Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 91

Fréttablaðið - 06.04.2019, Page 91
Gerðu vel við þig og þína um páskana með ljúffengri ostaköku. Hún er gómsæt með ljúfum piparmyntutónum sem koma þér í hæstu hæðir. Páska ostakaka BÆKUR Kastaníumaðurinn Höfundur: Sören Sveistrup Þýðandi: Ragna Sigurðardóttir Útgefandi: JPV útgáfa Blaðsíður: 558 Sören Sveistrup er einn af hand-ritshöfundum sjónvarpsþátt-anna vinsælu Forbrydelsen sem hafa slegið rækilega í gegn víða um heim. Kastaníumaðurinn er fyrsta skáldsaga hans. Kastaníumaðurinn er formúlubók með söguþræði sem er margkunnug- legur. Enn einu sinni eru konur myrtar á hryllilegan hátt og finnast limlestar. Við líkin finnast brúður gerðar úr kastaníuhnetum. Lögregl- unni gengur verulega illa að rann- saka málin. Ein persóna bókarinnar er kvenráðherra en dóttir hennar hvarf og talið var að hún hefði verið myrt. Ungur maður játaði á sig morð- ið, en var hann raunverulega sekur og er stúlkan hugsanlega enn á lífi? Morð sem framin voru áratugum fyrr virðast tengjast þessum málum en á hvaða hátt er engan veginn ljóst fyrr en langt er liðið á sögu. Óhætt er að segja að þar takist höfundi vel að koma lesendum á óvart. Kastaníumaðurinn ber þess ótví- ræð merki að höfundur hennar hafi starfað sem handritshöfundur því hún er að mörgu leyti skrifuð eins og tíu til tólf þátta sjónvarpssería. Umhverfi er til dæmis lýst mjög nákvæmlega, ef manneskja situr við skrifborð eru ítarlegar lýsingar á því sem er á borðinu og ef sögupersóna fer inn í herbergi er hönnuninni þar gerð góð skil. Öll þessi nákvæmni, sem er stundum fáránlega smá- smuguleg, hægir mjög á fram- vindunni og gerir bókina æði lang- dregna. Hún er hátt í 600 síður og allt of löng. Það skal þó ekki haft af höf- undinum að hann kann að skapa spennu og það eru hrollvekjandi kaflar í bókinni. Meinið er að það er of langt á milli þeirra. Undir lokin er þó viðvarandi spenna m e ð t i l h e y r a n d i of beldi og óvæntri uppljóstrun. Kastaníumaðurinn er engan veginn slæm frumraun en einfaldlega ein þeirra fjölmörgu glæpa- sagna sem hefðu grætt á niðurskurði. Minna er nefnilega oft meira. Við lesturinn fer svo ekki hjá því að sú hugsun kvikni að sagan henti alveg ágætlega í sjónvarpsseríu. Kolbrún Bergþórsdóttir NIÐURSTAÐA: Það eru góðir sprettir í fyrstu glæpasögu Sörens Sveistrup og hún er hrollvekjandi á köflum. Meinið er að hún er alltof löng og spennan dettur of oft niður. Frumraun handritshöfundar Reykjavík bókmenntaborg UNESCO í samvinnu við Félag fagfólks á skólabóka- söfnum hefur útbúið Sleipnispakka fyrir skólabókasöfn til að nýta í kennslu og hvetja grunnskólabörn til lesturs. Ævar Þór Benediktsson hefur skrifað nýja bók um ævintýri Sleipnis, sem heitir Sleipnir og stór- hættulega fjölskyldutréð. Bókina er aðeins hægt að nálgast á skólabóka- söfnum því hún er skrifuð sérstak- lega fyrir söfnin í borginni að beiðni Bókmenntaborgarinnar. Sleipnir lestrarfélagi barnanna er tákn fyrir lestrarhvatningu Bók- menntaborgarinnar og í gegnum það verkefni gefur Bókmennta- borgin öllum skólasöfnum í borg- inni nýju bókina eftir Ævar Þór ásamt fyrstu bókinni um Sleipni, Vetrarævintýri Sleipnis eftir Gerði Kristnýju. Með Sleipni fylgja verkefni fyrir 1.  bekk á vef Bókmenntaborgar- innar og geta starfsmenn á skóla- söfnum prentað út verkefni fyrir sína nemendur eftir þörfum. Síðan fá bókasöfnin bókamerki sem ætluð eru sem lestrarhvatning fyrir nem- endur í 2. bekk og upp úr. Bókamerkið er hvatning til að lesa og telja þann fjölda bóka sem lesinn er. Eftir hverja lesna bók er merkt við á bókamerkið og eftir sex bækur getur nemandinn valið sér mynd af einni af persónunum úr bókinni hans Ævars. Teikningar af Sleipni í báðum bókunum eru eftir Gunnar Karlsson. Á vef Bókmenntaborgarinnar eru síðan tvær myndstiklur til að styðja við ævintýri Sleipnis í grunnskólan- um. Sleipnir á skólabókasafninu er stikla til að sýna nýjum meðlimum á bókasafninu, en þar fer Sleipnir yfir það hvað er hægt að gera á söfn- unum. Hann hvetur börnin til að nýta og njóta þess að vera á safninu og skilaboð hans til barnanna eru: „Komdu með á hugarflug,“ sem er bein tilvísun í f lug Sleipnis á milli heima. Seinni stiklan er lestrar- hvatning frá Ævari Þór, sem skrifar nýjasta ævintýri Sleipnis. Ævar segir aðeins frá bókinni og þeirri sérstöðu hennar að bókina er aðeins hægt að fá að láni í skólasafninu. Efnið er unnið í samstarfi við Fag- fólk á skólabókasöfnum Efnið er gjöf til skólabókasafna í Reykjavík og er nú dreift í fyrsta sinn. Fyrir skólabókasöfn á lands- byggðinni verður hægt að kaupa pakkann hjá Bókmenntaborginni. – kb Ævar Þór Benediktsson hefur skrifað bók um ævintýri Sleipnis. Sleipnir á vit nýrra ævintýra M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 47L A U G A R D A G U R 6 . A P R Í L 2 0 1 9 0 6 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :1 6 F B 1 0 4 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C 1 -F 5 5 C 2 2 C 1 -F 4 2 0 2 2 C 1 -F 2 E 4 2 2 C 1 -F 1 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 0 4 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.