Fréttablaðið - 06.04.2019, Blaðsíða 100
Lífið í
vikunni
31.03.19-
06.04.19
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Þetta er ofboðslegt áfall. Á sekúndubroti breytist allt hjá ungum manni í blóma lífsins,“ segir Þórunn Eva sem stendur fyrir styrktartónleik
unum. Þau Einar Óli eru systrabörn
og hafa alltaf verið mjög náin. „Fjöl
skyldan er búin að reyna ýmislegt
og við erum öll mjög náin og getum
alltaf leitað hvert til annars.
Hann er bundinn við hjólastól
og getur hvorki hreyft sig né tjáð sig
og býr enn á Grensás þar sem engin
íbúðarúrræði ertu fyrir hann eins
og staðan er í dag,“ segir Þórunn Eva
og bætir við að það sé átakanlegt að
horfa upp á yndislegan frænda og
vin geta sér litla sem enga björg veitt.
„Ég veit ekki alveg hversu miklu
hann áttar sig á og hversu mikið
hann skilur en maður verður að
treysta því og trúa að hann skilji
meira heldur en minna.“ Þórunn
Eva segir erfitt fyrir fullfrískt fólk að
setja sig í spor frænda síns.
„Hann var alltaf á ferðinni, eins og
okkur finnst svo sjálfsagt. Í ræktinni
og alltaf á leiðinni að gera eitthvað
en síðan er hann bara allt í einu
fastur inni á herbergi einhvers staðar
og fær aldrei að gera neitt af því sem
hann er vanur.“
Safnað fyrir ferðafrelsi
Þórunn Eva ákvað að halda styrktar
tónleikana í von um að geta fjár
magnað kaup á sérútbúnum bíl sem
muni gera Einar Óla frjálsari ferða
sinna. „Því fylgir svo mikið frelsi
að geta komist eitthvert á daginn
án þess að þurfa alltaf að plana allt
fyrir fram og treysta alfarið á ferða
þjónustuna.
Manni finnst þetta bara einhvern
veginn svo sjálfsagt, að geta farið út
í bíl og gert það sem mann langar, að
maður pælir ekki einu sinni í þessu
þegar maður er heilbrigður.“
Fjölskylda Einars Óla hefur fundið
notaða Benzbifreið sem hentar
honum og með hjálp tónlistarfólks
ins, sem gefur alla vinnu sína á tón
leikunum, vonast þau til þess að geta
keypt bílinn.
„Mér finnst svo mikilvægt að
hann fái þennan bíl vegna þess að
þegar hann er fastur inni á Grens
ás og líka ef hann yrði settur inn á
öldrunarheimili þá ætti hann ekki
rétt á bílastyrk fatlaðra. Það skiptir
öllu máli að vera frjáls ferða sinna.“
Erfitt að biðja um hjálp
Eftir að Þórunn Eva og faðir hennar
höfðu fundið bílinn sem hentar fóru
þau að velta fyrir sér fjármögnunar
leiðum og ákváðu að kanna mögu
leikana á styrktartónleikum.
„Ég hringdi í frænku mína,
mömmu Einars, og spurði hana
hvort hún hefði einhvern áhuga á
því að við myndum reyna að halda
styrktartónleika. Hún sagði að undir
venjulegum kringumstæðum hefði
hún síður kosið að þurfa að efna til
fjársöfnunar en við værum bara
komin á þann stað að við þyrftum
aðstoð.“ Þórunn Eva segir móður
Einars Óla finnast erfitt að þurfa að
biðja um hjálp en þar sem hún hafi
sjálf verið byrjuð að svipast um eftir
bíl fyrir hann hafi orðið úr að blása
til tónleika.
Hún segir alla sem að tónleik
unum koma gefa vinnu sína og fjöl
skyldan sé full þakklætis. „Það eru
allir rosalega jákvæðir og nú síðast
bættust tónlistarhjónin Heiða Ólafs
og Snorri Snorrason í hópinn. Þau
höfðu samband við pabba hans
Einars Óla og buðu fram krafta sína.
Siggi Guðfinns, pabbi hans, er líka
tónlistarmaður, og hann mun flytja
lagið sem hann samdi um Einar Óla
tónleikunum.“
thorarinn@frettabladid.is
Sungið fyrir
ferðafrelsi Einars Óla
„Við hvetjum fólk til að koma og njóta kvöldsins með okkur og styrkja
virkilega gott málefni í leiðinni,“ segir Þórunn Eva, frænka Einars Óla.
Einar Óli er lamaður
eftir alvarlega heila-
blæðingu. Ættingjar
hans og vinir halda
styrktartónleika á
mánudagskvöld.
Markmiðið er sér-
útbúinn bíll sem
mun gera hann
frjálsari ferða sinna.
Styrktartónleikar
Guðríðarkirkja 8. apríl
Fram koma:
lÍvar Daníels
lEiríkur Hafdal
lRakel Pálsdóttir
lBjarni Ara
lÞórir Úlfars
lBjarmi Hreinsson
lHlöðver Sigurðsson
lÖrn Ýmir Arason
lÖrn Arnarson
lSveinbjörn Hafsteinsson
lElín Ey
lHalli Reynis
lHeiða Ólafs
lSnorri Snorrason
lSiggi Guðfinns
Sími: 558 1100
Verð 269.990 kr.
... fyrir lifandi heimili
SCOTT
Hornsófi úr sterku bonded leðri (leðurblöndu).
Innra byrði púðanna er úr kaldpressuðum (mjög
endingar góðum) svampi, trefjafyllingu og loks mjúku
yfirlagi. Fæturnir eru sterkir úr svörtu járni.
Fæst með hægra eða vinstra horni (ekki færanlegt).
Stærð: 293 x 217 x 85 cm
www.husgagnahollin.is
V
E F
V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
10 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
10 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður Skeiði 1
Sónar þagna vegna WOW
Hætt hefur verið við að halda
tónlistarhátíðina Sónar Reykjavík
síðar í apríl vegna falls flugfélags-
ins WOW air en félagið átti að ferja
stóran hluta hátíðargesta og lista-
manna til landsins.
Skildi 40 kíló eftir á Spáni
Sigurjón Magnús Egilsson, ritstjóri
Miðjunnar, hefur lést um tæp
40 kíló eftir vetrardvöl á Spáni.
SME, eins og hann er oft kallaður,
er mættur á klakann og margir
ráku upp stór
augu þegar
hann ræddi
kjaramál á
sjónvarps-
stöðinni
Hring-
braut,
40 kílóum
léttari.
WOW-fólk selur föt
Fyrrverandi flugfreyjur og annað
starfsfólk WOW air hefur brugðist
við atvinnumissi með því að aug-
lýsa fatamarkað í Holtagörðum
eftir slétta viku. Þar verða til sölu
föt af öllum stærðum og gerðum
og ýmsar heimilisvörur.
Vinsælir lúðar
Stínu kokki á Flúðum finnst stór-
merkilegt að Craig Reid, annar
Proclaimers-tvíburinn, muni enn
eftir því þegar hún vatt sér að
honum í London 1988 til þess að
segja honum að lagið I’m gonna be
(500 miles) væri á toppi vinsælda-
lista Rásar 2. „Þeir voru náttúrlega
algerlega svo
lúðalegir,“
segir Stína
sem kemst
alltaf í stuð
þegar hún
heyrir lög
Skotanna
skemmtilegu.
6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R56 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
6
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:1
6
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
2
-0
9
1
C
2
2
C
2
-0
7
E
0
2
2
C
2
-0
6
A
4
2
2
C
2
-0
5
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
5
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K