Ásrún : fylgiblað Fylkis - 30.11.1921, Síða 10
10
néytið 2—3 kr. á hverja tunnu kalks, n.l. 24 hesta á 1 smá-
lest skelja, þá ætti tunnan af kalki að fást fyrir 14 — 16 krónur.
Eg geri ráð fyrir að úr einni smálest af skeljum fáist hálf
smálest af brendu kalki eða því sem næst og að ein smálest
af sverði nægi til að brenna eina smálest af kalki. En auðvitað
er það alt ágizkun. Nákvæmari lýsing á ofnunum verður
gefin síðar, ef kringumstæður leyfa.
Pað er ekki kostnaðar spursmálið svo mjög, sem stendur í
veginum fyrir því að alvarleg tilraun sé gerð ofurlítið meir en
hingað til, til þess að brenna kalk, t. d. úr kalksteininum við
Djúpafjörð eða úr skeljunum á Langanesi eða á Vestfjörðum,
sem mætti auðveldlega safna í stóra hauga og brenna, ekki
að tala um skeljar jfeer, sem veiðast á hverju ári alt í kring-
um landið, en sem ekki er haldið til haga. Og það er ekki
heldur áhugaleysi og samtakaleysi sjávarbænda mest að kenna.
Pað er þekkingarleysi og alger skortur á verkvönum mönnum,
sem kunni að brenna kalk úr vanalegum kalksteini hvað þá
úr skeljum, sem stendur mest í vegi. Að brenna kalk úr
skeljum held eg talsvert örðugra af þeim litlu tilraunum, sem
eg hef gert, en að brenna það úr kalksteini.
Einfalt ráð til að bæta úr þessu væri og er það, að útvega
lærðan og vanan kalkbrenslu mann, t. d. frá Hollandi eða
norðurströnd Pýzkalands, þar sem skeljakalk brensla hefur fyr
tíðkast, og láta hann standa fyrir brenslunni hér. Það er ekki
efnilegt, að enginn íslands »lærðu«, skólagengnu manna kann
að brenna kalk, ekki torveldari list en það þó er; og engu
efnilegra er það, að enginn ísiands mörgu »mentastofnana«,
skuli hafa verkstofur eða neina verulega kenslu í því, að vinna
úr jörðu, skeljum eða sjávarleðju, þetta Mnauðsynlega bygg-
ingarefni, sem fólk hér á landi þarfnast svo afar tilfinnanlega.
Vonandi er, að af því fé, sem árlega er veitt til vísinda og
„lista“ og verklégra fyrirtækja, verði einhverjum hluta varið til
þess að koma verulegri og nýtilegri steinarannsókna-stofu upp,
ei aðeins Sunnanlands heldur einnig hér Norðanlands, og að
kalkbrensluofnar í sambandi við þær og þar sem þær eru,