besti kennari . FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Þetta víraverk vann Gerður Helgadóttir fyrir kaffihús í París. Hrafnhildur og Brynja útskýra eitt þeirra listaverka sem eru ætluð yngstu sýningargestunum. Verk eftir Kristján Davíðsson frá 1947 sem flokkast sem samtímalist. ber og það sem eftir er að ganga frá þegar við erum á ferðinni. „Hér mun koma eitt hangandi verk eftir Hólm­ fríði Árnadóttur, Friður heitir það, þriggja kílóa verk, rosa fallegt,“ segir Hrafnhildur. „Við leyfum okkur líka að bæta við ýmsum atriðum úr okkar gagnagrunni, svo sem við­ tölum við listamennina og leiðbein­ ingum um upphengingar sem sumir hafa látið fylgja með verkunum.“ Ljóst mósaíkverk eftir Theresu Himmer sýnir bæjarskipulagið í nágrenni safnsins. Hrafnhildur segir þetta í fyrsta skipti sem það fari á vegg. „Listakonunni þótti það mikill heiður að vera milli verka eftir Gerði og í beinu samtali við þau,“ segir Hrafnhildur og Brynja bendir á víraverk eftir Gerði sem hún segir líka fáséð. „Þetta vann hún fyrir kaffihús í París, sem hét Le Benjamin. Við eigum ljósmyndir af því og vissum því nákvæmlega hvernig Gerður vildi að það sneri.“ Á gaflinum er sería eftir Valgerði Briem. „Enginn veit hvaða tækni er notuð við gerð þessara mynda,“ segir Brynja „Valgerður kenndi þó í mörg ár og hefur haft áhrif á marga, Erró hefur kallað hana besta kenn­ arann sinn.“ Athygli vekja litlar myndir lágt á veggjum. „Við erum með nokkra staði á sýningunni sem krakkar geta skoðað á sinn hátt og verðum með teiknileik út frá því,“ útskýrir Hrafnhildur og bendir á verk sem kallast fuglar en þraut er að sjá hversu margir fuglarnir eru. Í suðursalnum á nýlistin stað, meðal annars stórt verk eftir Hrein Friðfinnsson, On a rainy day. Brynja segir miklu máli skipta hvernig það er sett upp, enda hafi fylgt nóta um það. Hrafnkell Sigurðsson sýnir óvenjulegt landslag í borginni og Katrín Sigurðardóttir á innsetningu frá 2005. „Hér á útlínan sjálfstætt líf,“ bendir Hrafnhildur á. „Katrín lærði fyrst teikningu og málun og maður sér tvívíddina verða þrívíða.“ Katrín er ein af þremur lista­ mönnum á sýningunni sem átt hafa verk á Feneyjatvíæringnum. Annar er Kristján Davíðsson. „Hann var fyrstur í abstraktlistinni. Nú setjum við hann í samhengi við samtíma­ listina, þó að þetta sé málað 1947,“ segir Brynja. Næst snúum við okkur að stóru málverki Önnu Hallin. Henni eru kerfi hugstæð, hvort sem þau eru í náttúrunni, inni í veggjum húsa eða í mannlegu samfélagi. Við ljúkum yfirferðinni í and­ dyrinu. Þar máta sýningarstjór­ arnir tvær myndir Rúríar á vegg. „Þessar vann Rúrí í kjölfar Archive – En dangered Waters sem hún gerði fyrir Feneyjatvíæringinn og vísar í fossa í hættu vegna virkjana,“ lýsir Brynja. Hrafnhildur segir opnunar­ athöfn ina í dag verða með heim­ ilislegasta móti. „Edda Mac mynd­ listarkona ætlar að leiða teiknileik fyrir yngstu gestina og við Brynja verðum með leiðsögn og að leiða fólk í spjall með okkur. Reynum að hafa þetta svolítið kósí.“ Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 Fálkagata 18 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 Fálkagata 18 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is Öll rúnstykki á 99 kr. Verðlækkun! 6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R46 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 6 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :1 6 F B 1 0 4 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 C 1 -E 6 8 C 2 2 C 1 -E 5 5 0 2 2 C 1 -E 4 1 4 2 2 C 1 -E 2 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 0 4 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.