Ásrún : fylgiblað Fylkis - 30.11.1921, Qupperneq 17
Island í stríði
II. þáttur.
Vertu okkur forna frón,
faldið jökli ár og síð,
x hin sama undursjón
eins og fyrst á landnámstíð.
B. G.
Bú er betra, þó bæli sé,
halr er heima hver;
þó tvær geitr eigi ok taug-reftan sal,
þat er þó betra en bæn.
Hávamál Eddu.
Sérhvert land geymir í skauti sínu
allt, sem þjóð þess þarfnast sér til
lífs viðurhalds, ef hún kann að nota
það.
G. Á. frá Skógum á Þelamörk.
Orð listaskáldsins B. G. vekja hjá mér hugboð æskunnar. Eddu spakmælin
sýna skap og hugrekki þeirra, sem bygðu fsland fyrir 1000 árum síðan;
og orð G. Á., töluð fyrir 50 árum, sýna að trú og traust á algóðri for-
sjón, lifir enn upp til dala og með fram ströndum íslands. Ættjarðarástin,
hugrekkið og traustið, eru öflin, sem ásamt dugnaðinum eiga að spinna
örlagaþráðinn, sem þjóðin sjálf verður að vefa sér klæði úr, ef hún viil
vera farsæl og frjáls og gjöra ísland að ljóssins borg, eins og fornskáldin
ímynduðu sér, að það gæti orðið, gera það jarðneskan Ásgarð. Að það sé
mögulegt, var hugboð mitt fyrir 50 árum siðan, og um 40 ár hef eg treyst því,
að áður en margar aidir líða, verði þetta svo nefnda fs-Iand, bústaður
tveggja til þriggja miljóna dugandi frjálsra, hugaðra og göfugra manna,
máske 4—5 millióna, sem eiga talsverðan þátt í framförum og fram-
kvæmdum frændþjóða sinna austan hafs og vestan. Trú þessa byggi eg á
því, að fsland er eitt af prkuríkustu löndum í heimi, að það liggur undir
baug rafsegulstrauma norðurskautsins, að það á svo mikið undirlendi sem
rækta má, að það getur framfært þrítugfalt til fimtugfalt, ef ekki hundrað-
falt, fieira fólk en lifir á Iandoúnaðinum nú; nl. 2 til 3 milliónir manna,
að með vaxandi þekkingu og sannri menningu, lærist alþýðu að gera
jökul-ár landsins og öll straumhörð vatnsföll að þjóðféiagsins lífæðum,
2