Félagabréfið - 11.09.1971, Side 19
I dag hefur því Kommúnistaávarpið beina þýðingu fyrir islenzka verka-
lýðsstétt: hinir meðvituðustu einstaklingar hennar myndu gera sér
grein fyrir mikilvægasta hlutverki byltingarhreyfingar á Islandi í
dag: að nema hinn vísindalega sósíalisma til að leggja grundvöll að
stofnun marxískrar-lenínískrar hreyfingar sem lið í baráttu öreiganna
fyrir alræði öreiganna - hinu sósíalíska þjóðskipulagi.
Engin dæmi eru til í sögunni um það, að hin ráðandi stétt hafi af
frjálsum vilja yfirgefið eignarrétt sinn á framleiðslutækjunum.
Hún kemur til með að beita öllum ráðum og með öllum aðferðum að reyna
að^hefta hina nauðsynlegu sögulegu þróun. Á Islandi er verkalýðs-
stéttin hin eina byltingarsinnaða stétt. Til þess að hún geti fram-
kvæmt hina sósíalísku byltingu verður hún að vakna til meðvitundar
um nauðsyn og óhjákvæmileika byltingarinnar, skipuleggja sig á grund-
velli stéttabaráttunnar og mola auðvaldsstéttina og ríki hennar.
Til þess að þetta verði framkvæmanlegt er óhjákvæmilegt, að íslenzk
verkalýðsstétt myndi kommúnískan flokk, er á hefur að skipa dugmestu
og sterkustu leiðtogum hennar - byltingarflokk, sem yrði þess megn-
ugur að leiða öreigastéttina til endanlegs sigurs yfir auðvaldsstétt-
inni.
"Ef bylting á að verða, þá verður að vera til byltingarflokkur.
Án byltingarflokks, án flokks, sem starfar á grundveili byltingar-
kenningar Marx og Leníns og hefur marxiskan-leninískan (marx-lenin-
'skan i isl. þýð.) starfsstil, er ekki unnt að hafa ieiðsögn á hendi
fyrir verkalýðsstéttina og almúgann meðal þjóðarinnar i þeirri bar-
áttu, sem leiðir til ósigurs heimsvaldastefnunnar og sporhunda
hennar." (Máó Tsetung, Ritgerðir III, bls. 250).
Það er þvi mikilvægt, að allir þeir, er hafið hafa nám i hinum vis-
indalega sósialisma - marxismanum-leninismanum-hugsun Maós Tsetungs -
og þeir, sem á eftir koma, láti námsstarfið leiða til þess, að
skapaður verði raunhæfur grTAndvöllur að stofnun m-1 hreyfingar með
stofnun kommúnistaflokks að takmarki'.
"Lofum hinurn drottnandi stéttum að skjálfa fyrir kommúnistabyltingu.
Þar hafa öreigarnir engu að tapa nema hlekkjunum. Þeir eiga heilan
heim að vinna. „ n n , , . . . ,
Oreigar allra landa sameimzt'."
Að loknu námi i Kommúnistaávarpinu.
Kommúnistaávarpið kennir okkur:
að verkalýðsstéttin er hin eina sanna byltingarsinnaða stétt
að frelsun hennar og um leið allra öreiga verður að vera
verk hennar sjálfrar
að rikið er tæki i höndum borgarastéttarinnar til að kúga
vérkalýðsstéttina og framfylgja arðráninu
að til þess að leysa móthverfuna milli samfélagseðlis
'framleiðslunnar og einkaeignar á framleiðslutækjunum
vérður verkalýðsstéttin að skipuleggja sig á stéttarvisu,
kollvarpa auðvaldsstéttinni og riki hennar með valdi
'i sósialískri byltingu og reisa sitt eigið rikí -
alræði öreiganna
17