Félagabréfið - 11.09.1971, Blaðsíða 8

Félagabréfið - 11.09.1971, Blaðsíða 8
II Svör við átta spurningum úr "Bréfi til róttækra Islendinga heima og erlendis". (Okkur er að sjálfsögðu ljóst, að svör okkar við þeim átta spurning- um, sem Gautaborgarhópurinn m-1 setti fram í "róttæka bréfinu", eru ekki nein endanleg svör við þessum spurningum - og að þau gera ekki annað en endurspegla ástand okkar á þessu stigi námsins. Okkur væri það mikil stoð, að Gautaborgarhópurinn m-1 tæki þau til vandlegrar yfirferðar og gagnrýni, sem hann setti síðan fram í sínu næsta fél- agabréfi. Sömuleiðis, að hinir námshóparnir gerðu sínar athugasemdir við þau.) Sp. 1. Hvað eiga Marx og Engels við með eftirfarandi: "Saga mannfél- agsins hefur fram að þessu verið saga um stéttabaráttu"? Sp. 2. Hvað er átt við með borgarastétt annars vegar en öreigastétt hins vegar? a) Framleiðsla. Til þess að geta gert okkur grein fyrir stéttum og stéttaskiptingu byrjum við á að athuga grunn þjóðfélagsbyggingarinnar; framleiðsluna. Framleiðslan er undirstaðan að lífi sérhvers mannlegs samfélags, for- sendan fyrir viðhaldi mannskepnunnar; "maðurinn verður umfram allt að borða, drekka, eiga þalc yfir höfuðið og föt að klæðast í - þ.e.a.s. vinna, áður en hann deilir um völd, fæst við stjórnmál, heimspeki o.s.frv, ..." (Engels: "Karl Marx", Úrvalsrit I, bls. 14). "Slíkir sem framleiðsluhættir þjóðfélagsins eru, þannig er og í aðal- atriðum þjóðfélagið sjálft, hugmyndir þess og kenningar, pólitískar skoðanir og stofnanir. Eða ónákvæmar að orði komizt: Slíkir sem lífs- hættir manna eru, þannig er og hugsunarháttur þeirra. - (Marx: 'Það er ekki meðvitund mannanna, sem ákveður tilveru þeirra, heldur er meðvitundin ákveðin af hinni þjóðfélagslegu tilveru.') (Innskotstil- vitnun okkar). - Þetta þýðir, að þróunarsaga þjóðfélagsins er fyrst og fremst þróunarsaga framleiðslunnar, saga framleiðsluháttanna, sem taka við hverir af öðrum, eftir því sem aldir líða, það er þróimar- saga framleiðsluafla og mannlegra framleiðsluafstæðna." (bls. 209). b) Framleiðsluöf1 - framleiðsluafstæður. Við skulum nú gaumgæfa, hvað átt er við með orðunum framleiðsluöf1 og framleiðsluafstæður. "Framleiðslutól til þess að búa til hin efnahagslegu gæði, menn, sem beita þessum framleiðslutólum, ákveðin reynsla og leikni, að því er framleiðsluna snertir, - allt eru þetta þættir þess, sem einu nafni nefnast framleiðsluöfI þjóðfélagsins. En framleiðsluöflin eru aðeins önnur hlið framleiðslunnar og fram- leiðsluháttanna, sú hliðin, er sýnir afstöðu mannanna til þeirra hluta og náttúruafla, sem beitt er til framleiðslu hinna efnahags- legu gæða. Hin hlið framleiðslunnar og framleiðsluháttanna er sú, sem sýnir gagnkvæma afstöðu manna sín á milli í framleiðslustarfinu, það er að segja, framleiðsluafstæður manna. Þegar mennirnir heyja baráttu sína við náttúruöflin og hagnýta þau til framleiðslu efnahags- - 6 -

x

Félagabréfið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagabréfið
https://timarit.is/publication/1332

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.