Ásrún : fylgiblað Fylkis - 30.11.1921, Síða 20

Ásrún : fylgiblað Fylkis - 30.11.1921, Síða 20
20 Landbúnaðurinn. m Bóndi er bústólpi, bú er iindstólpi, 4 Arðvænlegasti, vissasti og farsselasti atvinnuvegur þessa lands, hefir verið og er enn landbúnaðurinn. Af honum Iifir meir en helmingur allra lands- búa, og að honum mun a'dur fjöldi fólks snúa sér þegar sjávar útvegur- inn bregst og viðskifti við útlönd versna. Ástand Iandbúnaðarins má þekkja nokkuð af skýrslum þeim, sem hagstof- an géfur út og sem ná ti! ársins 1919. En án þess að rannsaka þeirra dýrmætu upplýsingar getur hver gætinn maður séð, að landbúnaðurinn hefur beðið ómetanlegt tjón á síðustu áruni, vegna sívaxandi fólkseklu, sem stafar af aðsókn vinnufólks til kaupstaðanna, í von um léttari vinnu, hærra kaup, meira sjálfræði og meira »mentandi« samféíag á vetrum. Einnig vita gamlir menn að sveitabúskapnum hefur að sumu leyti hnignað á síð- ustu 50 árum: Korn-millurnar, smiðjurnar og vefstólarnir eru næstum horfnir úr sveitunum, en krít eða sagi blandað mjöl, útlendir ljáir og út- lent lín og stáss er komið i staðin, ásamt rottum, lampaspritti og alskon- ar sóttkvéikjum. Vegna smala eklu og mjalta-stúiku leysis, geta bændur óví^a fært ám frá, og við það eitt tapar þjóðfélagið alt að 10 million poítum mjólkur og 1 million pundum smjörs á hverju ári, eða sem svarar matarforða handa 20 þúsund manns árlangt. Um það hugsar ekki unga fólkið, sem flykkist til kaupstaðanna í von um síldar vinnu og 2000 krónur fyrir 2—3 rnánuði, og útgerðar mennirnir gera sér litla samvizku út af því, þó lítið verði um innlendan mjólkur mat, ef þeir aðeins geta fengið niðursoðna mjölk, margarín og nóg af kaffi og sykri, handa hásetum og vinnufólki sínu. En þrátt fyrir aðsóknina til kaupstaðanná og vinnufóíksekluna til svcita hafa bændur ekki setið alveg aðgérða lausir. Af hagskýrslunum yfir árin 1915 ti! 1919 má sjá, að á þeim árum hafa sveitabændur sléttað og búið undir ræktun, 418 ha=rúmlega 1400 v. dagsláttur laiids og grætt út auk þess um 300 ha- túmlega 900 v. dagsláttur túna„ hlaðið girðing- ar 56 km. langar úr steini, 65 km. langar út torfi, grafið varnarskurði 76 km. á lengd og gert vír-girðingar yfir 700 km. á lengd. Árið 1919 voru bygðir flóð-garðar 64 km. á lengd, 48000 ten.m. að rúmmáli, stíflugarðar 6 km. á lengd og 12 þús. ten.m. að rúmmáli. AIls hafa verið byggðir á árunum 1915 tii 1919: flóðgarðar 182 km. álengd og 150 þús. ten.m. að rúmmáli. Kálgarðar slækkaðir um 280 vallar dagsláttur. Vatnsveitu skurðir 0.7 til lVs ra, á dýpt hafa verið gerðir á þessum ár-

x

Ásrún : fylgiblað Fylkis

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásrún : fylgiblað Fylkis
https://timarit.is/publication/1321

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.