Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2019 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið K371 sófi Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir 3ja sæta 2ja sæta og stólar Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Erum á facebook Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Willum Þór Þórsson, formaður fjár- laganefndar Alþingis, segir nefndina þegar hafa kallað eftir upplýsingum frá Íslandspósti (ÍSP) og svörum frá félaginu í tengslum við fjárlagagerð. Nefndin muni hafa málefni Ís- landspósts og fjárþörf áfram til með- ferðar og ganga eftir frekari upplýs- ingum, m.a. fjárfestingaryfirliti frá 2008, og upplýsingum um framvindu hagræðingaraðgerða. Þá hafi nefnd- in sett þau skilyrði fyrir nýtingu lánsheimilda að áður en slík heimild sé virkjuð beri ráðherrum að upp- lýsa bæði fjárlaga- og umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um fram- gang fjárhagslegrar endurskipu- lagningar og útfærslu á rekstrar- fyrirkomulagi ÍSP til framtíðar. Fjallað var um rekstur Íslands- pósts í Morgun- blaðinu í gær. Þar kom fram að fyr- irtækið fellst ekki á birtingu upplýs- inga um fjárbind- ingu félagsins eft- ir starfsþáttum: einkarétti, samkeppni innan alþjón- ustu og samkeppni utan alþjónustu. Ekki skylt að veita upplýsingar Rök Íslandspósts eru „einkum þau að um sé að ræða upplýsingar beint úr kostnaðarbókhaldi félagsins sem ekki sé skylt að birta“. Spurt var um tímabilið 2012-2017. Morgunblaðið beindi fyrirspurn um málið til Póst- og fjarskiptastofn- unar (PFS) sem er eftirlitsstofnun með póstþjónustu á Íslandi. Um mánuð tók að fá þessa afstöðu fram. Við fyrirspurnina var horft til svars innanríkisráðherra árið 2016 við fyrirspurn Willums Þórs varð- andi eignarekstur Íslandspósts árið 2014. Nýrri upplýsingar um einka- reksturinn eru ekki aðgengilegar. Skal tekið fram að Íslandspóstur hefur breytt kostnaðarlíkani sínu á tímabilinu. Það kann aftur að hafa áhrif á kostnaðarbókhald félagsins. Fram hefur komið að Íslandspóst- ur hefur óskað eftir allt að 1,5 millj- arða láni vegna rekstrarvanda fé- lagsins. Hafa forsvarsmenn félagsins m.a. bent á tap af póst- sendingum frá Kína. Pósturinn afhendi gögnin  Formaður fjárlaganefndar vill meiri gögn um Íslandspóst Willum Þór Þórsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ágreiningurinn um val á vegstæði fyrir Vestfjarðaveg um Gufudals- sveit kristallast í því hvort Reyk- hólaleiðin sé raunhæfur kostur eða ekki. Vegagerðin telur að byggja þurfi upp nýjan veg frá Vestfjarða- vegi að Reykhólum verði Reykhóla- leiðin fyrir valinu en forsvarsmenn Reykhólahrepps segja að ráðast þurfi í lagfæringar á veginum óháð leiðavali. Þessi viðbót getur valdið miklum kostnaðarmun á leiðunum. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis kallaði fulltrúa sveitar- stjórna á sunnanverðum Vestfjörð- um og í Reykhólahreppi á fund í gær ásamt fulltrúum Vegagerðarinnar. Fundað var með fulltrúunum í þrennu lagi. Vilhjálmur Árnason nefndarmaður segir að hver hópur hafi farið yfir sín sjónarmið og skýrslur og túlkað niðurstöður þeirra á sinn hátt. Vilhjálmur segir að lengi hafi ver- ið unnið að ÞH-leiðinni sem liggur um Teigsskóg. „Ég hef enn ekki séð nein rök fyrir því að breyta því. Ég er talsmaður umferðaröryggis og get ekki stutt það að öll umferð um Vestfirði verði sett á stór- hættulegan