Ásrún : fylgiblað Fylkis - 30.11.1921, Page 20
20
Landbúnaðurinn.
m Bóndi er bústólpi,
bú er iindstólpi,
4
Arðvænlegasti, vissasti og farsselasti atvinnuvegur þessa lands, hefir verið
og er enn landbúnaðurinn. Af honum Iifir meir en helmingur allra lands-
búa, og að honum mun a'dur fjöldi fólks snúa sér þegar sjávar útvegur-
inn bregst og viðskifti við útlönd versna.
Ástand Iandbúnaðarins má þekkja nokkuð af skýrslum þeim, sem hagstof-
an géfur út og sem ná ti! ársins 1919. En án þess að rannsaka þeirra
dýrmætu upplýsingar getur hver gætinn maður séð, að landbúnaðurinn
hefur beðið ómetanlegt tjón á síðustu áruni, vegna sívaxandi fólkseklu,
sem stafar af aðsókn vinnufólks til kaupstaðanna, í von um léttari vinnu,
hærra kaup, meira sjálfræði og meira »mentandi« samféíag á vetrum. Einnig
vita gamlir menn að sveitabúskapnum hefur að sumu leyti hnignað á síð-
ustu 50 árum: Korn-millurnar, smiðjurnar og vefstólarnir eru næstum
horfnir úr sveitunum, en krít eða sagi blandað mjöl, útlendir ljáir og út-
lent lín og stáss er komið i staðin, ásamt rottum, lampaspritti og alskon-
ar sóttkvéikjum.
Vegna smala eklu og mjalta-stúiku leysis, geta bændur óví^a fært ám
frá, og við það eitt tapar þjóðfélagið alt að 10 million poítum mjólkur
og 1 million pundum smjörs á hverju ári, eða sem svarar matarforða
handa 20 þúsund manns árlangt. Um það hugsar ekki unga fólkið, sem
flykkist til kaupstaðanna í von um síldar vinnu og 2000 krónur fyrir 2—3
rnánuði, og útgerðar mennirnir gera sér litla samvizku út af því, þó lítið
verði um innlendan mjólkur mat, ef þeir aðeins geta fengið niðursoðna
mjölk, margarín og nóg af kaffi og sykri, handa hásetum og vinnufólki
sínu. En þrátt fyrir aðsóknina til kaupstaðanná og vinnufóíksekluna til
svcita hafa bændur ekki setið alveg aðgérða lausir. Af hagskýrslunum
yfir árin 1915 ti! 1919 má sjá, að á þeim árum hafa sveitabændur sléttað
og búið undir ræktun, 418 ha=rúmlega 1400 v. dagsláttur laiids og grætt
út auk þess um 300 ha- túmlega 900 v. dagsláttur túna„ hlaðið girðing-
ar 56 km. langar úr steini, 65 km. langar út torfi, grafið varnarskurði 76
km. á lengd og gert vír-girðingar yfir 700 km. á lengd. Árið 1919 voru
bygðir flóð-garðar 64 km. á lengd, 48000 ten.m. að rúmmáli, stíflugarðar
6 km. á lengd og 12 þús. ten.m. að rúmmáli. AIls hafa verið byggðir á
árunum 1915 tii 1919: flóðgarðar 182 km. álengd og 150 þús. ten.m. að
rúmmáli. Kálgarðar slækkaðir um 280 vallar dagsláttur.
Vatnsveitu skurðir 0.7 til lVs ra, á dýpt hafa verið gerðir á þessum ár-