Félagabréfið - 11.09.1971, Blaðsíða 18
sem hafa gert inrrás í landið, mun verða alþýðu annarra landa hjálp
og styrkur. Þannig er föðurlandsást í þjóðfrelsisstríðinu alþjóða-
hyggja í framkvæmd." (Maó Tsetung, Ritgerðir III, bls. 190-191).
Af ofanrituðum dæmum má sjá samhengið milli hinnar þjóðlegu baráttu
og lokaorða Kommúnistaávarpsins: "ÖREIGAR ALLRA LANDA SAMEINIZT'."
"Verkalýður allra landa sameinizt. Verkalýður alls heimsins, standið
með kúgaðri alþýðu og kúguðum þjóðum. Berjist gegn heimsvaldastefnu
og afturhaldi í öllum löndum.
Beitið öllum kröftum í baráttunni fyrir heimsfriði, þjóðfrelsi,
alþýðulýðræði og sósíalisma. Styrkið og stækkið sósíalíska heims-
hlutann.
Færið alheimsbyltingu ö.reiganna skref fyrir skref í átt til algjörs
sigurs.
BYGGJUM NYJAN HEIM, ÁN HEIMSVALDASTEFNU 0G AUÐVALDS, ÞAR SEM ENGIN
MANNESKJA ARÐRÆNIR AÐRA". (Leturbreyting okkar)
(Ur bréfi miðstjórnar Kommúnistaflokks Kína til miðstjórnar Kommún-
istaflokks Ráðstjórnarríkjanna, 30. marz, 1963, bls. 5-6 í sænskri
þýðingu KFML).
Islenzk öreigastétt stendur frammi fyrir því verkefni að gera
íslenzkri borgarastétt skil.
Sp. 8. Hvaða þýðingu hefur Kommúnistaávarpið fyrir íslenzka verka-
lýðsstétt í dag og hvernig má það verða henni að gagni?
Til að gera sér grein fyrir hvaða þýðingu Kommúnistaávarpið hefur
fyrir íslenzka verkalýðsstétt í dag og hvernig það má verða henni
bezt að gagni, kemst maður ekki hjá að nefna meginhugsun þess með
tilliti til íslenzkra aðstæðna.
I formála að þýzku útgáfunni 1883 ræðir F. Engels hina gegnumgangandi
grundvallarhugsun kommúnistaávarpsins: "að hin efnalega framleiðsla
og félagslega stéttaskipting, sem af henni hlýtur að spretta á sér-
hverju þróunarskeiði sögunnar, er grundvöllur pólitískrar og and-
legrar sögu þess . Síðan hina fornu jarðasameign leið, hefur því öll
saga verið sagan um stéttabaráttu, baráttu arðræningja og arðrændra,
drottnandi og ánauðugra stétta á hinum ýmsu skeiðum félagslegrar
þróunar. En þessi barátta er nú komin á það stig, að hin arðrænda og
kúgaða stétt (öreigalýðurinn) getur ekki leyst sig úr ánauð þeirrar
stettar, er arðrænir hana og undirokar (borgarastéttarinnar), án þess
að bjarga öllu þjóðfélaginu að fullu úr ánauð arðráns, undirokunar ög
stéttabaráttu." (Undirstrikim okkar) (Urvalsrit I, bls. 23)•
Undirstrikuðu orðin eiga við um ástandið á Islandi í dag.
Það, að íslenzkir öreigar yrðu sér meðvitaðir um sögulegt hlutverk
sitt - að kollvarpa auðvaldsskipulaginu á íslandi með sósíalískri
byltingu og reisa alræði öreiganna, koma á sósíalismanum - og þannig
binda endi á pólitískt og efnahagslegt alræði auðvaldsins -, hefði
úrslitaþýðingu fyrir skipulagningu þeirra á grundvelli stéttabarátt-
unnar - stétt gegn stétt. Verkalýðsstétt gegn borgarastétt.
16