veg,“ segir Vilhjálmur og vísar til þess að þegar umferðin frá norðanverðum Vestfjörðum fari þessa leið muni Reykhólavegur ekki þola hana. „Við getum ekki sætt okkur við að aka moldarvegina lengur,“ segir Iða Marsibil Jónsdóttir, forseti bæjar- stjórnar Vesturbyggðar. „Við ótt- umst að niðurstaðan á Reykhólum verði R-leiðin. Hún hefur í för með sér tafir á framkvæmdum. Mér skilst að ÞH-leiðin sé auðsóttari, auðveldara verði að hefja þar fram- kvæmdir. Við búum við óboðlegar aðstæður og getum ekki sætt okkur við frekari tafir,“ segir hún. Svipuð framkvæmdalok Ingimar Ingimarsson, oddviti Reykhólahrepps, telur það byggt á misskilningi að val á R-leið tefji framkvæmdir. Hún kalli á minni vegalagningu og lok framkvæmda yrðu á svipuðum tíma og við ÞH-leið þótt framkvæmdir við þá síðar- nefndu gætu hafist fyrr. Spurður um aukakostnað við nú- verandi veg að Reykhólum segir Ingimar að ef hann sé talinn lélegur þurfi að gera við hann sama hvaða leið verður farin. Hann bendir á að sú aukna umferð sem rætt er um að hann þoli ekki sé ekki væntanleg fyrr en eftir 10 til 15 ár og gera þurfi við fleiri vegi til að taka við henni. Vilhjálmur segir að ef R-leiðin snúist um félagsleg áhrif fyrir íbúa Reykhóla velti hann því fyrir sér hvort hægt sé að ráðast í mótvæg- isaðgerðir gegn því að framkvæmdir við ÞH-leiðina geti hafist. „Af hverju leggjum við ekki bara R-leiðina í staðinn fyrir að fara í mótvægisað- gerðir til að geta lagt veginn annars staðar,“ segir Ingimar. Búist er við því að sveitarstjórn Reykhólahrepps taki ákvörðun um legu vegarins síð- ar í mánuðinum. Styður ekki stórhættulegan veg  Ágreiningur um leiðaval í Gufudalssveit snýst um það hvort framkvæmdir við veginn heim að Reyk- hólum skuli teljast með R-leið  Getum ekki sætt okkur við frekari tafir segir fulltrúi Vesturbyggðar Vilhjálmur Árnason Iða Marsibil Jónsdóttir Ingimar Ingimarsson Flugvöllurinn í Vatnsmýri hefur lengi verið hluti af borgarlandslaginu. Flugvélar koma og fara. Þessi einkaþota flaug lágt yfir Tjörnina og Hringbraut á leið til lendingar á Reykjavíkur- flugvelli. Hún sker sig lítið meira úr en bílarað- irnar við gönguljósin á Hringbraut við Þjóð- minjasafnið eða byggingakranarnir við íbúðar- hverfi Valsmanna á Hlíðarenda sem verið hafa hluti af þessu sama landslagi í nokkur ár. Einkaþota kemur inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli Morgunblaðið/Árni Sæberg Hluti af borgarlandslaginu við Hringbraut Útlit er fyrir ágætt brennuveður síð- degis á sunnudag, á þrettándanum sem kallaður er síðasti dagur jóla. Ekki þarf þó mik- ið að breytast í kortunum til þess að komin verði austanátt með snjókomu eða rigningu. Algengt var að fólk gerði sér dagamun á þrett- ándanum. Enn eru haldnar úti- skemmtanir með brennu, dansi og söng. Veðurstofan spáir því að veður lægi á sunnudag. Birta Líf Kristins- dóttir veðurfræðingur segir að seint um kvöldið eða nóttina sé útlit fyrir að hann snúist í austlæga átt með skilum sem koma úr suðri. Þá verði austan strekkingur með snjókomu eða rigningu. Gangi það eftir megi búast við hægum vindi á landinu og hagstæðu veðri til brennuhalds á sunnudagskvöld. Heldur kalt verður um helgina, frá frostmarki að 5 stiga hita. »14 Vel viðrar fyrir þrett- ándann  Hagstæð skilyrði til skemmtanahalds Brenna Þrettánda- gleði í Vesturbæ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.