Fréttablaðið - 18.04.2019, Síða 28
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall
ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Jóns Ólafs Bjarnasonar
fyrrverandi fjármálastjóra,
sem lést 14. mars síðastliðinn á Hrafnistu
Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki Báruhrauns fyrir umönnun og hlýhug.
Þorgerður María Gísladóttir
Sigríður Jónsdóttir
Bentína Jónsdóttir Halldór Ármannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigurjóna Haraldsdóttir
Dalseli 31, Reykjavík,
lést á Landspítalanum þann 11. apríl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu. Við þökkum
innilega auðsýnda samúð og hlýhug.
Örn Wilhelm Zebitz
Haraldur Örn Arnarson Björg Stígsdóttir
Hallborg Arnardóttir Tryggvi Leósson
ömmubörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur hluttekningu við andlát og útför
okkar ástkæru eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Karenar Júlíu Magnúsdóttur
(Diddu)
Sérstakar þakkir færum við
starfsfólkinu á Heiðmörk og Snæfelli á hjúkrunarheimilinu
Ísafold fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll.
Víðir Finnbogason
Anna Jóna Víðisdóttir
Stella K. Víðisdóttir
Berglind Víðisdóttir Knútur Þórhallsson
Harpa Víðisdóttir Oddur Ingason
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför systur okkar,
mágkonu og frænku,
Elínar Eyglóar
Steinþórsdóttur
sem lést miðvikudaginn 13. mars.
Sveinbjörg Steinþórsdóttir
Eiríkur Steinþórsson
Steindór Steinþórsson Anna Marie Georgsdóttir
systkinabörn og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Jóna Sigríður Kristjánsdóttir
andaðist að Sólvangi í Hafnarfirði þann
11. apríl. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar
þakkir fær starfsfólk 3ju hæðar
Sólvangs fyrir góða umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kári Birgir Sigurðsson
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Jens Kristjánsson
frá Tröð í Önundarfirði,
til heimilis að Raftahlíð 23
á Sauðárkróki,
lést föstudaginn 12. apríl á
Heilbrigðisstofnun Norðurlands,
Sauðárkróki. Útför hans fer fram frá Sauðárkrókskirkju
þriðjudaginn 30. apríl kl. 14.
Sigríður Jensdóttir
Guðmundur Jensson Sigríður Stefánsdóttir
Erlingur Jensson Ingibjörg Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda
samúð, hlýhug og vináttu við andlát
og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
Ingibergs J. Hannessonar
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir
einstaka umönnun, alúð og umhyggju.
Helga Steinarsdóttir
Birkir Ingibergsson Sigurveig Þóra Guðjónsdóttir
Þorsteinn H. Ingibergsson Marelie Nacilla Rubio
Bragi J. Ingibergsson Stefanía Ólafsdóttir
Sólrún H. Ingibergsdóttir Pétur Fannar Hjaltason
barnabörn og barnabarnabörn.
540 3320 • gardheimar.is
blomabud@gardheimar.is
Leyfðu okkur
að aðstoða þig!
540 3320 • gardheimar.is
blomabud@gardheimar.is
Leyfðu okkur
að aðstoða þig!
Þetta er í fimmta skipti sem við komum vestur að spila, Egill Ólafsson og Benedikt Helgi Benediktsson í hljómsveitinni Rassar sem við stofnuðum á
Núpi árið 1969,“ segir Rúnar Þór Péturs-
son tónlistarmaður, staddur í sínum
gamla heimabæ, Ísafirði, þegar ég hringi
í hann.
Hann segir sömu hljóðfæraskipan
hjá Rössum þá og nú. „Ég spila á gítar og
bassa og Egill líka. Gerum það til skiptis
eins og í gamla daga. Þá var náttúrlega
ekkert internet og ekki einu sinni plötu-
spilari í skólanum, þannig að Egill spil-
aði allt á gítarinn sem hann kunni og þá
spilaði ég á bassann, svo þegar hann var
búinn með sín lög spilaði ég á gítarinn
og hann tók við bassanum. Þurftum lítið
að æfa, bara spila eftir minni. Benedikt
var trommuleikari og er enn. Hljóm-
sveitin Cream, með Ginger Baker, Jack
Bruce og Eric Clapton, var voða vinsæl
þessum tíma og við gerðum mikið af því
að stæla hana.“
Áttuð þið hljóðfærin sjálfir?
„Við fengum lánaðan bassa frá ein-
hverjum Súgfirðingi en Benni bjó á
Núpi og var þar með sitt hafurtask, þar
á meðal trommur.“
Rúnar Þór segir þá Egil bara hafa verið
á Núpi þennan eina vetur. Báðir héldu
áfram í tónlist eins og alþjóð veit.
En hvað um Benedikt?
„Hann fór í lögguna og er nýhættur
sem rannsóknarlögreglumaður. Hefur
held ég bara trommað með okkur. En
það sem er svo merkilegt er hvað vin-
áttan verður mikil á þessu aldri. Menn
fara svo nálægt hverjir öðrum, því verða
tengslin svo sterk.“
Rassar spiluðu í Húsinu á Ísafirði í
gærkveldi en í kvöld eru þeir á Þingeyri.
Spurður hvort sveitin gangi að sínum
aðdáendum vísum fyrir vestan svarar
Rúnar Þór: „Þetta er mest fyrir okkur
gert. Við höfum gaman af að ferðast
saman, spila saman og kjafta saman.
Stoppum á leiðinni á bæ sem ég var í
sveit á, á Reykjanesinu.“
Er sama fólk þar enn þá?
„Nei, en nýtt blóð skiptir engu máli
og bærinn er eins. Ég held tryggð við
staðinn, var þrjú sumur þar, tíu, ellefu og
tólf ára, og leið vel en þurfti að hætta út
af hljómsveitabrölti.“ gun@frettabladid.is
Er mest fyrir okkur gert
Skólahljómsveitin Rassar sem stofnuð var á Núpi í Dýrafirði 1969 er komin vestur á
firði og fagnar þar hálfrar aldar afmæli með því að spila, sér og öðrum til gamans.
Gömlu skólabræðurnir Egill, Benedikt Helgi og Rúnar Þór njóta þess að ferðast saman, spjalla saman og spila saman.
Fimmtán ára á Núpi, þar sem Rassar
spiluðu mánaðarlega á dansæfingum.
1872 Mikið tjón verður á Húsavík vegna jarðskjálfta og á
annað hundrað manns verða húsnæðislaus.
1903 Húsið Glasgow í Reykjavík, stærsta hús á Íslandi,
brennur til kaldra kola. Mannbjörg verður.
1944 Hermann Jónasson tekur við af Jónasi Jónssyni frá
Hriflu sem formaður Framsóknarflokksins.
1954 Gamal Abdel Nasser kemst til valda í Egyptalandi.
1980 Ródesía fær sjálfstæði frá Bretlandi og breytir nafni
sínu í Simbabve.
2007 Mikill bruni verður
á horni Austurstrætis og
Lækjargötu.
2007 Tjón verður þegar allt
að 80°C heitt vatn rennur
niður Vitastíg og í átt að
Snorrabraut um Laugaveg.
Merkisatburðir
1 8 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
8
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
D
6
-5
5
D
4
2
2
D
6
-5
4
9
8
2
2
D
6
-5
3
5
C
2
2
D
6
-5
2
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
7
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K